UMFS Dalvík - Yngri flokkar Knattspyrna

UMFS Dalvík - Yngri flokkar Knattspyrna

Share

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS

Photos from UMFS Dalvík - Yngri flokkar Knattspyrna's post 14/07/2026

Við Dalvíkingar eigum 3 glæsilega fulltrúa í ár í Bestu deild karla, einnig þó nokkra leikmenn sem stigu sín fyrstu skref í meistaraflokki með Dalvík/Reyni.

Í KA eru 2 Dalvíkingar í stóru hlutverki. Markús Máni Pétursson hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu í hjarta varnarinnar. Þá skoraði Sveinn Margeir Hauksson 2 mörk í síðasta leik í endurkomu sigri á ÍA. Sveinn leikur með KA á láni en hann er samingsbundinn Víking Reykjavík og hefur verið að ná sér á strik eftir erfið meiðsli síðasta vetur.

Með Stjörnunni leikur Þorri Mar Þórisson, hann hefur leikið 6 leiki og skorað 1 mark það sem af er tímabili.

Frábærir fulltrúar Dalvíkur og fyrirmyndir fyrir okkar iðkenndur.

Áfram Dalvík 💙🤍

Photos from UMFS Dalvík - Yngri flokkar Knattspyrna's post 13/07/2026

Mikil, stór og eftirminnileg vika hjá stelpunum okkar í 4. 5. Og 6.flokki.

4.flokkur KF/Dalvík hélt til Finnlands þar sem tekið var þátt í Helsinki Cup. 16 stelpur ásamt þjálfara, farastjórum og foreldrum áttu frábæra daga á þessu stóra og flotta móti. Stelpurnar léku 5 leiki gegn firna sterkum þrem finnskum liðum, einu sænsku og einu spænsku liði. Úrslitin voru þeim ekki í hag en mikil og dýrmæt reynsla og ógleymanlegar minningar. Liðið lék í glæsilegum bleikum búningum sem sérstaklega voru gerðir fyrir mótið.

5. og 6. flokkur léku á Símamótinu í Kópavogi þar sem heildarfjöldi keppanda var um 3100 í íslensku sumarveðri.

5.flokkur mætti með 2 lið til leiks með KF. Lið 1 komst í undanúrslit í sínum styrkleika og Lið 2 stóð sig með stakri prýði.

6.flokkur var með 3 sameiginleg lið með KF. Lið 1 kom heim með gullverðlaun eftir frábæra frammistöðu á mótinu, Lið 2 og 3 stóðu sig feykna vel.

Heilt yfir getum við verið gríðarleg stolt af öllum þeim frábæru stelpum sem við eigum. Allar sem ein voru félaginu til mikils sóma innan sem utan vallar, uxu sem lið og einstaklingar og það sem er mikilvægast af öllu er að þær fylltu minningarbankann af ógleymanlegum augnablikum.

Áfram Dalvík!💙🤍

Photos from UMFS Dalvík - Yngri flokkar Knattspyrna's post 09/07/2026

Fótbolti er æðisgengið áhugamál…sérstaklega á sumrin. Iðkenndur okkar hafa undanfarnar vikur leikið allt frá Egilsstöðum til Vestmannaeyja. Íslandsmót í 5.flokki og 4.flokki í fullum gangi og mót í gangi hverja helgi.

Félagið átti 2 lið á N1 mótinu í 5.flokki karla og 2 lið á Norðurálsmótinu í 7.flokki í Júní. Sem fyrr stóðu okkar menn sig með mikilli prýði, sýndu dugnað og eljusemi ásamt því að hafa einstaklega gaman, það sem þetta snýst allt um.

Núna um helgina eru 6.flokkur og 5.flokkur kvenna staddar á Símamótinu þar sem rúmlega 3000 keppendur eru skráðir til leiks.

Strandarmotið okkar er svo haldið 18.Júlí næst komandi.

Photos from UMFS Dalvík - Yngri flokkar Knattspyrna's post 20/06/2026

Sumarið er komið á fullt skrið og okkar iðkenndur eru víðsvegar um landið þessa daganna. Um síðustu helgi fór TM mótið fram í Vestmannaeyjum fyrir 5.flokk kvenna. KF/Dalvík var með 2 lið á mótinu og stóðu bæði lið sig gríðarlega vel í hörku leikjum allt mótið. Allir iðkenndur, þjálfarar og foreldrar voru félögum sínum til mikils sóma.

Þessa helgi er Norðurálsmótið í gangi á Akranesi og þar er Dalvík með 2 lið skráð til leiks í 7.flokki karla. Kraftmiklir og flottir strákar þar á ferð og verður spennandi að fylgjast með helginni hjá þeim

Áfram Dalvík🔵⚪️

29/05/2026

Sumartafla 2026

Gildir: 8.Júní - 24. ágúst

Opnað verður fyrir skráningu 1.júní á Abler og skrá þarf iðkenndur fyrir 15.júní.

Ef einhverjum vantar aðstoð eða hefur spurningar varðandi skráningu er hægt að senda okkur skilaboð hér á Facebook

Starf yngri flokka UMFS Dalvík byggir á þeirri hugmynd að allir eigi rétt á að taka þátt og fá verkefni við hæfi. Við viljum leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem iðkendur læra að bera virðingu fyrir sjálfum sér, liðsfélögum, andstæðingum, dómurum og samfélaginu í kringum félagið.

Knattspyrnudeildin vill vera staður þar sem gleði og metnaður fara saman. Við viljum að iðkendur mæti á æfingar af áhuga, upplifi öryggi innan hópsins og fái tækifæri til að þróast bæði sem leikmenn og einstaklingar.

Við hlökkum til að sumarsins með iðkenndum, þjálfurum og foreldrum ⚽️

28/05/2026

Stelpur í fótbolta

Í sumar bjóðum við stelpum í 7.flokki (árgangur 2018-2019) að æfa frítt 2x í viku. Engar stelpur á þessum aldri hafa verið að æfa og Dalvíkurbyggð styrkti félagið til þess að hægt væri að bjóða upp á sér æfingar fyrir stelpur á þessum aldri.

Í sumar verður því 7.flokk skipt í stelpu og stráka hópa og markmiðið að skapa hvetjandi umhverfi fyrir ungar stúlkur til að kynnast fótbolta og hafa gaman.
Það verður í boði að æfa 4x í viku og greiða þannig einungis fyrir 2 æfingar í viku.

Hlökkum til að taka á móti nýjum og galvöskum stelpum.

Sumartaflan og skráning verður svo kynnt i vikulok.

25/05/2026

Jako mætir með árlega markaðinn sinn í næstu viku til okkar í Íþróttamiðstöðina, miðvikudaginn 27. maí milli kl 16-18. Hvetjum ykkur til að koma nýta tilboðin.

13/05/2026

Aðalfundur Barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar UMFS fer fram Miðvikudaginn 20.maí kl 17. Dagskrá er hefðbundin dagskrá aðalfundar. Öllum velkomið að mæta.

06/05/2026

Nú eru voræfingar í gangi hjá okkur og eins og undanfarin ár bjóðum við nýjum iðkenndum að byrja að æfa eða koma og prófa æfingar endurgjaldslaust fram að sumartöflu.

Æfingar fara fram á gervigrasvellinu en gætu færst inn eins og þessa vikuna vegna veðurs. Endilega sendið okkur skilaboð hérna á facebook fyrir spurningar.

Æfingatafla:
2020 og 2021: Þriðjudaga og Fimmtudaga kl 16:45 - 17:30.
2018 - 2019: Þriðjudaga og Fimmtudaga 14:30 - 15:30
2016 - 2017: Þriðjudaga og Fimmtudaga 15:30 - 16:30 og Laugardaga 10:00 - 11:00
2014 - 2015: Þriðjudaga og Fimmtudaga 16:15 - 17:15 og Laugardaga 11:00 - 12:00
2010 - 2013: Mán, Þri, Mið, Fim kl 16:30 - 17:30

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Dalvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Íþróttamiðstöðin á Dalvík
Dalvík
620