26/08/2026
Á föstudaginn verður opið hús fyrir lækna og sjúkraþjálfara á svæðinu. Hlökkum til að sjá sem flesta, sýna ykkur aðstöðuna og taka léttan púls á kollegum og doksum.
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfunarstofa staðsett á annarri hæð á Tryggvabraut 22, 600 Akureyri
26/08/2026
Á föstudaginn verður opið hús fyrir lækna og sjúkraþjálfara á svæðinu. Hlökkum til að sjá sem flesta, sýna ykkur aðstöðuna og taka léttan púls á kollegum og doksum.
Hóptímar fyrir fyrstu skrefin eftir bakverk.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl 10.15
Heimaæfingar
Skjótum niður hreyfiforðun.
Markviss uppbygging
Skráning
[email protected]
07/08/2026
Þá er yfirhalningunni loksins lokið hjá okkur og við erum tilbúnir að TAKA Á MÓTI NÝJUM HEPPNUM SJÚKRAÞJÁLFARA til liðs við okkur.
Við vorum að bæta við okkur glæsilegum 140fm æfingasal, biðstofan, meðferðarrýmin og starfsmannaaðstaðan tekin í nefið.
Meðferðarrýmin eru rúm og björt, kaffiaðstaðan flekklaus.. og félagsskapurinn!?.. maður minn!! .. hann er úr efstu hillunni (hlutlaust mat) og ofan á allt lekur bókstaflega fagmennskan af öllum veggjum.
Hér eru allir sjúkraþjálfarar konungar og drottningar í sínu ríki því fermetrafjöldin og æfingabúnaðurinn er svo yfirdrifinn.
Ef að þú trúir þessu ekki skaltu endilega hafa samband, kíkja í heimsókn, sjón er sögu ríkari.
[email protected]
24/07/2026
Komdu, tökum túrinn samann.
Allt nýtt, allt yndislegt.
16/07/2026
Síðasti póstur var því miður helber lygi þar sem það voru engar myndir af mönnum að vinna eða benda og við biðjum velvirðingar á því. Hérna eru nokkrar myndir af undirbúningnum á æfingarsalnum. Og svo smá sneak peak
Af því sem koma skal, því við hættum ekki þegar salurinn var klár.
10/07/2026
Já það er ýmislegt búið að brasa síðan í apríl þegar við fengum restina af annarri hæðinni. Setjum inn nokkrar bras myndir og af mönnum í vinnu og af mönnum að benda.
Stefán og Mummi eru í sumarfríi núna en Reynir stendur vaktina grjótharður.
Tímapantanir [email protected]
hóptímarnir hjá Mumma eru
þriðjudaga og fimmtudaga 09.00 og 13.00
Skráning og fyrirspurnir
[email protected]
25/02/2026
Við erum með laust í sjúkraþjálfun næstu daga, þú kemst fljótt að. Til að panta tíma skaltu senda tölvupóst á [email protected]
Sjáumst hress ;)
31/08/2025
Reynir Zoëga hefur störf hjá Norður sjúkraþjálfun á morgun mánudaginn 1.september. 👌👌
Við erum hrikalega spenntir að fá þennann mikla meistara til liðs við okkur. Koma Reynis gefur okkur náttúrlega færi á að stytta biðtímann í sjúkraþjálfun.
Sendu póst á [email protected] til að fá tíma í sjúkraþjálfun 👍
05/09/2024
| Monday | 08:00 - 17:00 |
| Tuesday | 08:00 - 17:00 |
| Wednesday | 08:00 - 17:00 |
| Thursday | 08:00 - 17:00 |
| Friday | 15:00 - 15:00 |