Stjarnan körfubolti

Stjarnan körfubolti

Share

Fylgstu líka með okkur á Twitter @stjarnankarfa. Handbók körfuknattleiksdeildar http://goo.gl/Q Handbók körfuknattleiksdeildar http://goo.gl/QQNC6H

31/08/2026

Heiðrún Björg Hlynsdóttir til Svíþjóðar 🤝

Fleiri af okkar ungu leikmönnum halda erlendis.

Heiðrún Björg hefur lengi verið hluti af Stjörnunni, spilað í þrjú ár í Bónus deildinni ásamt því að hafa spilað fyrir öll yngri landslið Íslands, nú síðast fyrir U20 ára lið Íslands sem náði frábærum árangri í A-deildinni í sumar.

Heiðrún hefur samið við Brahe Basket í Svíþjóð sem spilar í sænsku úrvalsdeildinni og frábært tækifæri framundan.

Við óskum Heiðrúnu góðs gengis í Svíþjóð og hlökkum til að fylgjast með henni í vetur.

SKÍNI STJARNAN 💙

29/08/2026

Til hamingju með daginn Garðabær!

Meistaraflokkur karla er með fjáröflun á Garðatorgi í tilefni fyrirhugaðrar keppnisferðar i haust.

Drykkir við allra hæfi á góðu verði 🏀

Komdu og kiktu á okkur og hver veit nema penninn verði á lofti fyrir eiginhandaráritanir ✍️

Skíni Stjarnan 💙

25/08/2026

Sigrún Sól Brjánsdóttir til Ameríku.

Sigrún Sól hefur leikið með Stjörnunni allan sinn feril. Í fyrra spilaði hún sínar fyrstu mínútur í Bónus deildinni ásamt því að vera í lykilhlutverki í 1.deildar liði Stjörnunnar, hefur leikið með U15 og 16 landsliðum Íslands og nú síðast var hún í U18 landsliðinu sem stóð sig vel í B-deildinni í sumar.

Sigrún gengur til liðs við Westtown high school í Philadelphiu í Bandaríkjunum. Liðið er hátt skrifað á landsvísu í Bandaríkjunum og því um frábært tækifæri að ræða.

Við óskum Sigrúnu góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með henni í vetur.

24/08/2026

Jakob Kári Leifsson framlengir við Stjörnuna 🤝

Jakob Kári hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna og mun leika með liðinu í Bónus deildinni í vetur.

Jakob er fæddur árið 2008 og spilaði stórt hlutverk með U18 landsliði Íslands í sumar.
Hann hefur æft og spilað með Stjörnunni frá 10 ára aldri, og unnið fjölmarga Íslands-og bikarmeistaratitla með Stjörnunni.

Við fögnum því að Jakob Kári endurnýi samning sinn við Stjörnuna og hlökkum til að fylgjast með honum í ÞG Verk höllinni í vetur.

Til hamingju Jakob Kári – Til hamingju Stjarnan

SKÍNI STJARNAN 💙

Photos from Stjarnan körfubolti's post 23/08/2026

Kormákur Nói Jack til Þýskalands.

Kormákur samdi við Bremerhaven í Þýskalandi þar sem hann mun spila með U19 ára liði félagsins.
Bremerhaven er félag með mikla sögu og spilar á næsta ári í Pro A, næst efstu deild Þýskalands. Þess má geta að Hilmar Smári Henningsson spilaði með liðinu tímabilið 2023-2024.

Kormákur spilaði í sumar lykilhlutverk með U16 ára liði Íslands sem náði frábærum árangri og lenti í öðru sæti Evrópumótsins.
Það er alltaf gaman að sjá okkar fólk taka skrefið og reyna sig erlendis.

Við óskum Kormáki góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með honum í vetur.

22/08/2026

A-landslið karla mætti Finnlandi í vináttuleik í Helsinki í gær og fara þaðan til Belgrad í Serbíu þar sem þeir mæta heimamönnum föstudaginn 28. ágúst og Tyrkjum í Laugardalshöll mánudaginn 31. ágúst.

Fulltrúar Stjörnunnar í ferðinni eru þeir Hilmar Smári Henningsson og Bjarni Guðmann Jónsson.

Við óskum þeim og liðinu góðs gengis í leikjunum sem framundan er.

Áfram Ísland.

22/08/2026

A-landslið kvenna mætti Portúgal í tveimur vináttuleikjum í Lissabon um helgina, leikirnir voru liður í undirbúningi liðsins fyrir næsta keppnisglugga sem er í nóvember.

Berglind Katla Hlynsdóttir spilaði sína fyrstu landsleiki í ferðinni en hún og Eva Wium Elíasdóttir voru flottir fulltrúar Stjörnunnar.

Leikirnir töpuðust en engu að síður mikilvægt fyrir liðið að slípa sig saman fyrir verkefni vetrarins.

Áfram Ísland

19/08/2026

Zay Dyer semur við Stjörnuna ✍️

Zay er 22 ára og fædd í Bandaríkjunum. Hún kemur beint úr Troy University og vakti athygli þar fyrir gríðarlegar góða frammistöðu á körfuboltavellinum, og hlaut meðal annars viðurkenningar sem varnarmaður ársins og fl. Hún spilar í stöðu framherja, sterkur frákastari og ver hringinn vel.

Við bjóðum Zay velkomna í Stjörnuna og hlökkum til að fylgjast með henni í ÞG Verk höllinni í vetur.

Til hamingju Zay – til hamingju Stjarnan

Skíni Stjarnan 💙

18/08/2026

Amandas Urkis semur við Stjörnuna.✍️

Amandas er 27 ára og fæddur í Litháen. Hann lék í bandaríska háskólaboltanum með Kentucky Wesleyan Panthers og stundaði einnig nám við Lewis & Clark Community College.
Hann kemur til Stjörnunnar frá BK Ventspils í Lettlandi.

Við bjóðum Urkis velkominn í Stjörnuna og hlökkum til að fyljgast með honum í ÞG Verk höllinni í vetur.

Til hamingju Amandas – til hamingju Stjarnan

Skíni Stjarnan 💙

18/08/2026

Stina Almqvist semur við Stjörnuna ✍️

Stina kom til Stjörnunnar á miðju síðasta tímabili, eftir að hafa spilað í Þýskalandi og átti mjög góðan feril í háskóla í Bandaríkjunum þar sem hún skilaði mjög góðum tölum.

Í þeim 13 leikjum sem hún spilaði með okkur í fyrra skilaði hún að meðaltali 19 stigum og 8 fráköstum í leik. Hún fjölhæf og getur spilað margar stöður og fögnum við því að hún verði með okkur áfram í vetur í ÞG Verk höllinni.

Til hamingju Stina – Til hamingju Stjarnan.

Skíni Stjarnan 💙

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Íþróttamiðstöðin Ásgarði
Garðabær
210