02/09/2026
Sjáumst á Vesturgötunni!
Blakfélagið Bresi er aðildarfélag innan ÍA.
02/09/2026
Sjáumst á Vesturgötunni!
Það er fullorðinsblak í kvöld fyrir áhugasama! Kl.19:30 á Vesturgötu. Allir velkomnir.
27/10/2025
Jæja! Byrjum á morgun þriðjudaginn 28. október. Allir velkomnir óháð kyni og getu!
Blakið verður á sínum stað í vetur þegar íþróttahúsið opnar.
Þriðju- og fimmtudaga.
Nánari tímasetning auglýst síðar.
Jæja, þá er að hefjast blaktíðin!
Æfingar á jaðarsbakka þri&fim kl.19:30-21:00
Byrjendur velkomnir 💛
Láttu sjá þig
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Bresa / Blakfélags ÍA sem fór mánudaginn 22. janúar s.l. kl. 20:00.
Esther Judith Steinsson tók við sem formaður og kemur í stað Valgerðar Ásu Kristjánsdóttur.
Nýr gjaldkeri var kjörinn og tekur Rasa Jataute við keflinu af Helenu Rut Steinsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Lilja Margrét Riedel kemur einnig ný inn í stjórn og tekur við hlutverki ritara af Karítas Ósk Ólafsdóttur.
Líkt mörgum er kunnugt þurfti Blakfélag ÍA að fella niður allt skipulagt starf vegna húsnæðisskorts af sökum nauðsynlegra endurbóta á Íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Mikill áhugi og eldmóður er hjá nýrri stjórn að geta boðið upp á blak á ný fyrir áhugasamt Skagafólk, en stefnt er á að æfingar geti aftur hafist um leið og pláss losnar í íþróttamannvirkjum, eigi síðar en í haust.
Því má með sanni segja að það séu spennandi tímar framundan hjá félaginu.
Áfram ÍA!
04/01/2024
AÐALFUNDUR BRESA!
MÁNUDAGINN 22.JANÚAR NK. KL 20:00
* KOSNING STJÓRNAR
* FORMAÐUR
* GJALDKERI
* RITARI
* FRAMTÍÐ FÉLAGSINS
* ÖNNUR MÁL
Þá er enn einu blak ári lokið, reyndar alveg í byrjun maí … 😅
Bresi var með eitt lið í 3.deild Íslandsmóts BLÍ í vetur.
Spilað eru þrjú helgarmót yfir veturinn og í þetta skipti komst Bresi aðeins á tvö vegna Covid-19 😷
Bresi hélt sér í 3.deild og munum við reyna gera betur næsta vetur.
Öldungamót BLÍ var haldið um mánaðarmótin apríl/maí í Kópavogi (Kórnum), þar komu saman um 1000 manns og spiluðu blak.
7 lið eru í deild og voru 13 kvennadeildir og 7 karladeildir.
Bresi mætti með þrjú kvennalið til leiks í þar.
* Bresi A í 5.deild (B riðill)
* Bresi B í 5.deild (A riðill)
* Bresi C í 7.deild
Gaman að segja frá því að öll liðin okkar enduðu í öðru sæti í sínum deildum. 🥈🥈🥈