Golfklúbbur Borgarness

Golfklúbbur Borgarness

Share

Hamarsvöllur er 18. holu golfvöllur í Borgarnesi

Photos from Golfklúbbur Borgarness's post 05/08/2026

* Heilsársstarf vallarstjóra *

Stjórn Golfklúbbs Borgarness hefur ráðið Harald Má Stefánsson í heilsársstarf vallarstjóra! Síðustu þrjú sumur hefur Halli verið vallarstjóri hjá okkur en einungis í 50% stöðu.

"Það eru gríðarlega spennandi verkefni og tímar framundan! Mikil uppbygging hefur verið síðustu misseri hjá klúbbnum innan sem utan vallar, þar á meðal ný félagsaðstaða, nýjar brautir handan 4. brautar og nýja flötin við hlið 1. teigs. Fleiri skemmtileg verkefni eru framundan og hlakka ég til að leiða það verkefni," sagði Halli við undirritun samningsins.

"Þetta er risastórt framfararskref fyrir Golfklúbb Borgarness! Á síðasta aðalfundi lýsti stjórn því yfir að það ætti að vera skýrt markmið að ráða vallarstjóra í heilsárs starf enda mikil uppbygging framundan. Völlurinn hefur verið í frambæru standi í sumar og eiga Halli og allir okkar vallarstarfsmenn mikið hrós skilið. Með þessu skrefi verður völlurinn okkar einungis betri á komandi árum," sagði Þorkell Már formaður af sama tilefni.

Á myndunum má sjá Halla og Þorkel formann undirrita og handsala ráðningarsamninginn.

01/08/2026
14/07/2026

Kæru kylfingar.

Vegna mikillar bleytu þurfum við að banna golfbíla í dag og sennilega á morgun líka.
Það hefur rignt gríðarlega mikið síðustu daga, og þá sérstaklega síðasta sólarhring. Hamarsvöllur er mjög blautur og viðkvæmur eins og er.

Við látum vita hér um leið og við getum opnað aftur fyrir golfbílaumferð.

GB

GolfBox Tournament 13/07/2026

Vinkonumót GB þann 24. júlí á Hamarsvelli🏌️‍♀️

Skráning og nánari upplýsingar:

GolfBox Tournament

10/07/2026

Nú er næstsíðasti dagur Meistaramótsins runninn upp og því ekki úr vegi að kynna næsta GB-kylfing. Að þessu sinni er það engin önnur en Rakel María Pálmadóttir sem sest í heita stólinn.

Aldur: 14 ára (nánast)

Forgjöf: 42,6

Hvenær byrjaðir þú í golfi og af hverju?
Ég byrjaði að spila golf árið 2025, en hafði þó verið að slá bolta í nokkur ár og mætt á golfnámskeið. Pabbi og Marinó voru að byrja og drógu mig með sér á æfingasvæðið.

Í einu orði, hvernig myndirðu lýsa golfsveiflunni þinni?
Kraftmikil.

Uppáhalds kylfan í settinu:
PW.

Uppáhalds hola á Hamarsvelli og af hverju?
14. holan – mér gengur oftast vel á henni.

Síst uppáhalds hola á Hamarsvelli og af hverju?
13. holan – hún er bara flókin.

Ertu með einhverja hjátrú eða rútínu áður en þú slærð?
Ég tek eina eða tvær æfingasveiflur og læt síðan bara vaða.

Besta golfveðrið:
Logn og skýjað.

Uppáhalds golfarinn og af hverju?
Rory. Það er gaman að fylgjast með honum og hann er með mikið keppnisskap, rétt eins og ég.

Draumahollið:
Steph Curry, Vala María mágkona mín og Raggi Nat.

Við þökkum Rakel kærlega fyrir að gefa sér tíma til að svara spurningunum og óskum henni innilega góðs gengis á Meistaramóti Golfklúbbs Borgarness.⛳️

10/07/2026

* DING DING DING - Hola í höggi *

Meistaramót GB heldur áfram að gefa, annað árið í röð.

Vallarstarfsmaðurinn okkar, Davíð Freyr Bjarnason, fór holu í höggi á 12. holu í gær á öðrum degi meistaramótsins. Gefum Davíð orðið:

"Þetta var sirka 130 metra högg með 8 járni. Hitti hann perfect í smá draw. Boltinn lendir sirka 6 metra frá holu hægra megin og skoppar 2x til vinstri og stoppar síðan við flaggið. Við héldum uppá teig að hann hafi stoppað 1cm frá holu en þegar við löbbum nær greeninu þá áttum við okkur á því að hann er klemmdur við flaggið ofaní holunni. Bittersweet moment"

Við óskum Davíð innilega til hamingju með draumahöggið!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Borgarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Hamar
Borgarnes
311

Opening Hours

Monday 08:00 - 22:00
Tuesday 08:00 - 22:00
Wednesday 08:00 - 22:00
Thursday 08:00 - 22:00
Friday 08:00 - 22:00
Saturday 08:00 - 22:00
Sunday 08:00 - 22:00