02/07/2026
Taka tvö í fyrramálið 3 júlí
Íþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.
Þegar svona er þá munum við missa hitann niður á öllum laugum/pottum hjá okkur.
Við ætlum samt að halda plani í fyrramálið og opna á venjulegum tíma. Við getum ekki lofað því að pottarnir verði nothæfir fyrst um sinn en sundlaugin verður klár á sínum stað en verður væntanlega 2-3 gráðum kaldari en hún er vön að vera.
Með bestu kveðju, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar
‼️ Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miðgarði, Útgarði og Tjarnarbraut á Egilsstöðum frá kl. 23:30 þann 2. júlí til 5:00 þann 3. júlí 2026.
⚡️ Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana.
ℹ️ Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof
25/06/2026
https://www.mulathing.is/is/frettir/rafmagnsleysi-a-egilsstodum-25-26-juni
Íþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.
Þegar svona er þá munum við missa hitann niður á öllum laugum/pottum hjá okkur.
Við ætlum samt að halda plani í fyrramálið og opna á venjulegum tíma. Við getum ekki lofað því að pottarnir verði nothæfir fyrst um sinn en sundlaugin verður klár á sínum stað en verður væntanlega 2-3 gráðum kaldari en hún er vön að vera.
Með bestu kveðju, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar
Rafmagnsleysi á Egilsstöðum 25.-26. júní
Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miðgarði, Útgarði og Tjarnarbraut á Egilsstöðum frá klukkan 23:45 þann 25. júní til 6:00 þann 26. júní 2026
17/06/2026
Góðan daginn
Þjóðhátíðardagurinn 17 júní er sundlaug og rækt lokuð hjá okkur eins og alltaf.
Vegna veðurs færast hátíðarhöldin inní íþróttasalinn hjá okkur
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
12/06/2026
Góðan daginn
Saunan okkar er því miður biluð.
Unnið er að viðgerð ekki víst hvenær hún verður komin í lag aftur.
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
23/05/2026
24 maí og 25 maí er helgaropnun hjá okkur í sund og rækt frá 09:00 til 17:00
22/05/2026
Íþróttamiðstöðin lokar vegna viðhalds
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum verður lokuð frá 2. júní og opnar aftur þann 8. júní
13/05/2026
Uppstigningardagur 14 maí á morgun helgaropnun hjá okkur í rækt og sund 09:00 til 17:00
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE
04/05/2026
Í dag var mætur maður borinn til grafar 🤍
Steini hóf störf hjá sundlauginni á Egilsstöðum fyrir aldamót og vann hjá okkur allt til ársins 2021. Steini var mjúkur og góður maður en g*t látið í sér heyra þegar þess þurfti, sem svo sannarlega er fulkomin blanda í starfi sem þessu.
Steini var á heimavelli á þessum vinnustað þar sem mikið af fólki kom við og g*t oft verið mikið fjör. Hann var duglegur að stoppa við í kaffi eftir að hann hætti að vinna meðan hann hafði heilsu til.
Læt fylgja með eina skemmtilega sögu úr Íþróttahúsinu sem náði því að verða atriði á þorrablóti hér um árið.
Fyrir nokkrum árum var farið í mikla tiltekt í sundlaugarkjallaranum sem var orðinn yfirfullur af allsskonar drasli. Steini var fenginn með í þetta verkefni á landcruisernum og fengin stærsta kerran að láni sem áhaldahúsið á Egilsstöðum átti. Þegar búið var að fylla á kerruna var ákveðið að fá sér einn kaffibolla áður en lagt var á stað með allt góssið á ruslamóttökuna. Steini fékk tvo aðra starfsmenn til að koma með sér. Annar sat við hliðna á Steina og hinn sat í aftursætinu til þess að fylgjast með því að ekkert dytti nú af kerrunni. Steini keyrði mjög gætilega alla leiðina og fór sérstaklega varlega yfir hraðahindraninar. Þegar komið var á vigtina innfrá stóð þar starfsmaður sem var ekkert nema tvö stór augu og benti alltaf fyrir aftan bílinn. Þegar málið var kannað betur kom í ljós að það gleymdist að húkka kerrunni aftaní bílinn fyrir utan íþróttahúsið áður en lagt var af stað 😊
Við gerum fastlega ráð fyrir því að Steini hafi hlegið hátt af þessu þegar frá leið í það minnsta.
Elsku Tidda, Máni, Begga og fjölskyldur við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Minning um góðan mann lifir með okkur 🤍
Samúðarkveðjur frá starfsfólki Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum
03/05/2026
Á morgun mánudaginn 4 maí þurfum við að hafa sundlaugina lokaða á milli 10:00 og til 13:00 af óviðráðanlegum ástæðum.
Íþróttasalur og Héraðsþrek eru opin eðlilega á morgun
Kveðja
Starfsfólk ÍÞE