26/08/2026
Íslandsbankamótaröðin - mót 5 í dag ⛳🏌
Golfklúbbur Húsavíkur er stofnaður árið 1967. Sýndir opnunartímar eru opnunartímar vallarins. Golfskálinn opnar um kl. 10 og er opinn fram eftir degi.
Hægt er að kaupa mat og drykki í skála. Eftir lokun skála er hægt að greiða fyrir hringi í andyri golfskálans með geiðslukortum. Shown openings hours are the opening hours for the golf course. The club house is open from 10 in the morning. Closing hours depends of the traffic. At the club house, food and drinks are served. When the club house is closed, it is possible to pay with cards at the entrance of the club house.
26/08/2026
Íslandsbankamótaröðin - mót 5 í dag ⛳🏌
19/08/2026
Íslandsbankamótaröðin rúllar aftur af stað, mót 4 í dag! ⛳
18/08/2026
Golfklúbbur Húsavíkur – Íslandsmeistarar Golfklúbba, 3. deild karla🏆
Um síðustu helgi (14.–16. ágúst) fór fram Íslandsmót Golfklúbba í 3. deild karla hér á Katlavelli. Lið GH spilaði til úrslita í mótinu og sigraði Golfklúbb Borgarness í jöfnum og spennandi úrslitaleik, þar sem úrslit réðust á 19. holu í bráðabana ⛳
Það er því ljóst að GH mun leika í 2. deild að ári 💪
Í leiknum um þriðja sæti sigraði sveit Golfklúbbs Byggðarholts sveit Golfklúbbs Hveragerðis, en mikil spenna var sömuleiðis í þeim úrslitaleik og úrslit réðust einnig í bráðabana á 19. holu ⛳
Lokastaða mótsins:
🥇 Golfklúbbur Húsavíkur
🥈 Golfklúbbur Borgarness
🥉 Golfklúbbur Byggðarholts
Sveit GH skipuðu 🏌🏻♂️
Arnþór Hermannsson
Unnar Þór Axelsson
Agnar Daði Kristjánsson
Reynir Örn Hannesson
Sigurður Hreinsson
Bergur Jónmundsson
Liðstjóri: Magnús Guðjón Hreiðarsson
Golfklúbbur Húsavíkur óskar liðmönnum og liðstjóra innilega til hamingju með frábæran árangur 👏
Einnig viljum við koma þökkum okkar til allra sjálfboðaliða sem tóku þátt – það væri ekki hægt að halda svona golfmót án þeirra 🙌 Framkvæmd mótsins tókst afar vel og mikil ánægja var með mótið. Sérstakar þakkir fær mótsstjórnin og Tryggvi dómari mótsins ❤
15/08/2026
Veðrið lék við kylfinga á öðrum degi í 3ju deild sveitakeppni karla í dag þó hitastigið hafi frestað rástímum um 30 mínútur fyrst í morgun. Keppnin var afar spennandi - hart og drengilega barist, bros sást á piltunum og enginn barði kylfu í jörð svo vitað sé.
Stöðuna í keppninni má sjá hér:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vSYrFFYFCgkLbD5ZnPC9yV_xk_xo7UAD5qD20FpMKOxQu7yk-8e9c3519ge5z2t-4tBtiwYGWJ-MiIr/pubhtml =327013677
Golfklúbbur Byggðarholts
Golfklúbburinn Vestarr
Golfklúbbur Fjallabyggðar
Golfklúbbur Grindavíkur
Golfklúbbur Ísafjarðar
Golfklúbbur Borgarness
Golfklúbbur Hveragerðis
14/08/2026
Íslandsmót golfklúbba, 3ja deild karla hófst í morgun hjá okkur í Golfklúbbi Húsavíkur í örlítilli vætu.
Nokkrir glaðir kylfingar leyfðu okkur að mynda sig á fyrsta teig:
04/08/2026
Húsavíkurmótið hefst á morgun ⛳
Ráslisti fyrir dag 1, hefur verið birtur á Golfbox ✌️
28/07/2026
Opna Mærumótið 2026 – í boði Kjarnafæði – Norðlenska, fór fram síðasta laugardag, 25. júlí. Alls voru 76 keppendur sem tóku þátt, þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki verið okkur hliðhollir að þessu sinni, en þetta var bara stemning 🌧 😊
Við viljum þakka Kjarnafæði – Norðlenska fyrir afar veglegt mót og stuðninginn í gegnum árin 🥰
Leikin var Punktakeppni með og án forgjafar, úrslit urðu eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf ⛳
1. sæti: Sandra Jónasdóttir – 20 punktar 🏆
2. sæti: Páll Helgi Guðlaugsson – 19 punktar 🥈
3. sæti: Anton Örn Lárusson – 19 punktar 🥉
4. sæti: Hafþór Hermannsson – 19 punktar 🏅
5. sæti: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson – 18 Punktar 🏅
6. sæti: Sigurður Hreinsson – 18 – punktar 🏅
Punktakeppni án forgjafar ⛳
Karlaflokkur: Sigurður Hreinsson 🏆
Kvennaflokkur: Jóhanna Guðjónsdóttir 🏆
Nándarverðlaunin ⛳
2. hola: Einar Gestur 114 cm 🎯
4. hola: Sandra 255 cm 🎯
❤ Takk Kjarnafæði – Norðlenska ❤
Meðfylgjandi er mynd af verðlaunahöfum.
26/07/2026
Blush Open 2026 fór fram dagana 17.–18. júlí og tókst með einstakri prýði. Alls voru 88 keppendur skráðir til leiks, eða 44 lið. Fyrri daginn var leikin Betri bolti og þann síðari Greensome ⛳
Veðrið lék við keppendur og stemningin var frábær alla helgina 🌞 Mótinu lauk með glæsilegu lokahófi í golfskálanum þar sem Ölgerðin bauð upp á fordrykk og Golfskálinn (640 veitingar) framreiddi dýrindis tveggja rétta veislu 🍹🍰
Seinni daginn fór fram búningakeppni sem þær Helga Dóra og Lilja Skarphéðins stýrðu af miklum myndarskap og veittu þær hin ýmsu verðlaun á lokahófinu. Það var svo Frímann, bæjarlistamaður Norðurþings sem lokaði kvöldinu og sló í gegn með gítar og söng🎶
Við viljum færa Blush innilegar þakkir fyrir veglegt og glæsilegt mót, sem og Geosea og Ölgerðinni fyrir sitt framlag 😍
Sérstakar þakkir fær skipuleggjandi mótsins, Meddi, fyrir afar vel heppnað mót að venju – takk Meddi ❤️ Sem og allir sjálfboðaliðar sem komu að mótinu!
Heildarkeppni – úrslit:
🥇 1. sæti: Arna Kristín Hilmarsdóttir og Örn Unnarsson – 88 punktar
🥈 2. sæti: Heiðrún Líndal Karlsdóttir og Jón Arnar Jónsson – 85 punktar
🥉 3. sæti: Hlín Hlöðversdóttir og Guðmundur Jón Tómasson – 82 punktar
Nándverðlaun:
⛳ Braut 2/11⛳
Föstudagur 17. júlí: Knútur Bjarnason – 1,00 m🎯
Laugardagur 18. júlí: Gulli Steppi – 1,20 m🎯
⛳ Braut 4/13⛳
Föstudagur 17. júlí: Hulda Þórey Garðarsdóttir – 1,04 m🎯
Laugardagur 18. júlí: Hjörtur Sigurðsson – 1,34 m🎯
Takk fyrir okkur – sjáumst á Blush Open 2027! 🥳
| Monday | 08:00 - 22:00 |
| Tuesday | 08:00 - 00:00 |
| Wednesday | 08:00 - 00:00 |
| Thursday | 08:00 - 22:00 |
| Friday | 08:00 - 22:00 |
| Saturday | 08:00 - 22:00 |
| Sunday | 08:00 - 22:00 |