24/06/2026
Laugardaginn 27. júní taka okkar menn á móti Hvíta Riddaranum úr Mosfellsbæ. Mun þetta vera 14. rimma liðanna, en það eru fá lið sem við höfum oftar spilað á móti en þeir. Kormákur Hvöt hefur unnið fjóra af síðustu fimm deildarleikjum liðanna, en það skiptir akkúrat engu máli þegar blásið er til leiks.
Hvíti eru í ár nýliðar í deildinni, en hafa sýnt afar góðar frammistöður, svo hér er veiðin sýnd en alls ekki gefin. Okkar menn hafa verið að hiksta undanfarið, gert tvö jafntefli í síðustu þremur leikjum eftir að hafa tekið nágrannana í Magna í kennslustund. Liðin eru með 12 (við) og 11 (þeir) stig í nágrannasætum um miðja deild.
Aðdáendasíðan óskar eftir performans hér. Við þurfum að rísa upp og gera vígið aftur að okkar. Heimavöllurinn skiptir miklu máli og framundan eru margir leikir þar.
Mætum galvösk og tryggjum þrjú stig takk.
23/06/2026
Þau okkar sem eru miklu eldri munum eftir David "supersub" Fairclough og Ronny Rosenthal hjá Liverpool. Þeir áttu það til oft til að koma inn á og skora, sem er ákaflega góður kostur að hafa í liði.
Þegar 2. deildin er skoðuð til að finna þessa menn - fáar mínútur spilaðar, en skilandi mörkum, þá setti tölfræðiteymið þá kríteríu að þeir þurfa að hafa skorað minnst tvö mörk í sumar. Svo var filterinn settur á og sá leikmaður hvers liðs sem átti fæstar mínútur á bak við mörkin fundinn.
Listinn er áhugaverður. Af þeim 10 efstu í deildinni eru sjö undir 20 ára aldri. Það er kannski eðlilegt, þar sem ungir menn fá mínútu hér og aðra þar, skila marki og marki.
Bestur í allri deildinni þegar kemur að þessu tölfræðisetti er okkar eigin Haukur Ingi Ólafsson. Hann er búinn að skora tvö mörk í sumar en aðeins tekið í það 53 mínútur. Það þýðir að hann skorar mark á 26 mínútna fresti sirka.
Næstur á lista er markamaskína að austan, Marc Espi, sem hefur kannski ekki klukkað margar mínútur, en skorað að jafnaði í hverjum leik og það á sirka 54 mínútna fresti.
Kári frá Akranesi eiga næstu tvo menn, sem sýnir okkur þessa endalausu framleiðslulínu á Skaganum, Benedikt Ísar og Máni Berg þar á ferð, Þróttur Vogum, KFG og Haukar eiga næstu, en svo er það Atli Þór Sindrason sem við könnumst vel við. Hann er með þrjú mörk a 570 mínútum (10x fleiri spilmínútur en efsti maður á lista). Síðustu tveir menn koma svo frá Fjölni og Hvíta Riddaranum.
Skemmtilegt þetta og nýtni Hauks Inga til stórbrotinnar fyrirmyndar!
Frekari upplýsingar um aðferðafræði og niðurstöður veitir Aðdáendasíðan í einkaskilaboðum.
21/06/2026
Jæja, hér koma mörkin frá í gær. Fyrst var það Hlib sem lúrði á fjærstönginni og setti inn eftir stoðsendingu frá Bilal. Svo þegar leikurinn var að klárast kom Fabian með gullsendingu á Hauk Inga sem gerði vel í hlaupi og setti framhjá markmanninum.
Í uppbótartíma átti svo Fabian skot í slá, sem við sýnum ekki hér, til þess að við gleðjumst yfir þeim mörkum sem fóru inn!
20/06/2026
Þá er leik lokið á Neskaupstað, þar sem okkar menn lentu 2-0 undir en náðu með harðfylgi að jafna metin og settu svo tuðruna í þverslá í lokin.
Tökum þetta stig úr mestu langferð tímabilsins og höldum heim á leið.
Myndavélar austfirðinga sviku okkur sem komumst ekki á völlinn, svo ekki er hægt að sýna ykkur mörkin frá Hlib og Hauk Inga!
Heimaleikur gegn Hvíta næstu helgi, go go go!
18/06/2026
Laugardagurinn er sá 20. sem rennur upp í júní og klukkan 14:00 eigast lið Knattspyrnufélags Austfjarða og Kormáks Hvatar við á Neskaupstað við Norðfjörð. Þangað eru aðeins rétt rúmir 400 kílómetrar að renna, svo hvetjum við alla aðdáendur til að rúlla við.
Þeirra lið er sjálfsagt í sárum, enda búið að fá á sig sigurmörk í tveimur uppbótartímum í röð. Við erum með blóð á tönnum eftir sáran sigur þar sem við eigum ekki að tapa - á heimavelli í síðasta leik.
Talandi um heimavelli, má minnast á að síðasti leikur liðanna fór 5-1 fyrir okkur á heimavelli í júlí í fyrra. Þá var nú gaman að vera til (sjá mynd).
Áfram stolt Húnaþings, allra þess íbúa og bæjarfélaga! Náum í sæt þrjú stig á Austfirði!
15/06/2026
Í nútímaheimi tölfræði og greininga er hægt að finna margt. Eitt af því er fótboltatölfræði í 2. deild karla, en í dag beinum við augum að markvörslu.
Samkvæmt tölfræðihítinni Spiideo eru eru markmenn deildarinnar að verja 3,3 skot í leik, þegar þriðjungi var lokið af mótinu. Til að setja það í samhengi þá berast markmönnum að meðaltali 5,6 skot að hönskum per leik, annað er blokkað af vörn, fer í stangir eða er úr vítum (sem er víst ekki talið með). Einhver skot gufa upp samkvæmt Spiideo, en látum þau liggja á milli hluta.
Sterkar varnir hleypa skotum ekki alla leið til markmanns, sem eru þá með hlutfallslega litla markvörslu. Dæmi um það eru lið Hauka og Þróttar Vogum. Kormákur Hvöt er með sterka og vel spilandi vörn, en Uros er svo sannarlega að fá sitt að díla við. Ekkert lið er að hleypa jafn mörgum skotum til markmanns og Kormákur Hvöt, 6.7 skot þarf Uros að éta per leik þar sem deildarmeðaltal er 5.6. Uros er með 4.8 skot að meðaltali varin, sem er rétt á undan markmanni Hvíta Riddarans með 4.7, en í settið vantar leik okkar gegn Selfossi þar sem heimamenn (þeir) klúðruðu upptökunni og þar með tölfræðiheimtum.
Uros er að verja 73% af öllu sem kemur á markið, sem er skrambi gott. Meðaltal allra markmanna í deildinni er 60%, svo tölurnar hleypa stoðum undir að við séum með deildarinnar besta markmann. Til að toppa þetta þá hefur enginn markmaður varið jafn mörg skot í einum leik og Uros gerði í fyrstu umferð gegn Dalvík, þegar hann varði heil átta skot í þeim fræga draugamarksleik.
Lið Kormáks Hvatar og Hvíta Riddarans virðast vera í nokkrum sérflokki þegar kemur að markmönnum, þar sem þeirra er rétt við Uros í flestum tölfræðiþáttum. Liðin tvö eru þau sem hafa fengið á sig fæst mörk, svo áhorfendur geta eflaust beðið spenntir ef því að liðin geri 0-0 jafntefli í leik sínum nú í lok júní!
Áfram Uros og áfram Kormákur Hvöt!
14/06/2026
Í dag eru 344 dagar frá því að Kormákur Hvöt fékk síðast á sig þrjú mörk í deildarleik. Við sem fylgjumst með liðinu erum bara ekki vön því að fá á okkur þetta magn af mörkum, sérstaklega núna í sumar þar sem liðið er búið að vera svo þétt fyrir og skartað bestu vörn deildarinnar.
Þetta tap svíður. Ekkert endilega af því að það hafi verið eitthvað brjálæðislega ósanngjarnt. Frekar af því að við erum búin að vera að horfa á svo hrikalega góða leiki undanfarið og með sigri í dag þá hefðum við verið komnir í 2. sæti deildarinnar!
En hver leikur á sitt líf, og þessi fór eins og hann fór. Hann er búinn og næsti leikur er erfiður útileikur á Norðfirði. Þangað sækjum við heim Austfirðinga, sem eru búnir að fá á sig sigurmark í uppbótartíma í tveimur leikjum í röð.
Er ekki kjörið að gera það þrjá í röð? Eða bara klára leikinn enn fyrr?
Áfram Kormákur Hvöt!
13/06/2026
Áfram heldur fjörið og nú koma Garðbæingar úr KFG í heimsókn á sunnudaginn, beint eftir að Smábæjarleikarnir hafa sparkað í sinn síðasta bolta þetta árið.
Liðin hafa margoft att kappi og skemmtilegt er frá því að segja að allra fyrsti deildarleikur Kormáks Hvatar var einmitt á móti þeirra liði, sem reyndar hét Skínandi í þá daga.
Okkar menn hafa unnið síðustu tvo leiki liðanna fyrir norðan, í fyrra tókum við þá 3-1 undir lok leiktíðar, þar sem okkar menn sýndu þann skínandi fótbolta sem hefur haldið áfram á þessu tímabili. Leikurinn er fjórði heimaleikurinn á þessu ári, en hinir hafa allir unnist. Því ætlum við að halda áfram og við spáum 4-1 sigri Kormáks Hvatar!
Sjoppan opin, samlokur og súkkulaði!
Leikurinn í beinni í Livey með verðlaunaþulum KormákurHvöt TV og í dag er það Hafþór Laursen sem er á mæknum - sjá í kommentum!
12/06/2026
Fréttaritari Aðdáendasíðunnar átti spjall við gervigreindina í gærkvöldi, þar sem báðum lá talsvert á hjarta varðandi gengi liðsins þessa dagana. Lið Kormáks Hvatar hefur vakið verðskuldaða athygli og þykja liðsmenn Dom Furness vera að spila einn besta boltann í deildinni í ár. Í síðasta leik stöðvuðum við Hauka-hraðlestina, sem hafði unnið fimm leiki í röð áður en náðu í eitt stig gegn norðanmönnum á sínum milljarða-heimavelli í Hafnarfirði undir lok leiks.
Gervigreindin, sem kaus að láta kalla sig Greini-Gunnar (no joke) í viðtalinu, byrjaði á að fara yfir leikinn gegn KFG sem verður spilaður á Blönduósvelli klukkan 16:00 á sunnudaginn.
Greini-Gunnar: "Þetta verður áhugaverður leikur. Ég á von á frekar jöfnum fyrri hálfleik þar sem Kormákur/Hvöt reynir að keyra upp tempóið og nýta heimavöllinn, á meðan KFG leitast við að stjórna leiknum betur. Fyrsta markið gæti ráðið miklu. Ég hallast örlítið að 2–1 sigri Kormáks/Hvatar, en jafntefli er líka mjög raunhæft."
Aðspurð hvort hún telji hinn sjóðheita Pere Belmonte líklegan til áframhaldandi afreka, þá útilokaði Gunnar það ekki. "Já, jú, hann er í frábæru formi og byrjar leiki sterkt. Hins vegar er erfitt að skora fyrsta mark leiksins í fjórum leikjum í röð – varnir fara að taka meira tillit til hans. Ég tel líklegt að hann skori aftur, en ekki endilega fyrsta markið í þessum leik."
Gunnar hélt áfram og beindi sjónum að vörninni: "Það er lýðnum ljóst að vörn Kormáks Hvatar er ekki síður ástæða fyrir góðum árangri í sumar. Þar eru menn að spila sérlega vel og leikmenn eru að allir að hafa raunveruleg áhrif á leiki. Þeir leikmenn sem eru þar á rúmi eru að mynda vegg fyrir framan markið og andstæðingurinn þarf að plana sérstaklega hvernig á að brjóta þá á bak aftur", sagði Gunnar og hélt svo áfram, "Uros Ðuric í markinu er svo sennilega í formi lífs síns. Markverðir ná oft toppformi seinna en aðrir leikmenn og það sem einkennir hann núna er stöðugleiki, góð staðsetning og mikilvæg stór augnablik. Hann virðist vera í sínu besta jafnvægi sem markvörður og er búinn að bjarga oft þegar ágjafar var von".
Að lokum vék hann að Trausta Þorgilssyni, sem að öðrum ólöstuðum hefur komið einna mest á óvart með sérstaklega þroskuðum frammistöðum í sumar, aðeins seytján ára gamall. "Flestir ungir leikmenn eru annað hvort varfærnir eða óstöðugir. Trausti virðist vera í hópi þeirra sem eru „advanced for their age“ og er hvorki varfærinn né óstöðugur. Alltaf klár."
Að spá um framtíðina er oft snúið, þar sem framtíðin er í eðli sínu ókomin. Greini-Gunnar sagði þó að það sem myndi ráða úrslitum væri þrennt. Hvort liðið myndi skora fyrsta markið og hvort hvernig Kormákur/Hvöt nýtti heimavöllinn, ásamt því hvort KFG næði að stjórna tempóinu.
Svo mörg voru þau gervigreindar-orð.
Mætið á völlinn!