25/09/2026
Byrjaði morguninn á að setja nokkur net upp í þeirri von að yrði lítil rigning, rúmum tveimur tímum síðar var ég búinn að loka þeim vegna rigningar, merkti skógarþröst og smyril. Heima á lóð kom tyrkjadúfu unginn, 2 bjargdúfur og skógarþrestir. Var svo að slá inn gögn frá leirutalningunum fyrir Náttúrustofuna vel fram yfir hádegi en var svo heppinn að Bjössi vildi endilega skreppa í smá fuglabíltúr. Okkar fyrsta stopp var í Grænahrauni/Sauðanesi í Nesjum, þar var heilmikið líf, á túnunum voru grágæsir, helsingar, um 400 jaðrakanar og um 1000 hettumáfar. Heima á Grænahrauni sáust 12 hrossagaukar, maríuerlur, þúfutittlingar, stari, smyrill og um 100 skógarþrestir. Dynjandi var næsti viðkomustaður þar mátti m.a. laufsöngvara, glókoll, steindepil og fleira. Fórum svo í Skjólbrekku í Lóni, þar sáust 2 gráhegrar, laufsöngvari, þúfutittlingur og skógarþrestir. Á Stafafelli voru um 100 skógarþrestir og á Reyðará um 30 og svo einn smyrill. Lítið af fuglum í Vík, smyrill og nokkrir skógarþrestir og ekki voru þeir fleiri á Hvalensi, 2 skógarþrestir, 2 þúfutittlingar og svo ung rósafinka (ný tegud á árslistann). Síðasta stoppið var svo við Hvalnesvita, sáum þar m.a. 8 gráskrofur, bara þokkalegur eftirmiðdagsrúntur. Myndin er úr safni af ungri rósafinku frá 2020.