08/07/2026
Þrjú brautarmet í Dyrfjallahlaupinu - Austurfrétt
Brautarmet voru sett í þremur flokkum í Dyrfjallahlaupinu sem fram fór á Borgarfirði á laugardag. Alls tóku rúmlega 200 manns þátt í þeim þremur vegalengdum sem í boði voru í hlaupinu.
06/07/2026
Takk takk takk, þið öll sem hlupuð og fylgdust með okkur í ár!
Dagurinn var fullkominn, brautarmetin hríðféllu, sólin skein seinni part hlaups og krakkahlaupið vakti ótrúlega mikla lukku.
Við erum búin að skila inn úrslitum til ITRA og bíðum spennt eftir stigaskori.
Sjáumst aftur að ári í 10 ára afmæli Dyrfjallahlaupsins 🎉
📷: Kjartan Óli Ingólfsson
03/07/2026
Við verðum í Fjarðarborg í dag frá kl 14:00 með glæný og sjóðandi heit rásnúmer og volgt kaffi. Þar er svo opið fram eftir kvöldi og jafnvel fram á nótt ef það liggur vel á vertunum.
02/07/2026
Hér er brotið blað í sögu utanvegahlaupa á Íslandi. Það verður hægt að horfa á Dyrfjallahlaupið í beinu stuðstreymi í boði Orkusölunnar á Vísi kl 10:30 á laugardaginn.
Hlökkum til að sjá ykkur þar í stuði ⚡️
Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum - Vísir
Dyrfjallahlaupið fer fram laugardaginn 4.júlí næstkomandi á Borgarfirði eystri. Hlaupið hefur notið gríðarlegra vinsælda meðal hlaupara, þá einkum og sér í lagi vegna stórbrotinnar náttúrufegurðar.
02/07/2026
Við erum búin að senda upplýsingapósta á alla þátttakendur með upplýsingum um fyrirkomulag daginn fyrir hlaup og á hlaupdegi.
Ef þið eruð að koma og hlaupa og sjáið ekki þá pósta þá megið þið endilega láta okkur vita í athugasemd hérna fyrir neðan eða senda á okkur skilaboð með netfangi hjá ykkur.
29/06/2026
Tvær viðbætur við dagskrá helgarinnar 🗓️
50 km verður startað í tveimur ráshópum og Krakkahlaupið verður kl 13:00.