Fimleikadeild KA

Fimleikadeild KA

Share

Gymnastic club in Akureyri, Iceland. Með tilkomu nýrrar aðstöðu til fimleikaiðkunnar tvöfaldaðist iðkendafjöldi félagsins á skömmum tíma og fór í 800 iðkendur.

Fimleikafélag Akureyrar var stofnað árið 2004, undanfari félagsins var Fimleikaráð Akureyrar. í desember 2024 sameinaðist félagið KA (Fimleikadeild KA). Fim.KA hefur aðsetur í íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla, en þar er að finna sérútbúinn fimleikasal sem tekin var í notkun haustið 2010. Áður hafði félagið æfingaaðstöðu í Íþróttahúsi Glerárskóla. Haustið 2024 voru rúmlega 400 iðkendur skráðir hj

14/08/2026

Í byrjun ágúst hélt hópur af fimleikastelpum (úr H1, H2 og H3) úr Fimleikadeild KA ásamt þjálfurum til Ollerup í Danmörku þar sem þær fengu einstakt tækifæri til að æfa, læra og upplifa alvöru fimleikaævintýri.

Ollerup er einn þekktasti staður í heimi þegar kemur að fimleikum og ferðin gaf stelpunum tækifæri til að æfa við frábærar aðstæður, læra nýja hluti og kynnast öðrum fimleikastelpum. Dagar voru þéttir af æfingum, áskorunum, hlátri og samveru – og urðu til ótal góðar minningar á leiðinni.

Stelpurnar fengu að kynnast nýju æfingaumhverfi og upplifa þann sterka samfélagsanda sem einkennir fimleikana.

Knattspyrnufélag Akureyrar 11/08/2026

Höfum opnað fyrir skráningu í krílahópana okkar vinsælu !
Skráning fer fram í gegnum abler.
https://www.abler.io/shop/ka/fimleikar

Knattspyrnufélag Akureyrar KA býður upp á fjölbreyttar æfingar fyrir hressa krakka í fótbolta, handbolta, blaki, júdó, lyftingum og fimleikum. Það er alltaf í boði að koma og prófa og hvetjum við ykkur eindregið til að prófa sem flestar greinar hjá KA.

05/06/2026

Við leitum af hópfimleikaþjálfurum til þess að bætast við frábæra þjálfara teymið okkar !

Photos from Fimleikadeild KA's post 04/05/2026

Þann 25. apríl síðastliðinn fóru elstu iðkendur okkar á Vormót eldri flokka.

Alls kepptu fyrir hönd KA fjögur lið í þremur flokkum.

Bæði lið í 1.flokki/meistaraflokk (H1) komust á verðlaunapall í stökkfimi; KA gular enduðu í 2. sæti og KA bláar í 3. sæti.

2. flokkur (H2) hafnaði í 4. sæti og 3. flokkur (H3) í 5. sæti.

Frammistaða liðanna var félaginu til mikils sóma og sýndu iðkendurnir bæði mikinn metnað, góða liðsheild og baráttuvilja á mótinu. Vegna mikilla breytinga hjá félaginu á undanförnum misserum viljum við sérstaklega hrósa iðkendum og þjálfurum deildarinnar, ásamt þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við að byggja upp öflugt starf á ný.

Sjá : https://www.ka.is/fimleikar/frettir/frabaert-arangur-a-vormoti-eldri-flokka

Photos from Fimleikadeild KA's post 04/05/2026

Yngri flokkarnir okkar – 5. flokkur, KKY og 4. flokkur – sóttu Fimleikafélagið Gerplu heim um helgina.
Þar sem Iceland Classic í hópfimleikum var haldið í fyrsta sinn 🤸‍♀️

Helgin einkenndist af frábærum framförum, mikilli seiglu og sterkri liðsheild 💙 Iðkendur hafa tekist á við miklar breytingar undanfarið og það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu vel þau hafa nýtt tækifærið til að vaxa, bæði sem einstaklingar og lið.

💙 4. flokkur Bláar – unnu gull í fjölþraut, ásamt gullverðlaunum á trampólíni og dýnu 🥇
💛 4. flokkur Gular – tryggði sér 4 sætið á mótinu. Stelpurnar stóðu sig ótrúlega vel, sýndu mikinn styrk og samheldni og eiga fullt hrós skilið fyrir frammistöðuna.
💙 5. flokkur – enduðu í 3. sæti í heildina og fengu verðlaun fyrir sitt besta áhald, trampólín 🥉
💙 KKY – hafnaði í 3. sæti á gólfi, trampólíni og dýnu 🥉

Við erum gríðarlega stolt af öllum iðkendunum okkar og þjálfurum – vinnusemi, gleði og liðsheild skín í gegn 💙💛

Umsjónarmaður yfir FIM-leikjaskóla 2026 14/04/2026

Okkur vantar umsjónarmann til að hafa yfirumsjón yfir FIM-leikjaskólanum okkar vinsæla í sumar !

Umsjónarmaður yfir FIM-leikjaskóla 2026 Fimleikadeild KA auglýsir eftir umsjónarmanni til að hafa yfirumsjón yfir fimleikjaskólanum okkar vinsæla sem haldin er í júní fyrir krakka á aldrinum 6 -

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Akureyri