15/05/2026
Dartung 3.umferð fer fram í okkar aðstöðu á morgun, laugardag.
Það verða tæplega 50 krakkar og unglingar sem mæta til leiks og ljóst að það verður mikið fjör í aðstöðunni.
Dartung er mótaröð fyrir krakka og unglinga á aldrinum 9-18 ára. Keppt er í drengja og stúlkna flokki, 9-13 ára og 14-18 ára.
Dagskrá morgundagsins:
-Aðstaðan opnar kl 09:00
-Keppni hefst kl 10:00 hjá drengjum og stúlkum 14-18 ára ásamt stúlkum 9-13 ára.
-Keppni hefst kl 13:30 hjá drengjum 9-13 ára.
Biðjum keppendur að mæta til leiks a.m.k 45 mínútum áður en keppni hefst.
14 krakkar, 12 strákar og 2 stelpur eru skráð til leiks frá Píludeild Þórs!
Sjáumst á morgun og gangi öllum vel 🎯
Dartung 3. umferð - Dagskrá - ÍPS - Dart.is Hér að neðan má sjá uppsetta dagskrá en við biðjum þáttakendur að mæta 45 mínútum fyrir setta leiki.