Yngri flokkar Knattspyrnudeildar Völsungs

Yngri flokkar Knattspyrnudeildar Völsungs

Share

Tilkynningasíða fyrir foreldra/forráðamenn iðkenda í yngri flokkum knattspyrnu hjá Völsungi.

Photos from Yngri flokkar Knattspyrnudeildar Völsungs's post 13/07/2026

Völsungur sendi aldeilis flottan hóp af stelpum á Símamótið um helgina. Alls fóru fimm Völsungslið úr þremur flokkum.

5. flokkur fór með tvö lið sem bæði lentu í 1.sæti í sínum riðlum.
6. flokkur fór með eitt lið og tóku þær 2.sætið í sínum riðli.
7. flokkur fór með tvö lið sem lentu í 3. og 5.sæti.
Þessar frábæru stelpur úr 7.flokk Völsungs unnu síðan einnig Háttvísiverðlaun símamótsins👏

Þetta er glæsilegur árangur hjá okkar stelpum og við óskum þeim öllum innilega til hamingju💚

Fyrir áhugasama eru nokkrir af Völsungsleikjum helgarinnar aðgengilegir á Sjónvarpi símans🤩

07/07/2026

Það er nóg að gera hjá 4.flokki karla þessa vikuna.
Þeir eiga eftirfarandi heimaleiki :
Völsungur - Breiðablik í dag (7. júlí) klukkan 15:30.
Völsungur - Fylkir á fimmtudaginn (9. júlí) klukkan 16:00.

Báðir leikirnir fara fram á grasvellinum neðan við GPG völlinn svo því miður er ekki hægt að horfa á leikina í streymi en við hvetjum alla til að fjölmenna á völlinn og styðja strákana!💚

Á myndinni fyrir neðan má sjá stöðuna í E deild A liða þar sem Völsungar eru um miðja deild með tvo leiki til góða.

06/07/2026

3.flokkur karla spilar síðasta leikinn í lotu 2 á móti Austurlandi í dag. Flautað verður til leiks klukkan 17:00 á GPG-vellinum.
Völsungar eru í efsta sæti í C deild A liða og með jafntefli eða sigri í leik dagsins geta þeir tryggt sér sæti í B deild í næstu lotu.

Fjölmennum á völlinn og styðjum strákana okkar!💚

Fyrir þá sem ekki komast á völlinn verður hægt að horfa á leikinn í streymi gegn vægu gjaldi hér fyrir neðan.

https://play.spiideo.com/games/ecdfc4e1-94df-441d-90fc-40ef205996bd

02/07/2026

4. flokkur kvenna keppir við KF/Dalvík á GPG-vellinum í dag klukkan 18:00.
Hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar😃
Fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá leikinn í streymi má nálgast það hér fyrir litlar 7 evrur:

play.spiideo.com

03/06/2026

Hérna kemur æfingatafla sumarsins.

07/05/2026

Barna- og unglingaráð réði nýlega Elmar Örn Guðmundsson í starf yfirþjálfara yngri flokka í knattspyrnu. Elmar er 25 ára gamall Húsvíkingur sem kom fyrst að þjálfun hjá Völsungi árið 2015 og hefur þjálfað nánast allar götur síðan hjá félaginu.

Elmar spilaði sjálfur upp alla yngri flokka Völsungs og spilar nú fyrir meistaraflokk og hefur gert síðustu tímabil.

Mikil ánægja hefur verið með störf Elmars sem þjálfara bæði hjá iðkendum og foreldrum enda er hann frábær þjálfari sem talar vel til iðkenda og nær að miðla sinni reynslu á einstakan hátt.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Húsavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Auðbrekka 3
Húsavík
640