01/09/2026
Fyrsta næturfrostið herjar á Urriðavöll, kannski ekki alveg svona mikið frost 😀eins og á myndinni en lokað til 8:00 eins og staðan er núna.
Golfklúbburinn Oddur var stofnaður árið 1993. GO rekur einn glæsilegasta 18 holu golfvöll land The fellowship of Odd Fellow bought the land in early forties.
They founded a private golf club in 1990 and in the following 7 years the Odd Fellow Golf Club (GOF) built a magnificent 18 hole golf course, covering an area of 162 acres. In 1993 the Oddur Golf Club (GO) – an open golf club – was established and became forthwith a member of the Golf Association of Iceland (GSÍ). It´s foundation was of two reasons, firstly to enable the members of GOF to particip
01/09/2026
Fyrsta næturfrostið herjar á Urriðavöll, kannski ekki alveg svona mikið frost 😀eins og á myndinni en lokað til 8:00 eins og staðan er núna.
30/08/2026
FYRIRSÆTURNAR KOMU SÁU OG SIGRÐUÐU THULE LIÐAKEPPNI GO Í ÁR.
Það var frábær lokadagur í liðakeppni GO í ár og kórónaði hið ágætasta sumar í þessari liðakeppni sem oft hefur þurft að þola öll veðurafbrigðin, 128 keppendur örkuðu út á völl, allir teigar nema þrír tvímannaðir hollum og leiktími 5:10 sem verður að teljast með afbrigðum gott í svona stórum hópi. Þökkum þeim 37 liðum sem tóku þátt í ár fyrir skemmtilegt mót, styrktaraðilar sem eru fjölmargir fá sérstakar þakkir. Áfram GO og aftur til hamingju FYRIRSÆTUR
https://www.oddur.is/lokastada-i-thule-lidakeppni-go-2026/
24/08/2026
Við breytum fyrirkomulagi rástímabókana á Urriðavelli frá 7. september og opnað hefur verið fyrir bókanir á Fyrri og Seinni 9 holur vallarins. Nánari upplýsingar um hvernig þessu er stillt upp er hægt að lesa í þessari frétt á heimasíðu GO.
https://www.oddur.is/breytt-fyrirkomulag-rastimabokana-a-urridavelli-fra-7-september/
24/08/2026
Það hefur rignt duglega hér síðustu klukkustundir og því hefur vallarstjóri bannað umferð golfbíla í dag mánudaginn 24.8.
15/08/2026
Okkar meistaraflokks konur tryggðu sér rétt í þessu sæti í efstu deild kvenna að nýju eftir hörkukeppni í úrslitaleik við Nesklúbbinn í úrslitaleik 2. deildar en mótið fór fram á Silfurnesvelli á Höfn í Hornafirði. Við óskum okkar konum innilega til hamingju með frábært mót. Unnu alla sína leiki.
Frá vinstri á mynd Hekla, Heiða, Auður, Eydís og Gio
https://www.oddur.is/islandsmot-golfklubba-2-deild-kvenna-stada-okkar-kvenna-og-urslit-leikja/
10/08/2026
Í dag hófst LEK mót Golfklúbba í aldursflokkum 65+ karla og kvenna og 75+ karla. Við eigum fulltrúa í öllum þessum flokkum en leikið er í Öndverðarnesi hjá 65+ körlum, Grindavík hjá 65+ konum og 75 karlar eru í Þorlákshöfn.
Hægt er að sjá stöðuna hjá öllum þessum flokkum í frétt á heimasíðu GO https://www.oddur.is/keppnissveitir-go-2026/
10/08/2026
Arnór Snær Guðmundsson, PGA golfkennari, tekur þrjú miðvikudagskvöld í ágúst í að fara yfir undirstöðurnar — gripið, uppstillinguna og allt hitt sem laumast úr lagi yfir sumarið.
Arnór Snær Guðmundsson, PGA golfkennari, tekur þrjú miðvikudagskvöld í ágúst í að fara yfir undirstöðurnar — gripið, uppstillinguna og allt hitt sem laumast úr lagi yfir sumarið.
12., 19. og 26. ágúst kl. 17:00–18:00.
21.500 kr. fyrir öll þrjú skiptin.
Skráning: [email protected]
09/08/2026
Edda Maggý Rafnsdóttir var að henda í holu í höggi á 8. braut og fær að sjálfsögðu glaðning frá VIKING í boði Coca Cola. Til hamingju með afrekið Edda.
07/08/2026
Æfingasvæðið er lokað í fyrramálið, boltatínsla í gangi utan sem innan svæðis, virðist vera nokkuð um það að boltar leiti út fyrir girðingar :) og því er þetta nauðsynleg aðgerð.
07/08/2026
Þetta er staðan í dag 7.ágúst, engin leið að opna fyrir bíla í dag vegna bleytu.
| Monday | 08:00 - 22:00 |
| Tuesday | 08:00 - 22:00 |
| Wednesday | 08:00 - 22:00 |
| Thursday | 08:00 - 22:00 |
| Friday | 08:00 - 22:00 |
| Saturday | 08:00 - 22:00 |
| Sunday | 08:00 - 22:00 |