Sundfélag Akraness

Sundfélag Akraness

Share

Sundfélag Akraness Stofnað 1948 Sundfélag Akranes er stofnað árið 1948.

28/08/2026

Áheitasund

Nú eru sundkrakkarnir okkar að safna áheitum fyrir árlega áheitasundið. Söfnunin rennur í ferðasjóð krakkanna vegna keppnis- og æfingaferða erlendis.

Krakkarnir ganga þessa dagana í hús og safna styrkjum og við vonum að tekið verði vel á móti þessum duglegu ungu sundmönnum.

Áheitasundið fer fram 5. september í Jaðarsbakkalaug.
Sundfélagið verður með krakka í lauginni allan daginn, frá kl. 09:00 til 19:00, og markmiðið er að hópurinn syndi samtals 80 km, sem jafngildir fjórum Faxaflóasundum!

Ef þið hafið ekki fengið heimsókn en viljið styrkja krakkana er hægt að leggja inn á:

Reikningur: 186-15-376670
Kennitala: 630269-4239

Photos from Sundfélag Akraness's post 27/08/2026

Búið að opna fyrir skráningar á skriðsundsnámskeið ogGarpaæfingar.

Garpaæfingar hefjast mánudaginn 31. ágúst

Skriðsundsnámskeið hefst 15. september

Skráningar og nánari upplýsningar
abler.io/shop/iasund

Photos from Sundfélag Akraness's post 23/08/2026

Við erum búin að opna fyrir skráningu á fjölbreytt námskeið fyrir börn:

💦 Námskeið fyrir vatnhræðslu – á þriðjudögum
🌊 Sundfjör – á föstudögum
🐊 Krókódílahópur – fyrir börn sem þurfa aukinn stuðning í sundi.

Nánari upplýsningar og skráning á abler.io/shop/iasund
eða [email protected]

Photos from Sundfélag Akraness's post 21/08/2026

Skráningar í fullum gangi – Sundskólinn (0–5 ára)

Við erum búin að bæta við fleiri Krossfiskum – Stig 1 hópum og eru nú aðeins örfá laus pláss eftir

Skráningar ganga mjög vel og nú þegar er kominn biðlisti í fleiri hópa.

Staðan 21. ágúst:
Ungbarnasund
• Byrjendur – biðlisti
• 5–12 mánaða – laus pláss
• 12–24 mánaða – laus pláss

Fjörfiskar - Laus pláss

Krossfiskar
• Stig 1 – Laus pláss - Aukahópar
• Stig 2 – Biðlist
• Stig 3 – Laus pláss
• Stig 4 – Laus pláss

Skráning fer fram á:
www.abler.io/shop/iasund
Upplýsningar um sundæfingar á www.iasund.is

Photos from Sundfélag Akraness's post 17/08/2026

Skráningar í fullum gangi – Sundskólinn (0–5 ára)

Skráningar ganga mjög vel og nú þegar er kominn biðlisti í fleiri hópa.

Staðan 17. ágúst:
Ungbarnasund
• Byrjendur – biðlisti
• 5–12 mánaða – laus pláss
• 12–24 mánaða – laus pláss

Fjörfiskar - Laus pláss

• Stig 1 – Biðlist - Auka hópar í vinnslu
• Stig 2 – Biðlist
• Stig 3 – Laus pláss
• Stig 4 – Laus pláss

Skráning fer fram á:
www.abler.io/shop/iasund

Upplýsningar um sundæfingar á www.iasund.is

16/08/2026

Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50! 🇮🇸

Íslenska karlasveitin í 4x100m fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París í dag!

Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius syntu á 3:42.35 og bættu gamla metið um 0.79 sekúndur.

Þar með hefur íslenska liðið lokið keppni á EM50 í París.

Nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50! 🇮🇸

Íslenska karlasveitin í 4x100m fjórsundi setti nýtt Íslandsmet á lokadegi EM50 í París í dag!

Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágústsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius syntu á 3:42.35 og bættu gamla metið um 0.79 sekúndur.

Guðmundur bætti jafnframt sitt persónulega met í 100m baksundi þegar hann synti fyrsta legginn á 55.94.

„Gaman að klára þetta með stæl,“ sagði Símon eftir sundið.

Þar með hefur íslenska liðið lokið keppni á EM50 í París.

14/08/2026

Opnað hefur verið fyrir skráningar í Abler! 🎉

Nánari upplýsningar www.iasund.is og abler.

Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna eða ef þið þurfið aðstoð við að finna það fyrirkomulag sem hentar ykkur best.

Við hlökkum til að sjá ykkur á æfingum í haust!

14/08/2026

Einar hélt áfram frábærri frammistöðu sinni á EM og kom í bakkann á 27.77, sem er nýtt persónulegt met.

Hann bætti sig um tólf hundruðustu úr sekúndu og hefur því nú sett persónulegt met í öllum þremur greinum sínum á EM50.

Einar var að vonum ánægður með árangurinn og horfir nú til boðsundsins á sunnudag.

„Mjög sáttur með að bæta mig í öllum greinum, get ekki verið meira þakklátur. Ótrúlega stemmdur fyrir boðsundið. Ég held þetta verði bara geggjað hjá okkur, held við séum bara allir tilbúnir í þetta.“

Sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson hélt áfram að bæta sig á Evrópumótinu í sundi í morgun. Hann keppti í 50 metra bringusundi en fjórir aðrir Íslendingar kepptu í undanrásum í dag🏊🏼‍♀️

12/08/2026

Viðtal við Einar.

Einar Margeir með lykilatriðin á hreinu! 🏊
Þrír íslenskir keppendur syntu í undanrásum í morgun. Sund þeirra og viðtöl má sjá í fréttinni hér að neðan.

Photos from Sundsamband Íslands's post 12/08/2026

Einar Margeir Ágústsson hélt áfram að bæta sig og setti annað persónulegt met og Akranesmet á þessu móti þegar hann synti 200 metra bringusund á 2:15.16.

Einar bætti sinn besta tíma um 0,82 sekúndur og var meðal þeirra fyrstu í sínum riðli frá upphafi.

Hann kom fjórði í bakkann, aðeins einum hundraðshluta úr sekúndu á eftir þriðja sætinu, og hafnaði í 32. sæti í heildina

„Mjög þreyttur, en mjög sáttur með að ná þessari bætingu,“ sagði Einar eftir sundið.

Einar, sem bætti sig einnig í 100 metra bringusundi á fyrsta degi mótsins, var ánægður með hvernig hann útfærði sundið.

„Ég náði að vera mjög yfirvegaður fyrsta helminginn af sundinu. Náði að berjast alveg vel seinni helminginn.“

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Akranes
300

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00