12/07/2026
🇮🇸 Íslendingur skrifar undir! ❗️
Við erum ánægð að tilkynna að Sveinn Búi Birgisson hefur skrifað undir samning við félagið! ✍️
Sveinn Búi kemur til okkar eftir fjögur ár í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Hann lék tvö ár með Siena og síðustu tvö árin með Lynn University, þar sem hann skilaði að meðaltali 7,5 stigum, 3,6 fráköstum og 1,1 stoðsendingu í leik.
Sveinn Búi á einnig sterk tengsl við Austurland, en móðir hans er fædd og uppalin á Héraði.
Við bjóðum Svein Búa hjartanlega velkominn – og segjum:
Velkominn heim, Sveinn Búi!👏
06/07/2026
Steinar Aðalsteinsson ✍️
Steinar skrifar undir sinn fyrsta meistaraflokkssamning við Hött eftir að hafa komið upp úr öflugu yngri flokka starfi félagsins.
Steinar, sem er fæddur árið 2007, átti frábært tímabil í fyrra og hefur sýnt stöðugar framfarir undanfarin ár. Með metnaði og góðri þróun hefur hann unnið sér inn tækifærið og verður spennandi að fylgjast með honum í meistaraflokki.
Við bjóðum Steinar velkominn í hópinn og hlökkum til að sjá hann taka næstu skref í treyju Hattar🙌
02/07/2026
Jóhann Gunnar áfram á Egilsstöðum‼️
Jóhann Gunnar Einarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning um að halda áfram í þjálfun yngri flokka.
Jóhann hefur verið í þjálfun yngri flokka síðustu ár og gert mjög flotta hluti. Hann heldur áfram með 8.fl drengja sem hann hefur náð góðum árangri með ásamt þjálfun annara flokka.
Gríðarlega mikilvægt fyrir yngri flokka starfið okkar sem er sífellt að stækka og dafna!
Áfram Höttur!
26/06/2026
EITT ÁR ENN‼️
Obie Trotter hefur skrifað undir eins árs samning við okkur og mun þetta verða hans síðasta tímabil á löngum og farsælum ferli.
Við erum gríðarlega ánægð með að halda Obie og að hann klári ferilinn hjá okkur. Hann kom til félagsins haustið 2022 og hefur verið lykilmaður síðan!
Let’s go 🤩
26/06/2026
SALVA ÁFRAM HJÁ HETTI‼️
Salva Guardia skrifar undir tveggja ára samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks og þjálfun yngri flokka. Salva kom til okkar fyrir tveimur árum og hefur verið frábær viðbót við starfið okkar!
Það er ánægjulegt að hafa Salva og fjölskyldu áfram hjá okkur og vonumst við til að þau verði hér sem lengst í samfélaginu.
ÁFRAM HÖTTUR!🏀
24/06/2026
NÝR LEIKMAÐUR‼️
Við kynnum til leiks Aleksandar Pantelic sem hefur samið um að leika með liðinu á næsta tímabili í Bónus deildinni.
Aleksandar er 28 ára Serbi og kemur til félagsins frá KK Mdlost í Bosníu þar sem hann lék síðasta tímabil. Hann var þar með 17.3 stig, 5.7 fráköst og skaut 41.4% fyrir utan þriggja stiga línuna.
Aleksandar mun koma austur rétt fyrir miðjan ágúst og bjóðum við hann velkominn til Hattar!
19/06/2026
Gleðifréttir úr herbúðum Hattar.
08/06/2026
Skráning á sumaræfingar í körfuboltanum í fullum gangi.
Æfingar byrja á miðvikudag.
Höttur
Finndu námskeið í vefverslun Höttur. Keyrt áfram af Abler