01/09/2026
TREYJUDAGUR
Eins og sagt hefur verið frá hér á vefnum og víðar stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein að Treyjudeginum föstudaginn 4. september. Liðin í Bestu deildinni lögðu sitt af mörkum í leikjum liðinnar heglar og stelpurnar í U16 hópnum okkar mættu í sínum uppáhaldstreyjum á æfingu í gær.
https://www.thorka.is/is/moya/news/u16-treyjuaefing-i-tilefni-treyjudagsins
01/09/2026
Tökum þátt í Treyjudeginum - en ekki bara taka þátt því þú getur farið inn á treyjudagur.is og styrkt félagið Börn með krabbamein.
Þann 4. september klæðumst við treyju fyrir Bríeti Klöru og fyrir öll börn sem greinast með krabbamein á Íslandi á ári hverju.
Bríet Klara greindist með sjaldgæft krabbamein aðeins 14 ára gömul. Hún lauk meðferð nú í vor, rúmu ári síðar.
Á meðan jafnaldrar hennar voru að upplifa stóru stundirnar sem fylgja unglingsárunum stóð Bríet Klara í ströngu, en hefur mætt áskoruninni af hugrekki alla leið. Bríet Klara er ein af þeim sem við hjá Börnum með krabbamein höfum staðið við bakið á í gegnum krefjandi vegferð.
https://treyjudagur.is/
30/08/2026
TAP SYÐRA, SIGUR HEIMA
A1 liðið okkar í U16, A-deild, lotu 3, sótti Breiðablik heim í gær og höfðu Blikar betur, 3-1. í dag tók svo U20 liðið okkar á móti Haukum og vann 6-1. Þar skoraði Birgitta Rún Finnbogadóttir þrennu.
30/08/2026
Markalaust jafntefli, treyjudagurinn og spenna fram undan eftir úrslit í leikjum 18. umferðarinnar.
Meira á thorka.is - https://www.thorka.is/is/moya/news/besta-deildin-markalaust-jafntefli-og-barattan-hardnar
29/08/2026
HÓPURINN Í DAG
Óbreytt frá síðasta leik. Sama byrjunarlið og í síðasta leik okkar. Sjáumst í Laugardalnum kl. 16.