13/08/2026
Við erum að stækka þjálfarateymið hjá TFW Akureyri 💪
Við leitum að **styrktarþjálfara** sem hefur áhuga á að vinna með ungu og metnaðarfullu íþróttafólki í handbolta, fótbolta og skíðum.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi verkefni og **möguleiki er að taka að sér allt verkefnið eða hluta þess.**
👉 Langar þig að vita meira?
Nánari upplýsingar um starfið:
**[www.tfwakureyri.is](http://www.tfwakureyri.is)**
Eða sendu okkur línu á:
📩 **[[email protected]](mailto:[email protected])**
Þekkir þú einhvern sem gæti passað vel inn í teymið okkar? Endilega sendu þetta áfram eða merktu viðkomandi 👊
10/08/2026
💪 Warrior Júlí Mánaðar🔥
Inga Bryndis Arnadottir
Inga er þeim kostum gædd að hún gefur rosalega mikla orku og gleði frá sér og nær að smita það í alla í kringum sig.
Hún reglulega biður um hjálp og vill virkilega læra meira hvernig á að gera æfingarnar sem við erum að gera .
Óskum Ingu innilega til hamingju með flottan árangur og hlökkum til að sjá hana halda áfram að bæta sig🔥
11/07/2026
❗️UPPSELT - BIÐLISTI ❗️
Nú eru öll 16 plássin farin en endilega skrá sig á biðlista, því það er aldrei að vita nema það losni pláss.
07/07/2026
Föngulegur hópur nemanda í TFW Akureyri skellti sér í Akureyrarhlaup síðastliðinn fimmtudag.
💪💛🖤
„Ef þú vilt fara hratt, farðu þá einn. Ef þú vilt komast langt, farið þá saman.“
27/06/2026
Warrior júní mánaðar Guðný Björk Jónsdóttir
Guðný Björk warrior mánaðarins er virkilega dugleg , hvetjandi , ákveðin og annt um aðra. Á sama tíma og hún vinnur í að styrkja og efla sjálfa sig þá langar henni rosalega að öðrum gangi vel og hvetur alla áfram.
Hjálpið okkur að óska henni til hamingju með frábæran árangur í líkamlegum og andlegum styrk og að ráðast á hindranir og tækla þær 💪
03/06/2026
Warrior mánaðarins Maí 💪
Laufey er frábær æfingar félagi og hard duglegur warrior. Með því að hafa sett sig í fyrsta sæti getur Laufey hjálpað öðrum. Hún bætir sig á sama tíma og hún er góð í að bæta aðra.
Drífandi , lífsglöð , aðstoðar og hjálpar öðrum , jákvæð og henni finnst ótrúlega gaman .
Síðustu 18 mánuði hefur Laufey misst rúm 40 kg og styrkt sig helling gæði andlega og líkamlega 💪
Endilega hjálpið okkur að óska henni til hamingju