25/08/2026
Í nýjasta pistilinum fjallar Guðrún um mikilvægi góðrar hreyfigetu á öllum aldri.
Linkur í fyrstu athugasemd
„Það er aldrei of seint að hreyfast betur“ er yfirskrift heilsupistils Guðrúnar Arngrímsdóttur, þar sem hún fjallar um líkamann og það að eldast, þegar við eldumst virðist fylgja að við tölum meira um líkamann og það sem er að angra okkur.
Hlekkur á pistil í fyrstu ummælum.
24/08/2026
Nú styttist í að hversdagsleikinn taki aftur við eftir sumarið. Skólar byrja, vinnan kemst á fullt, æfingar og tómstundir fara aftur inn í dagatalið og áður en við vitum af eru vikurnar orðnar ansi þéttskipaðar.
Ég held að mörg okkar þekki þá tilfinningu að vera stöðugt að reyna að ná í skottið á sjálfum sér. Það er alltaf eitthvað sem við ættum að vera búin að gera, einhver sem við ætluðum að hringja í, verkefni sem bíður, þvottur í körfu, tölvupóstur sem þarf að svara eða eitthvað skemmtilegt sem okkur langar líka að koma að. Lífið er einfaldlega fullt af hlutum sem eru þess virði að gera.
Fyrir nokkru skrifaði ég grein sem hét Við getum gert allt, en ekki allt á sama tíma. Þar velti ég meðal annars fyrir mér þeirri hugmynd að lausnin við annríki sé ekki endilega að verða enn betri í að skipuleggja okkur eða koma meiru fyrir. Stundum erum við einfaldlega með of margt á okkar könnu.
En það er ekki bara tíminn sem setur okkur mörk. Því þó að við séum nokkuð vön því að hugsa um tímann sem takmarkaða auðlind, held ég að við gleymum stundum annarri auðlind sem skiptir ekki síður máli. Orkunni okkar. Það er nefnilega eitt að hafa tíma fyrir eitthvað og allt annað að hafa orku fyrir því.
Lestu alla greinina hér:
https://www.sjalfsraekt.is/frodleikur/
20/08/2026
Hvernig væri að eiga eitt kvöld í vikunni þar sem þú þarft ekki að gera neitt annað en að mæta og slaka á.
Engin keyrsla. Engin krafa um að standa sig. Bara klukkutími þar sem þú hægir á, andar aðeins dýpra og gefur líkamanum og huganum smá rými.
Jóga vellíðan fyrir karla er mjúkt og slakandi námskeið fyrir karla sem vilja minnka streitu, losa um spennu og stirðleika og fá góða endurnæringu inn í vikuna.
Við förum rólega inn í stöðurnar, gefum líkamanum tíma til að mýkjast og vinnum vel með öndun og slökun.
Þú þarft ekki að hafa neina reynslu af jógaiðkun og alls ekki að vera liðugur. Þú þarft bara að mæta.
Gott mótvægi við annasama daga, mikla vinnu, æfingar eða einfaldlega líf þar sem oft er mikið um að vera.
8 vikur | 8. september – 27. október
Kennari: Alfa Jóhannsdóttir
👉Skráning er hafin.
19/08/2026
Langar þig að hreyfa þig meira en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja? 💚
Nokkur námskeið eru að hefjast hjá okkur í Sjálfsrækt og kannski er eitt þeirra akkúrat fyrir þig.
Hvort sem þig langar að byggja upp styrk, auka liðleika, finna meiri vellíðan eða einfaldlega koma þér af stað, þá leggjum við áherslu á faglega leiðsögn, litla hópa og að þú getir byrjað þar sem þú ert.
💚 Jóga Vellíðan fyrir karla
💚 Liðleiki og styrkur fyrir stirða stráka
💚 Byrjaðu hér
💚 Styrkur og uppbygging, hópþjálfun fyrir konur
Finndu það sem hentar þér og vertu með!
👉 Skráning og nánari upplýsingar á sjalfsraekt.is
13/08/2026
Sjálfsræktarhelgi
kannski er komið að þér 🤍
Í lok september förum við aftur í Helgafell á Svalbarðsströnd og eigum saman heila helgi þar sem allt snýst um að hafa það gott.
Við hreyfum okkur, förum í Jóga Nidra, losum um spennu, borðum góðan mat, förum í saunu, spjöllum, hlæjum og gefum okkur góðan tíma inn á milli.
Við vorum með dásamlegan hóp síðast og ummælin á myndunum segja kannski meira um upplifunina en við getum gert sjálfar.
Nokkur pláss laus.
📍 Helgafell á Svalbarðsströnd
📅 25.–27. september
🤍 89.000 kr. – gisting, öll dagskrá og matur innifalinn
Langar þig með? Skráning er opin og við tökum svo sannarlega vel á móti þér.
12/08/2026
Ertu orðinn aðeins stífari en þú kærir þig um að viðurkenna? 😅
Kannski finnurðu það þegar þú stendur upp eftir vinnudaginn, þegar þú ætlar niður á gólf, þegar þú sveiflar golfkylfunni, ferð á hjólið, í ræktina eða gerir eitthvað sem áður var bara ekkert mál en er orðið aðeins erfiðara núna.
Þá er Liðleiki og styrkur fyrir stirða stráka pottþétt námskeiðið fyrir þig.
8 vikna námskeið fyrir karlmenn á öllum aldri sem vilja hreyfast betur, verða sterkari og liðugri og halda áfram að geta gert það sem þeim finnst skemmtilegt.
Markmiðið er að hreyfast betur og fá líkamann til að virka betur í vinnunni, í ræktinni, í golfinu, á fjöllum og bara í daglegu lífi.
Við vinnum sérstaklega með þau svæði sem eiga það til að stirðna upp, mjaðmir, bak, axlir, brjóstbak og ökkla.
8 vikur | 9. september – 28. október
Aðgangur í alla opna tíma Sjálfsræktar fylgir á meðan námskeiðinu stendur.
Kennari: Guðrún Arngrímsdóttir
👉 Skráning er hafin.
12/08/2026
„Nú styttist í að hversdagsleikinn taki aftur við eftir sumarið. Skólar byrja, vinnan kemst á fullt, æfingar og tómstundir fara aftur inn í dagatalið og áður en við vitum af eru vikurnar orðnar ansi þéttskipaðar.“
Þannig hefst heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur sem akureyri.net birtir í dag.
07/08/2026
Það sem skiptir mestu máli fyrir heilsuna okkar er sjaldnast eitt stórt átak. Það sem skiptir mestu máli er að finna leið sem við getum haldið áfram með.
Þess vegna höfum við byggt upp áskriftarleiðina okkar.
Með áskrift færðu aðgang að öllum opnum tímum í stundatöflunni og getur valið það sem hentar þér hverju sinni. Sumir dagar kalla á slökun og mýkt, aðrir á liðleika, styrk eða jafnvel rólega hreyfingu. Markmiðið er að gera það einfalt að mæta aftur og aftur.
Auk þess fylgja áskriftinni ýmis fríðindi:
🤍 Gjafapoki þegar þú byrjar (ef áskrift er keypt fyrir 15.september)
🤍 Aðgangur að netefni frá Sjálfsrækt.
🤍 Afsláttur af Vivo Barefoot skóm hjá Eirberg.
🤍 Afsláttur af völdum viðburðum og námskeiðum.
Ef þú ert að leita að leið sem hjálpar þér að byggja upp góðar venjur til lengri tíma, þá teljum við áskriftina vera besta kostinn.
Og ef þú ert að stíga fyrstu skrefin hjá okkur mælum við sérstaklega með Byrjaðu hér ,námskeiði sem gefur þér góða og örugga byrjun inn í Sjálfsrækt.
Við hlökkum til að taka á móti þér í haust. 🤍
06/08/2026
Orð skipta máli. Þau móta hvernig við hugsum og hvernig við tölum um hlutina. Ég er sérstaklega hrifin af orðinu sjálfsrækt.
Það er fallegt og jákvætt að leggja rækt við eitthvað, að stuðla að vexti og að hlúa að því sem skiptir okkur máli og það gerum við á margvíslegan hátt. Við leggjum rækt við börnin okkar, ræktum garðinn okkar og hlúum að því sem okkur þykir mikilvægt. Til þess að geta hlúð vel að öðrum þurfum við að leggja rækt við okkur sjálf. Þegar við gerum það aukast líkurnar á að við lifum við betri heilsu, meiri vellíðan og aukin lífsgæði. Það fallega við sjálfsrækt er að hún felur ekki í sér að eitthvað sé ekki nógu gott, ófullkomið eða bilað. Hún byggir á þeirri hugsun að það sem við viljum að dafni þurfi athygli, umhyggju og tíma….
Til þess að kerfið okkar virki sem best og okkur líði vel þarf líkaminn að upplifa öryggi en ekki vera stöðugt í viðbragðsstöðu……
Þetta er sjálfsrækt. Við getum ekki þvingað plöntu til að vaxa, en við getum skapað henni góð skilyrði. Á sama hátt getum við ekki neytt taugakerfið til að vera rólegt eða líkamann til að líða vel, en við getum skapað þær aðstæður sem gera honum kleift að finna öryggi, jafnvægi, orku og vellíðan og þar með er sjálfsrækt ekki viðleitni til að laga okkur, heldur dagleg umhyggja og iðkun sem gerir okkur kleift að lifa betur.
👉 Lestu allan pistilinn hér
https://www.sjalfsraekt.is/frodleikur/