Golfklúbbur Grindavíkur

Golfklúbbur Grindavíkur

Share

Golfklúbbur Grindavíkur

29/08/2026

Ási með ÁS!

Grindvíkingurinn Ástþór Ingi Gestsson sló á móti sólu á 7undu, draumahöggið staðfest og kúlan lendir um 20 cm frá pinna og lak beinustu leið ofaní.
Ási notaði P járn í verkið og var tilfinningin góð, þó að hann trúði ekki eigin augum!

Ási gekk í klúbbinn í apríl síðastliðnum og er þetta fyrsta árið sem hann spilar eitthvað af viti, hefur varið góðum tíma á Húsatóftavelli í sumar en í dag spilaði hann sinn besta hring.

Til hamingju með draumahöggið Ási 🏌⛳

Photos from Golfklúbbur Grindavíkur's post 27/08/2026

Kæru félagsmenn

Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að framkvæmdir við nýtt æfingasvæði Golfklúbbs Grindavíkur ganga vel og svæðið er nú farið að taka verulega á sig mynd.

Sáð var í svæðið í byrjun maí og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hefur grasvöxturinn farið vel af stað. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu hratt svæðið er að grænka og hvernig heildarmyndin er farin að skýrast.

Nú tekur við mikilvægur tími þar sem grasið þarf að fá næði til að þroskast, þéttast og mynda sterkan svörð. Þótt svæðið líti nú þegar vel út er mikilvægt að gefa því nægan tíma áður en það verður tekið í fulla notkun.

Stefnt er að því að opna nýja æfingasvæðið um mitt næsta sumar.

Undirbúningur fyrir opnunina heldur jafnframt áfram í vetur. Stefnt er að því að byggja sláttubása á svæðinu, þannig að aðstaðan verði sem best þegar svæðið verður tekið í notkun.

Þá hefur klúbburinn einnig fest kaup á slátturóbota sem verður nýttur við umhirðu æfingasvæðisins. Róbotinn mun hjálpa verulega til við daglegt viðhald, tryggja reglulegan slátt og auðvelda okkur að halda svæðinu í góðu ástandi. Þetta er mikilvæg fjárfesting fyrir nýja svæðið og mun jafnframt draga úr álagi á starfsfólk við umhirðu þess.

Nýja æfingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir Golfklúbb Grindavíkur og mun bæta verulega aðstöðu félagsmanna til æfinga. Það er spennandi að fylgjast með svæðinu taka á sig mynd og við hlökkum mikið til að geta boðið félagsmenn velkomna þangað næsta sumar.

Við munum halda félagsmönnum upplýstum um framvinduna og deila fleiri myndum eftir því sem nær dregur opnun.

Bestu kveðjur,
Golfklúbbur Grindavíkur

26/08/2026

UPPFÆRT!! - Rafmagnið komið aftur á hjá okkur, nýsmurt í kælinum, kaffivélin er klár og kveikt á grillinu ☕

Það er rafmagnslaust hjá okkur eins og er og verður eitthvað frameftir degi skv fréttum frá HS veitum.
Síminn eins og önnur raftæki eru óvirk en við gerum okkar besta að svara skilboðum í gegnum samfélagsmiðla ef einhver þarf aðstoð með rástímabókanir ⛳

23/08/2026

Innanfélagsmót - aðeins fyrir félaga (menn og konur)!

Hjóna/para texas mót 🏌⛳🏆
Sunnudaginn 30. ágúst, ræst út á öllum teigum kl 10:00.

Skráning hafin í golfbox!

21/08/2026

Golfklúbbur Grindavikur sigrar Íslandsmót golfklúbba 50+ 4 deild. Lið Grindavíkur skipuðu Ingvar Guðjónsson liðstjóri og andlegur leiðtogi, Helgi Dan Steinsson, Þorlákur Halldórsson og Arnar Ástþórsson.

17/08/2026

Möllerinn 2026 🏌
Skráðu fyrirtækið þitt til leiks í skemmtilegasta golfmóti ársins á Húsatóftavelli 🍻 🏆

14/08/2026

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 3. deild karla fer fram á Katlavelli hjá Golfklúbbi Húsavíkur dagana 14.-16. ágúst.
Golfklúbbur Grindavíkur á lið í keppninni og má fylgjast með stöðu og úrslitum hér :

3. deild karla - 2026

13/08/2026

Stigamót 7 - Þriðjudaginn 18. ágúst opið fyrir skráningu í golfbox, hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst, nóg af lausum tímum milli klukkan 16 og 18 🏌

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Grindavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Húsatóftir
Grindavík
240