Laxá í Aðaldal - Big Laxá

Laxá í Aðaldal - Big Laxá Upplýsingasíða fyrir Nessvæði & Laxamýrarsvæði við Laxá í Aðaldal.

Nessvæðið í Laxá í Aðaldal er rómað fyrir stórlaxa, þessi síða er til upplýsinga fyrir þá sem hafa áhuga á fréttum þaðan.

Glæsilegur 96 cm lax úr Mjósundi. Hann tók Nighthawk einkrækju 🎣💥
28/08/2026

Glæsilegur 96 cm lax úr Mjósundi. Hann tók Nighthawk einkrækju 🎣💥

Veiðivinir athugið. Tvær stangir voru að losna vegna forfalla, dagana 31 ágúst til 3 september. Áhugasamir sendið okkur ...
26/08/2026

Veiðivinir athugið. Tvær stangir voru að losna vegna forfalla, dagana 31 ágúst til 3 september. Áhugasamir sendið okkur póst á [email protected] eða skilaboð hér á messenger 🎣

Þarsíðasta holl endaði í hvorki meira en minna en 78 löxum. Síðasta holl svo í 35 fiskum. Í svona heitu og fallegu sumri...
24/08/2026

Þarsíðasta holl endaði í hvorki meira en minna en 78 löxum. Síðasta holl svo í 35 fiskum. Í svona heitu og fallegu sumri stríðir slýið okkur talsvert, en þrátt fyrir krefjandi aðstæður er áin vel veiðanleg með að nota rétt veiðifæri á borð við einkrækjur. Við erum enn að bíða eftir að þeir stóru fari að taka sem ætti samkvæmt eldri manna tali að vera eftir fyrstu frostnótt. Ekki hefur enn fryst svo við bíðum róleg eftir fyrsta frosti og hlökkum til að eiga við þá stóru.

Síðasta holl endaði í 32 fiskum. Veðurblíða var mikil og slýmyndun talsverð, en gleðin við völd. Þar bar hæst ein glæsil...
15/08/2026

Síðasta holl endaði í 32 fiskum. Veðurblíða var mikil og slýmyndun talsverð, en gleðin við völd. Þar bar hæst ein glæsileg 96 cm hrygna sem kom á Skerflúð og tók Night Hawk no.8 og svo aftur 96 cm fiskur sem kom á Knútsstaðatúni og tók Laxá blá. Hérna eru nokkrar myndir frá síðasta holli við ána.

Sautjánda holl sumarsins endaði í 43 löxum. Veiðifólk fékk allan skalann af veðri, glampandi sól og úrhellis rigningu. E...
11/08/2026

Sautjánda holl sumarsins endaði í 43 löxum. Veiðifólk fékk allan skalann af veðri, glampandi sól og úrhellis rigningu. En eitt er víst að gaman er það í öllum veðrum að fá fallegan lax.

Veiðifréttir frá Laxá í Aðaldal. Eftir hamagangsveiði heimamanna og eftir að Grafabakkarfrændur létu til sín taka í Drot...
08/08/2026

Veiðifréttir frá Laxá í Aðaldal. Eftir hamagangsveiði heimamanna og eftir að Grafabakkarfrændur létu til sín taka í Drottningunni endaði hollið þar á eftir í 34 löxum. Þá voru við veiðar amerískir herramenn sem hafa veitt hjá okkur í yfir 30 ár og eru afar róleg séntilmenni. Mikið kom af nýgengnum smálaxi líkt og hefur verið síðustu vikur, en einnig talsvert af stærri höfðingjum. Eitt er víst að lífið við ána hefur verið afar ljúft þessa undanfarna daga og Ameríkanarnir fóru spilandi kátir tilbaka. Látum fylgja með nokkrar góðar myndir af fallegum fiskum og fólki.

Drottningin er á eldi - 106 laxa holl!Það hefur verið ævintýraleg veiði í Laxá síðustu daga og áin er hreinlega á eldi. ...
02/08/2026

Drottningin er á eldi - 106 laxa holl!

Það hefur verið ævintýraleg veiði í Laxá síðustu daga og áin er hreinlega á eldi. Sterkar göngur skila sér inn og fiskur veiðist upp um alla á. Hollið sem lauk veiðum í dag endaði með 106 laxa á land og langt er síðan slíkar tölur hafa sést í Laxá í Aðaldal.

Harðsnúið lið var við veiðar síðustu daga - veiðihópur frænda sem kenndir eru við Grafarbakka á Húsavík, í bland við heimamenn úr Aðaldal. Þessi hópur lét hvorki rok, rigningu né allt að því skafrenning stoppa sig við veiðarnar, og það skilaði sér svo sannarlega. Þegar upp var staðið var útkoman hvorki meira né minna en 106 laxar.

Aflinn var blandaður af fallegum nýgengnum smálaxi og tveggja ára laxi, auk þess sem nokkrir stórir hængar komu á land - 92, 95, 96 og 97 cm - sem sýnir að þeir stóru eru farnir að gefa sig að flugum veiðimanna. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu á þessari glæsilegu veiði hér í Laxá í Aðaldal.

Síðasta holl endaði í 50 löxum! 🏆🎉 Það er þvílíkt líf í ánni að við höfum varla undan að mæla og mynda. Hér eru allir á ...
30/07/2026

Síðasta holl endaði í 50 löxum! 🏆🎉 Það er þvílíkt líf í ánni að við höfum varla undan að mæla og mynda. Hér eru allir á bakkanum spilandi kátir yfir þessu ótrúlegu göngum síðustu daga og vikna og fólk spennt fyrir komandi vikum. Látum nokkrar myndir úr síðasta holli fylgja með.

Þrátt fyrir hvassviðri og erfiðar aðstæður í síðasta holli þá náðust 38 laxar á land (þar að auki fjölmargar tökur og ei...
27/07/2026

Þrátt fyrir hvassviðri og erfiðar aðstæður í síðasta holli þá náðust 38 laxar á land (þar að auki fjölmargar tökur og einhverjir misstir). Það verður að teljast vel gert þar sem helminginn af veiðitímanum var svo hvasst að veiðifólk g*t hreinlega ekki kastað. En við erum rúmum 60% yfir sama tíma og í fyrra hvað veiðitölur varðar. Það er skemmtilegt hvað er að ganga mikið af stórlaxi og enn eru að landast glænýjir 80 og upp í 95cm fiskar. Við látum fylgja nokkrar góðar myndir frá árbakkanum í síðasta holli. Já krakkar mínir, það er líf og fjör við ána.

Address

Nes
Húsavík
641

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Laxá í Aðaldal - Big Laxá posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Laxá í Aðaldal - Big Laxá:

Shortcuts

Share