Sunnuyoga

Sunnuyoga

Share

Við mæðgur Unnur og Sigríður Björk Hafstað stöndum á bakvið Sunnuyoga. Ást og friður, Om shanti

07/02/2025

iRest yoga nidra verður ONLINE í dag, ekki á Böggvisstöðum. Kl 17: 15, tíminn kostar 1500 kr, skráning í skilaboðum.

Sunnuyoga 2025 17/01/2025

Yndislegur yoga nidra/iRest tími í dag með þátttakendum frá Dalvík, Ólafsfirði, Akureyri og Hafnarfirði. Tímarnir eru á föstudögum kl 17:15-18:15 á Böggvisstöðum og ONLINE frá 17:15-18. Skráning hér https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScV2VEl2bHpQqmleeV2QBlUNU2KMQcNL3ZXWoWhWu5xwyUyXg/viewform?usp=sharing Ath að á Böggvisstöðum er gongslökun í lokin og þeir tímar henta ekki fyrir fólk sem er með gangráð og/eða ofnæmi fyrir hundum og köttum.

Sunnuyoga 2025 iRest - yoga nidra föstudaga kl 17:15-18:15 2500 kr stakur tími Böggvisstöðum 1500 kr stakur tími ONLINE Upplýsingar í síma 898-9577 eða [email protected]

10/01/2025

Yoga nidra í dag kl 17:15, laus pláss bæði á Böggvisstöðum og online fyrir þá sem vilja iðka heima.

30/12/2024

iRest Yoga nidra með gong slökun í lokin byrjar aftur 10.janúar, á föstudögum kl 17:15. Tímarnir eru á Böggvisstöðum og á sama tíma á netinu þannig að hægt er að iðka heima líka. Vegna framkvæmda er ég ekki með skráningar langt fram í tímann heldur bara einn og einn tíma í senn. Best að senda PM eða kommenta hér að neðan til að skrá sig 10.jan. Skiptið kosta 2500 kr á staðnum og 1500 kr á netinu.

06/12/2024

UPPFÆRT: TÍMINN FELLUR NIÐUR :) Síðasti yoga nidra tíminn fyrir jól er í dag 6.des kl 17:15. Skráning í skilaboðum eða síma 8989577 :)

15/11/2024

iRest yoga nidra tíminn verður á sínum stað kl 17:15. Bæði á Böggvisstöðum og ONLINE. Laus pláss

13/11/2024

Mig vantar einn sjálfboðaliða á Dalvíkursvæðinu sem hefur áhuga á að koma til mín í andlitsnudd með boltum. 3 skipti, klukkutíma í senn núna í nóv /des. Þetta kostar 10.550 kr þ.e. verðið á boltunum. Það verður smá heimavinna á milli tímanna, ég kenni stutta nuddrútínu sem er auðvelt að fylgja. Áhugasamir sendið PM hér til Sunnuyoga eða beint til mín. Bestu kveðjur, Unnur.

07/11/2024

Á morgun er uppselt í iRest yoga nidra á Böggvisstöðum og þess vegna verður tíminn líka í boði á netinu. Stakur tími á netinu kostar 1500 kr. Kennt á föstudögum kl 17:15. Hafið samband ef þið viljið prófa.

Sunnuyoga haust 2024 31/10/2024

Fjögur laus pláss á morgun kl 17:15 í iRest Yoga nidra. Djúpstæð slökunaráhrif sem fleyta þér á silfurskýi inní helgina...

Sunnuyoga haust 2024 Sunnuyoga býður uppá staka tíma og námskeið á Böggvissstöðum Dalvík og á netinu. Yin Yoga á Böggvisstöðum miðvikudaga kl 17:15. iRest - yoga nidra á Böggvisstöðum föstudaga kl 17:15-18:15 iRest - yoga nidra ONLINE mánudaga kl 20:00-20:45 Námskeiðin á Böggvisstöðum henta ...

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Dalvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Dalvík
621