Skíðasvæði Snæfellsness

Skíðasvæði Snæfellsness

Share

Hér komum við með upplýsingar um það sem er að gerast í fjallinu hjá okkur í Grundarfirði

13/05/2026

🔸STYRKUR FRÁ LIONS🔸

Nú á dögunum tókum við á móti styrk til áframhaldandi vinnu á aðstöðuhúsinu okkar.

þann 7 mars 2026 hélt Lionsklúbbur Grundarfjarðar sitt fræga Kúttmagakvöld.
Þar var dýrindis matur, skemmtiatriði, leikir, happadrætti, uppboð ofl skemmtilegt.
Ágóði þessa kvölds rann til okkar, Skíðasvæði Snæfellsness og þaksjóðs Grundarfjarðarkirkju.

Miðvikudaginn 29.apríl hittum við svo þetta kraftmikla fólk í Lionsklúbbnum sem vinnur ótrúlega metnaðarfullt og óeigingjarnt starf.
Markmið klúbbsins er að láta gott af sér leiða fyrir byggðina í Grundarfirði og hafa gaman á meðan það er gert.☺️

Rut formaður skíðaráðs og Atli Freyr meðstjórnandi tóku við peningagjöf að upphæð 1.500.000 kr.!!

Lionsklúbbur Grundarfjarðar hefur staðið þétt við bakið á skíðasvæðinu frá upphafi og eiga þeir miklar þakkir skilið. Þessi peningagjöf mun svo sannarlega nýtast vel.

Okkur þykir það svo sannarlega ekki sjálfsagður hlutur að hægt sé að halda uppi heilu skíðasvæði eingöngu á sjálfboðavinnu og styrkjum, en þetta getum við, öll saman hér á Snæfellsnesi. 💪🏽

Takk kærlega fyrir okkur! 🩵

26/04/2026

Hæ hó.
Við erum svo heppin að eiga fullt fullt af vinum og velunnurum. 🥰🥰
Við fengum 4 svona “pizza teygjur” gefins,🩵
en eftir páskadagsopnun, þá eigum við bara 3 stk þrátt fyrir mikla leit.

Þið sem fenguð svona fínerí lánað hjá okkur, megið endilega ath hvort hún hafi óvart farið með heim 😊😊

Takk fyrir veturinn og Gleðilegt sumar☀️

10/04/2026

Þá erum við að ná okkur niður á jörðina eftir sjúklega góða páskaopnun.

Frábært veður, frábært færi, geggjuð mæting, fjöldi barna og fullorðinna lærðu að skíða með hjálp sjálfboðaliða, allir svo hjálpsamir og tilbúnir í þetta með okkur. þetta er það sem gefur okkur í skíðaráði bensín.

Skíðaráð fundaði á miðvikudagskveldið og erum við öll sammála um að þessir dagar gáfu okkur orkusprautu í áframhaldandi vinnu við aðstöðuhúsið, lyftuna, snjógildrur, skíðaleigu, skíðakennslu og fleira.

Kærar þakkir allir fyrir komuna og bestu þakkir til allra sjálfboðaliða.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Grundarfjörþur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Grundarfjörþur
350GRUNDARFJÖRÐUR