Leynir Golf

Leynir Golf

Share

18 hole golf course and one of the better tournament golf course in the country.

Photos from Leynir Golf's post 24/08/2026

Íslandsmót Golfklúbba 50+ fór fram dagana 20.-22. ágúst.

Golfklúbburinn Leynir sendi bæði karla- og kvennasveit til leiks.

Konurnar spiluðu í Leirunni og karlarnir í Öndverðanesi.
Báðar sveitirnar kepptu í 1. deild og halda sætum sínum á meðal þeirra bestu að ári.

Karlasveit GL skipuðu þeir:
Kristvin Bjarnason
Jóhannes K Ármannsson
Kristján Kristjánsson
Pétur V. Georgsson
Sigurður E. Þórólfsson
Rafnkell Guttormsson
Halldór B. Hallgrímsson
Þórður Emil Ólafsson

Kvennasveit GL skipuðu þær:
Berglind H. Jóhannsdóttir
Díana C. Llorens
Elín Dröfn Valsdóttir
Ella María Gunnarsdóttir
Ellen Ólafsdóttir
Helga Rún Guðmundsdóttir
María Björg Sveinsdóttir
Ruth Einarsdóttir

Til hamingju öll og takk fyrir að vera frábærir fulltrúar Leynis!

24/08/2026

HOLA Í HÖGGI ⛳🥳
Í rigningunni s.l. föstudag gerði Páll Sindri Einarsson sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 3. braut. Golfklúbburinn Leynir óskar Páli Sindra innilega til hamingju með draumahöggið á Garðavelli.

23/08/2026

Kæru félagsmenn og gestir Garðavallar.

Vegna mikillar úrkomu í gær verður öll umferð golfbíla og hjóla bönnuð í dag sunnudaginn 23. ágúst.

Kveðja, vallarstjóri.

Photos from Leynir Golf's post 21/08/2026

Viktor Elvar Viktorsson ráðinn framkvæmdastjóri GL

Stjórn GL hefur náð samkomulagi við Viktor Elvar Viktorsson um að taka við starfi framkvæmdastjóra GL.

Eins og fram hefur komið þá ákvað núverandi framkvæmdastjóri, Rakel Óskarsdóttir nýverið að segja starfi sínu lausu og leita á önnur mið, en Viktor mun því taka við starfi hennar nú á haustmánuðum.

Viktor Elvar sem er tölvunarfræðingur að mennt, er flestum félagsmönnum vel kunnur enda fyrrum formaður og stjórnarmaður félagsins auk þess að vera tryggur sjálfboðaliði og félagsmaður GL í áraraðir. Viktor hefur einnig starfað á vettvangi GSÍ, hlotið þar viðurkenningu sem sjálfboðaliði ársins árið 2015, auk þess sem hann sat í stjórn GSÍ um nokkurra ára skeið og stýrði þar mótanefnd sambandsins samhliða því að sinna dómarastörfum fyrir bæði GL og GSÍ. Viktor starfaði áður um langt skeið hjá VR, með stuttri viðkomu í Öskju en nú síðasta árið hefur hann starfað sem smiður hjá SF smiðum.

„Ég er virkilega ánægður með að við höfum náð samkomulagi við Viktor um að taka við stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Viktor er mikill Leynis maður, þekkir klúbbinn vel, hafandi verið bæði formaður og stjórnarmaður þess á árum áður, auk þess að vera okkur innan handar sem dómari og sjálfboðaliði í áraraðir í mótahaldi eða öðrum verkefnum félagsins.“ sagði Hróðmar Halldórsson, formaður Leynis.

„Það er mér mikill heiður að fá að taka við starfi framkvæmdastjóra GL. Þetta er mitt félag sem ég hef stutt og fylgst náið með allt frá unglingsárum. Starfsemi klúbbsins er í miklum blóma og ég tek við góðu búi af Rakel. Ég hlakka til að hefja störf enda mjög spennandi tímar framundan hjá Golfklúbbnum Leyni.“ sagði Viktor Elvar, verðandi framkvæmdastjóri Leynis.

Stjórn Leynis fagnar ráðningu Viktors, býður hann hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins.

Photos from Leynir Golf's post 18/08/2026

FUGLALEIKUR LEYNIS 2026

Meistaramót Golfklúbbsins Leynis fór fram dagana 6.-11. Júlí síðastliðin en líkt og undanfarin ár var farið af stað með Fuglasöfnun til styrktar góðs málefnis. Okkur tryggu samstarfsaðilar hjá Skipavík í Stykkishólmi lögðu nú sem áður til 500 krónur fyrir hvern fugl sem kylfingar fengu í þessu skemmtilega móti.

Kylfingar voru duglegir í ár og tókst að ná samtals 414 fuglum sem gera samtals 207.000 kr. sem stjórn GL ákvað að rynnu til Björgunarfélags Akranes þetta árið.

Golfklúbburinn Leynir þakkar félagsmönnum fyrir ríflega fuglasöfnun og enn fremur Skipavík, fyrir ötulan stuðning og samstarf síðustu árin.

17/08/2026

GL komnir í undanúrslit á Íslandsmóti golfklúbba í 2. deild karla.

Karlasveit GL er þessa dagana að keppa í 2. deild á Íslandsmóti golfklúbba en leikið er í Vestmannaeyjum.
Drengirnir hófu leik í gær með góðum 4-1 sigri á sveitum GKB og GO. Í morgunn máttu þeir sætta sig við tap gegn Golfklúbbi Setbergs sem hafði reyndar ekki áhrif enda liðið þegar búið að tryggja sig áfram í undanúrslitin sem leikin verða síðar í dag.

Þar munu okkar drengir etja kappi við heimamenn í Golfklúbbi Vestmannaeyja og sendum við drengjunum baráttukveðjur út til eyja.

Karlasveit GL skipa í ár þeir Birkir Þór Baldursson, Björn Viktor Viktorsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Nói Claxton, Kári Kristvinsson, Sveinbjörg Guðmundsson, Tristan Freyr Traustason og Viktor Ingi Einarsson.

17/08/2026

HOLA Í HÖGGI ⛳🥳
Í blíðunni í gær, sunnudaginn 16. ágúst, gerði Jóhann Þór Sigurðsson sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 18. braut. Golfklúbburinn Leynir óskar Jóa innilega til hamingju með draumahöggið sem margir fjölskyldumeðlimir hans urðu vitni af á Garðavelli.

14/08/2026

GL tekur þátt í 2. deild kvenna í Íslandsmóti golfklúbba.

Þessa dagana fer fram 2. deild kvenna í Íslandsmóti golfklúbba en leikið er á hinum skemmtilega golfvelli á Höfn í Hornafirði.
GL sendi vaska sveit kylfinga, en sveitina skipa þær Elín Anna Viktorsdóttir, Viktoría Vala Hrafnsdóttir, Martha Lind Róbertsdóttir og Katla Lind Björnsdóttir.

Stúlkurnar hófu leik í gær og máttu sætta sig við tap í fyrsta leiknum gegn NK. Eftir hádegið unnu þær síðan góðan 3-0 sigur á golfklúbbi Álftanes. Þegar þetta er skrifað eru þær að etja kappi við Golfklúbb Fjallabyggðar.

Við sendum baráttukveðjur á dömurnar okkar austur á Höfn.

Photos from Leynir Golf's post 14/08/2026

Nokkrir vaskir félagsmenn og starfsmenn Leynis réðust á dögunum í að klára frágang og þökulagningu við nýuppsettar rusla- og drykkjarstöðvar við 8. og 14. teiga Garðavallar.

Framkvæmd sem þykir virkilega vel heppnuð og verið hrósað af félagsmönnum sem og öðrum vallargestum. Kristvin Bjarnasson formaður vallarnefndar, var hugmyndasmiðurinn á bak við framkvæmdina en félagið þakkar honum kærlega fyrir og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg.

Photos from Leynir Golf's post 13/08/2026

Kæru félagsmenn!
Við leitum eftir sjálfboðaliðum í dag. Verkefnið er að tyrfa við rusla- og drykkjarstöð við 14. teig ásamt því að setja niður aspir við 5. og 7. braut.
Mæting er upp í skemmu kl. 17:00 - Gróðursetningahópur ætlar einnig að byrja kl. 13:30 í dag og taka gróðursetninguna í tveimur hlutum.

Vonumst til að sjá að öflugir sjálfboðaliðar geti gefið sér smá tíma í dag í þessi verkefni :)

kær kveðja, stjórn Leynis.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Grímsholti
Akranes
300

Opening Hours

Monday 08:00 - 21:00
Tuesday 08:00 - 21:00
Wednesday 08:00 - 21:00
Thursday 08:00 - 21:00
Friday 08:00 - 21:00
Saturday 08:00 - 21:00
Sunday 08:00 - 21:00