Knattspyrnufélag ÍA

Knattspyrnufélag ÍA

Share

Opinber Facebook-síða sigursælasta knattspyrnufélags Íslands

31/08/2026

Æfingar yngri flokka hefjast á morgun 1.september. Við bjóðum öllum börnum að koma og prófa. Æfingatöflu má sjá inn á kfia.is

Hlökkum til að fá ykkur í fótboltann á Akranesi 💛🖤⚽️

31/08/2026

Jón Sölvi lánaður til Lyngby

Jón Sölvi Símonarson (2007) hefur verið lánaður til danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby.

Jón Sölvi kom fyrst til ÍA á láni frá Breiðabliki sumarið 2025 áður en hann gekk svo varanlega til liðs við félagið fyrr í sumar. Hann stóð sig frábærlega í marki Skagamanna þegar hann kom inn í liðið í fjarveru Árna Marinó og fær nú verðskuldað tækifæri til að taka næsta skref á sínum ferli.

Við óskum Jóni Sölva alls hins besta í Danmörku og góðs gengis í komandi verkefni með Lyngby!

30/08/2026

Stórleikur í höfuðborginni❤️💛

Það er Hlíðarendi kl 19:15 í kvöld! Öll orkan i leikinn, fyrir fólkið okkar og fyrir börn með krabbamein! 🩵

Við segjum bara góða skemmtun og hlökkum til að sjá ykkur og flottu treyjuna ykkar!

Photos from Knattspyrnufélag ÍA's post 29/08/2026

Myndasyrpa úr höllinni💛

📸 Jón Gautur foto

29/08/2026

Sjáumst í dag í Akraneshöllinni kl. 16:00 í ykkar uppáhalds treyju fyrir börn með krabbamein! Stelpurnar eru ready með sína🩵🫱🏻‍🫲🏼


is

28/08/2026

Valur - ÍA í höfuðborginni á sunnudag, gerist ekki betra en það! Mikilvægur leikur fyrir okkar lið í baráttunni um efri hlutann👑

———-

Föstudaginn 4. september mun Félag krabbameinssjúkra barna standa fyrir Treyjudeginum. Treyjudagurinn er þekkt fyrirbæri á Norðurlöndunum þar sem fólk klæðist fótboltatreyju í leik og starfi á ákveðnum degi til að vekja athygli á málefninu.

Allir leikmenn ÍA og Vals munu ganga út á völlinn í sinni uppáhalds fótboltatreyju. Treyjan getur verið frá innlendu eða erlendu liði, eða jafnvel eldri treyja frá því liði sem leikmaðurinn spilar nú fyrir. Tilgangurinn er auðvitað að fá sem fjölbreyttastar og skemmtilegastar treyjur út á völlinn.

Við hjá knattspyrnufélagi ÍA hlökkum til að taka þátt og hvetjum alla áhorfendur til þess að mæta í sinni uppáhalds treyju🩵




📸 .island

Photos from Knattspyrnufélag ÍA's post 28/08/2026

Styrmir Jóhann gerir nýjan samning við ÍA

Styrmir Jóhann Ellertsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA og er nú samningsbundinn félaginu út leiktímabilið 2030.

Styrmir, sem varð 18 ára á árinu, hefur stimplað sig rækilega inn í liðið á yfirstandandi leiktímabili og unnið sér sæti í byrjunarliðinu í s*x af síðustu átta leikjum hjá ÍA.

Styrmir Jóhann kemur úr öflugu yngri flokkastarfi félagsins og er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leyst stöðu bakvarðar og miðvarðar. Í undanförnum leikjum hefur hann spilað á miðjunni og staðið sig þar með mikilli prýði.

Styrmir Jóhann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og hefur leikið níu landsleiki fyrir U19 ára landsliðið, átta fyrir U18 og þrjá fyrir U17.

Það eru sannarlega gleðitíðindi að Styrmir hafi nú skrifað undir langtímasamning við félagið og við hlökkum til að fylgjast með þessum efnilega leikmanni halda áfram að taka næstu skref á sínum ferli með ÍA💛🖤

27/08/2026

Næsti leikur hjá stelpunum er á laugardaginn gegn Völsung í Akraneshöllinni⚽️ það má búast við hörkuleik og hvetjum við alla til þess að mæta

————
Föstudaginn 4. september mun Félag krabbameinssjúkra barna standa fyrir Treyjudeginum. Treyjudagurinn er þekkt fyrirbæri á Norðurlöndunum þar sem fólk klæðist fótboltatreyju í leik og starfi á ákveðnum degi til að vekja athygli á málefninu.

Allir leikmenn ÍA og Völsungs munu ganga út á völlinn í sinni uppáhalds fótboltatreyju. Treyjan getur verið frá innlendu eða erlendu liði, eða jafnvel eldri treyja frá því liði sem leikmaðurinn spilar nú fyrir. Tilgangurinn er auðvitað að fá sem fjölbreyttastar og skemmtilegastar treyjur út á völlinn.

Við hjá knattspyrnufélagi ÍA hlökkum til að taka þátt og hvetjum alla áhorfendur til þess að mæta í sinni uppáhalds treyju🩵


is

📸 .island

Photos from Knattspyrnufélag ÍA's post 27/08/2026

Kæru skagamenn

Nýja heimasíðan okkar er komin í loftið, https://kfia.is/

Þið ættuð að finna allar helstu upplýsingar um starf félagsins inn á síðunni. Hún er einföld og þægileg í notkun. Takk fyrir þolinmæðina síðustu vikur!

Áfram ÍA

Photos from Knattspyrnufélag ÍA's post 27/08/2026

Núna er allt að smella með Árgangamót KFÍA þann 26.september næstkomandi. Skráning hefst 1.september, bæði skráning liða og miðakaup á viðburð og ball.

Þetta verður veisla sem enginn vill missa af⚽️🥳

Hlökkum til að fá ykkur í Akraneshöllina og eigum frábæran dag saman!
Vinsamlegast skoðið handbók mótsins vel!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Akranes

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00