Nú styttist í unglingalandsmótið sem fram fer á Sauðárkróki í ár.
Hér eru leiðbeiningar um skráningaferlið á mótið. UMSE styrkir þátttakendur innan UMSE um helming skráningargjalds og kemur afslátturinn fram við skráningu.
Það verður mikið fjör og mikið gaman, skráum okkur til leiks! 💪😃
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Ungmennasamband Eyjafjarðar
Landsmóti 50+ lokið – kærar þakkir
Nú er Landsmóti 50+ lokið og viljum við í stjórn færa öllum bestu þakkir fyrir ánægjulega daga og frábæra þátttöku.
Þeim keppendum sem tóku þátt þökkum við fyrir góða stemningu, jákvæðni og glæsilega framkomu. Þátttaka ykkar skapar þá einstöku upplifun og samfélag sem einkennir Landsmót 50+.
Sérstakar þakkir færum við öllum sjálfboðaliðum sem lögðu fram tíma sinn, krafta og dugnað. Óeigingjarnt framlag ykkar var lykillinn að því að mótið tókst svo vel og fyrir það erum við afar þakklát.
Jafnframt viljum við þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi, framkvæmd og stuðningi við mótið. Samvinna, samhugur og vilji til að leggja sitt af mörkum skipta sköpum og eiga stóran þátt í vel heppnuðu móti.
Við vonum að allir fari heim með góðar minningar, ný kynni og ánægjulegar stundir í farteskinu.
Kærar þakkir fyrir samveruna og fyrir að gera Landsmót 50+ að þeirri glæsilegu hátíð sem það er.
Með bestu kveðju,
Stjórn UMSE
01/07/2026
Ringó sló í gegn á Landsmóti UMFÍ 50+ - Ungmennafélag Íslands Landsmót UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi heppnaðist afar vel með 366 þátttakendum, 791 skráningu í keppnisgreinar og metþátttöku í ringó, boccía, pútti og frjálsum íþróttum.
30/06/2026
Nú styttist í Þorvaldsdalsskokkið sem fer fram í 33.skipti þann 4.júlí.
Enn er tími til að skrá sig :) 🏃♂️➡️🏃♀️
UMSE - Fréttir Styttist í Þorvaldsdalsskokkið
28/06/2026
27/06/2026
Mikið fjör í allan dag og á morgun!
Landsmót UMFÍ 50+ heldur áfram í dag með keppni í ýmsum greinum og stendur fjörið raunar fram á kvöld því deginum lýkur með matar- og skemmtikvöldi á Vitanum á Akureyri.
Hlekkur á frétt í fyrstu ummælum.
25/06/2026
Landsmót 50+ um komandi helgi.
„Ég kynntist bestu vinkonum mínum í brennibolta“ - Ungmennafélag Íslands Brennibolti nýtur vaxandi vinsælda hjá fólki á miðjum aldri. Keppt verður í brennibolta á Landsmóti UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit um helgina.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Óseyri 2
Akureyri
603
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:00 | |
| Tuesday | 09:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:00 | |
| Wednesday | 09:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:00 | |
| Thursday | 09:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:00 |