Metabolic Borgarnesi

Metabolic Borgarnesi

Share

Fjölbreytt og skemmtileg hópaþjálfun í þremur erfiðleikastigum auk fjölda lokaðra námskeiða!

23/08/2026

Ertu tilbúin(n) í krefjandi viku? ⏳

Vika 3 er að hefjast! Við ætlum að lyfta þyngra, svitna meira og prófa okkur áfram með þolið. Þetta er vikan þar sem við sjáum mestu framfarirnar.

Byrjendur, ekki láta þetta hræða ykkur - þjálfararnir okkar sjá til þess að allir fái rétta áskorun! 🎯



Þú finnur allar áskriftarleiðir inná vefverslun Abler 🔗

18/08/2026

💥NÝR ÞJÁLFARI💥

Við bjóðum Guðríði Hlíf velkomna í þjálfarahópinn okkar!

✨Guðríður er stútfull af þekkingu og reynslu en hún er sjúkraþjálfari og er að klára meistaranám í Lýðheilsufræðum þar að auki.

"Ég var aldrei nein íþróttastjarna en prófaði alls konar íþróttir og hef alltaf verið í mikilli hreyfingu. Ég hef mjög gaman af allri útivist - fjallgöngur, gönguskíði, hjól og allt hitt. Ég byrjaði að stunda styrktarþjálfun á unglingsaldri og hef gert síðan"

✨Guðríður hefur verið fastagestur í salnum í rúmlega þrjú ár. Hún hefur mikla orku, glöggt auga fyrir góðri tækni og einstaklega jákvæð 🥰

Þið eruð líklegust til að hitta Guðríði í salnum snemma á morgnana eða í hádeginu 👏

16/08/2026

Vika 2 mætir á svæðið á morgun! 📈

Líkaminn þekkir æfingarnar og við gírum okkur aðeins upp. Við bætum aðeins á lóðin í lyftingum og aukum ákefðina í þol og burn tímunum. Mundu að allar æfingar má aðlaga – hvort sem þú ert ný(r) eða lengra komin(n).

Mættu tilbúin(n) í skemmtilega viku! 🔥



Þú finnur allar áskriftarleiðir í vefverslun Abler 🔗

13/08/2026

✨️ Ný verðskrá tekur gildi þann 1. september ✨️



12 mánaða binding er ný áskriftarleið hjá okkur og tilvalin fyrir þá sem vilja æfa allt árið án þess að greiða fyrir árskort í eingreiðslu 💫

Allir sem kaupa áskrift hjá okkur hafa ótakmarkaðan aðgang að öllum opnum hópatímum í tímatöflunni.

Yfir 15 tímar eru í boði yfir vikuna og hægt er að flakka á milli tímasetninga eins og hentar 💃



Hlökkum til að æfa með ykkur í vetur 🫶

12/08/2026

Nóg pláss fyrir allskonar þjálfun ✨️



Salurinn okkar er um 100fm, vel búinn lóðum og býður uppá ýmsa möguleika ✅️

Hafðu samband ef þú vilt bjóða uppá þjálfun sem passar vel við okkar hópatíma 🙏

09/08/2026

Nýtt 4 vikna tímabil hefst á morgun! 🚀

Þessi vika er sú auðveldasta í mánuðinum. Hún er fullkomin fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref en einnig mikilvæg fyrir fastagestina okkar að taka skref til baka og fínpússa tækni. Við förum vel í tækni í lyftingum og finnum taktinn í þol og snerputímum.

Engin pressa – bara góð hreyfing. Sjáumst á morgun! 💪



Þú finnur áskriftarleiðir inná vefverslun Abler 🔗

09/08/2026

TÍMATAFLAN 2026-2027 ✨



Við byrjum haustið svona 🥳

👉 Þungir Þriðjudagar og Extra Þungir Föstudagar

👉 Sveittir & Skemmtilegir Laugardagar

👉 Open Gym alla daga til kl. 22:00

👉 Endurance, Power & Burn í bland við vikuna

Ath. Nauðsynlegt er að bóka pláss í Abler í alla tíma, líka Open Gym!



Sjáumst í salnum 💃

Photos from Metabolic Borgarnesi's post 08/08/2026

Viðbót við eigendateymið! ✨️

Við kynnum Svönu Hrönn sem nýja viðbót við eigendateymi Metabolic Borgarnesi.

Svana er búin að vera iðkandi og þjálfari frá upphafi starfseminnar og við erum mjög spenntar að halda áfram uppbyggingunni í sameiningu.

Hlökkum til að takast á við skemmtileg verkefni og hvetja alla í Borgarbyggð til að hreyfa sig með okkur 👊



Bryndís & Svana 💚

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Borgarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Sólbakka 7-9
Borgarnes
310

Opening Hours

Monday 06:00 - 22:00
Tuesday 06:00 - 22:00
Wednesday 06:00 - 22:00
Thursday 06:00 - 22:00
Friday 06:00 - 22:00
Saturday 06:00 - 22:00
Sunday 06:00 - 22:00