Spirit North

Spirit North

Share

Spirit North; Jóga - Hugleiðsla - Sjálfsmildi, er upplifunar konsept, staðsett á Húsavík

24/08/2026

Við byrjum í næstu viku ✨🧘‍♀️
Skráning er hafin á https://spiritnorth.is/dagskra2026/
Hlökkum til að taka á móti ykkur á dýnunni, í mýkt og mildi.

Huld og Jóna

Photos from Spirit North's post 22/08/2026

Örfá pláss laus ✨

Það er eitthvað við það að kúpla sig út úr hversdeginum á stað þar sem umhverfið sjálft hjálpar manni að hægja á, anda dýpra og lenda betur í sér🧘‍♀️ Stað þar sem ekkert truflar og maður finnur strax að takturinn verður annar 🌿

Tungulending er einmitt þannig staður. Haustið, kyrrðin og náttúran skapa einstakan ramma utan um helgi sem snýst um að staldra við og tengja inn á við.

Mjúk lending: Kyrrð, næring & náttúra - KvennaRetreat 🍂🧘‍♀️ fer fram 9.–11. október og er þetta fjórða haustið sem ég býð upp á þessa helgi.

Skráning fer vel af stað, svo ef þú finnur að þessi helgi kallar á þig er gott að tryggja sér pláss tímanlega 🍂

22/02/2026

✨ Af hverju Jóga Nidra? ✨

Við lifum á tímum þar sem áreitið er stöðugt og streita er orðið viðvarandi ástand.
Taugakerfið fær sjaldan raunverulega hvíld.

Líkaminn er í sífelldri viðbragðsstöðu (s.k. "fight or flight") -jafnvel þegar við slökum á. Og við eigum erfitt með að gera breytingar í lífinu. Við upplifum okkur jafnvel "föst", án þess að geta kannski útskýrt það nánar.

🌙 Í Jóga Nidra fer líkaminn í ástand djúprar meðvitaðrar hvíldar þar sem hann getur unnið úr spennu, endurstillt taugakerfið og skapað rými fyrir raunverulega endurnýjun.

Stundum byrjar einmitt stærsta breytingin þar -í kyrrðinni 🌿

Ný námskeið hefjast á morgun og fimmtudag. Er komið að þér að gefa þér rými?

https://spiritnorth.is/dagskra2026/

Kæru vinir,
ný fjögurra vikna námskeið hefjast í næstu viku.

Hægt er að vera 1x í viku, en einnig má velja bæði námskeið og vera 2x í viku (ath. afsláttur veittur ef bæði námskeið eru tekin🪶) skráning á https://spiritnorth.is/dagskra2026/

Við hlökkum til að sjá ykkur á dýnunni, í mýkt og mildi,
Huld og Jóna Birna

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Húsavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Garðarsbraut 5
Húsavík
640