23/08/2026
Endum riðlakeppninni með 5-4 tapi gegn Kríu.
Nú er allur fókusinn settur á úrslitakeppnina næstu helgi!
Við höldum áfram!🖤💛
Hamrarnir eru íþróttalið frá Akureyri sem stofnað var árið 2005. Instagram: hamrarnir_fotbolti
23/08/2026
Endum riðlakeppninni með 5-4 tapi gegn Kríu.
Nú er allur fókusinn settur á úrslitakeppnina næstu helgi!
Við höldum áfram!🖤💛
22/08/2026
LEIKDAGUR!
Strákarnir ferðast suður í síðasta leik 5. deildar í B riðlinum.
📅 Sunnudagur 23. ágúst
⏰ 14:00
📍 Vivaldivöllurinn
Við höldum áfram!
ÁFRAM HAMRARNIR! 🖤💛
21/08/2026
FÉLAGASKIPTAGLUGGINN LOKAÐUR!
Félagaskiptaglugginn lokaði þann 29. júlí og getum við verið gríðarlega ánægðir með hvernig til tókst. Við höfum styrkt hópinn okkar verulega fyrir þetta tímabil og fengið til liðs við okkur marga flotta leikmenn – bæði leikmenn sem koma með mikla reynslu inn í hópinn, sem og unga og efnilega leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér.
Við erum með sterkan, breiðan og metnaðarfullan hóp sem er tilbúinn að gefa allt fyrir svörtu og gulu treyjuna. 💪🖤💛
Hér eru leikmennirnir sem hafa gengið til liðs við Hamrana í vetur og sumar: 👉🏻
Velkomnir í Hamrana! 🖤💛
Áfram Hamrarnir!
19/08/2026
SÍÐASTI LEIKURINN Í DEILDINNI!
Eftir langt og krefjandi deildartímabil er komið að lokaleiknum.⚽️
Kría🆚Hamrarnir
📅 23. ágúst
⏰ 14:00
📍 Vivaldivöllurinn
Við höfum þegar tryggt okkur 1. sætið í riðlinum og sæti í úrslitakeppninni um sæti í 4. deildinni. En áður en við snúum okkur að næsta verkefni er einn leikur eftir.
Við ætlum að klára deildina með stæl, gefa allt í síðustu 90 mínúturnar og halda áfram að byggja upp það sem fram undan er. 🔥
Við höldum áfram!
ÁFRAM HAMRARNIR!🖤💛
17/08/2026
Úrslit helgarinnar!
4-1 sigur á KB.
Mörk:
Gunnþór B. ⚽️
Sjálfsmark.⚽️
Kexi. ⚽️
Tómas E. ⚽️
Næsti leikur verður útileikur við Kríu, svo tekur úrslitakeppnin við!
Við höldum áfram!🖤💛
14/08/2026
Leikdagur!
Við fáum KB í heimsókn á Greifavöllinn í næst síðasta leik okkar í deildinni!
HAMRARNIR🆚KB
⏰15:00
📍Greifavöllurinn
Nú er komið að því að halda áfram að byggja upp góðan leik, halda einbeitingunni og mæta tilbúnir í það sem fram undan er!
Við höldum áfram🖤💛
ÁFRAM HAMRARNIR!
12/08/2026
NÆSTI LEIKUR!
Við höfum nú þegar tryggt okkur 1. sætið í riðlinum og þar með sæti í úrslitakeppninni um sæti í 4. deildinni!
En tímabilið er langt frá því búið. Nú tekur við leikur gegn KB þar sem við ætlum að halda áfram að byggja upp góðan undirbúning fyrir það sem fram undan er.
📅 Laugardagur 15. ágúst
⏰ 15:00
📍 Greifavöllurinn
Komum saman, njótum dagsins og styðjum strákana áfram! 🖤💛
Við höldum áfram. Við erum rétt að byrja.
ÁFRAM HAMRARNIR! 🖤💛
09/08/2026
🖤💛 ÞVÍLÍKUR ENDIR! 💛🖤
RB 2–3 HAMRARNIR
Við byrjuðum leikinn af krafti og komumst yfir strax á 5. mínútu þegar Kári Gunnarsson skoraði frábært mark og kom okkur í 1–0.
RB jafnaði á 25. mínútu og staðan var 1–1 í hálfleik.
Við héldum áfram að skapa okkur fullt af færum í seinni hálfleik og á 58. mínútu kom markið sem við höfðum verið að leita að.
Agnar Tumi Arnarsson kom okkur aftur yfir og staðan orðin 2–1.
Þegar um 20 mínútur voru eftir varð verkefnið enn erfiðara. 🟥
Við urðum einum manni færri en létum það ekki stoppa okkur.
RB náði að jafna í 2–2 og allt stefndi í æsispennandi lokamínútur.
En við vorum ekki búnir.
⏱️ Ein mínúta eftir.
Við fengum aðra hornspyrnu.
Gunnar Þórir tekur hornið.
Boltinn fer inn í teiginn.
Gunnþór Andri Björnsson reis hæst og skallaði boltann í netið!
3–2! ⚽️
Sigurmark á lokamínútunni, einum manni færri.
Þetta var ekki bara sigur.
Þetta var karakter. Barátta. Trú.
Við höldum áfram!
3 stig heim!
ÁFRAM HAMRARNIR! 🖤💛