Skautafélag Akureyrar Íshokkí

Skautafélag Akureyrar Íshokkí

Share

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar er deild innan Skautafélags Akureyrar sem stofnað var ári?

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar semur við Emil Alengård 16/06/2026

Emil Alengård ✍️

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 2026–2027.

Emil kemur til SA frá Fjölni þar sem hann hefur starfað sem yfirþjálfari undanfarin ár og náð framúrskarandi árangri. Undir hans stjórn varð meistaraflokkur kvenna Íslandsmeistari árin 2024 og 2025 auk þess sem hann hefur komið að uppbyggingu yngri flokka félagsins og þróun leikmanna á öllum aldri. Áður en hann kom til Íslands starfaði hann hjá sænska stórliðinu AIK þar sem hann þjálfaði U18 og U20 lið félagsins auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í Allsvenskan.

Emil er af mörgum talinn fremsti íshokkíleikmaður sem Ísland hefur alið. Hann lék stærstan hluta ferils síns í Svíþjóð auk þess að leika háskólahokkí í Bandaríkjunum og færir SA einstaka reynslu bæði sem leikmaður og þjálfari.

„Ráðning Emils er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu íshokkístarfs SA. Markmiðið er að styrkja enn frekar þróun ungra leikmanna, efla tengingu milli yngri flokka og meistaraflokka og byggja áfram á þeirri sterku menningu sem einkennt hefur starf félagsins undanfarin ár,“ segir Beta, formaður íshokkídeildar SA.

Við bjóðum Emil og fjölskyldu hans hjartanlega velkomin til Akureyrar og hlökkum til samstarfsins á komandi tímabili.

Velkominn í SA Emil 🤝

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar semur við Emil Alengård Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 20

11/06/2026

Hokkí fyrir alla. ❤️🏒

Sunna Björgvinsdóttir komin heim í SA 27/05/2026

Sunna Björgvinsdóttir ✍️

Sunna skrifaði undir samning við félagið í dag og snýr aftur til SA eftir frábærn feril í Svíþjóð þar sem hún hefur verið meðal fremstu leikmanna NDHL-deildarinnar.

Hún mun styrkja meistaraflokk kvenna á komandi tímabili og samhliða því taka við sem aðalþjálfari U16 hjá félaginu.

Velkomin heim Sunna 🤝

Sunna Björgvinsdóttir komin heim í SA SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag

Artís Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum 20/05/2026

Kærar þakkir til Artis Tannlæknastofu fyrir stuðninginn 🤝

Artís Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða ke

Ný stjórn kosin á aðalfundi íshokkídeildar 13/05/2026

Fréttir af aðalfundi íshokkídeildarinnar á heimasíðunni.

Ný stjórn kosin á aðalfundi íshokkídeildar Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fór fram í félagssal Skautahallarinnar á mánudagskvöld. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á m

Aðalfundir íshokkídeildar, listskautadeildar og krulludeildar dagana 11.-13. maí 06/05/2026

Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar mánudaginn 11. maí í félagssalnum í Skautahöllinni. Við hvetjum félagsmenn til að mæta og taka þátt í starfinu.

Aðalfundir íshokkídeildar, listskautadeildar og krulludeildar dagana 11.-13. maí Skautafélaga Akureyrar boðar til aðalfunda allra deilda félagsins dagana 11.-13. maí í félagssal Skautahallarinnar. Tímasetningar aðalfunda deilda:

SA liðin unnu Íslandsmeistaratitlana í U14 28/04/2026

U14 liðin okkar tryggðu sér báða Íslandsmeistaratitlana í flokknum um helgina. 💪🏆

SA liðin unnu Íslandsmeistaratitlana í U14 Skautafélag Akureyrar tryggði sér báða Íslandsmeistaratitlana U14 liða um helgina á síðasta helgarmóti tímabilsins sem fór fram á Akureyri. AAA liðið, SA V

SA Jötnar Íslandsmeistarar í U18 16/04/2026

SA Jötnarnir okkar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í U18 um helgina. 💪🏆

SA Jötnar Íslandsmeistarar í U18 SA Jötnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í U18 um helgina með 10-2 sigri á Fjölni og 6-4 sigri á SR. Jötnar hafa þar með unnið 9 af 11 leikjum sínum í

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Naustavegi 1
Akureyri
600