Teigurinn Golfstofa

Teigurinn Golfstofa

Share

Golfhermaaðstaða í Þorlákshöfn staðsett að Vesturbakka 1, bil 105. Bílastæði og inngangur að aftan. Bókaðu rástíma á teigurinn.is Golfherma aðstaða í Þorlákshöfn.

Photos from Teigurinn Golfstofa's post 10/05/2026

Nú erum við alveg að detta inn í sumarið og sumarverðin okkar að fara í loftið. Verð hjá okkur fyrir sumarið er 2500 kr klst og tekur gildi frá og með 11. maí. Hvernig sem viðrar úti er alltaf stofuhiti og logn hjá okkur. Ekki er þörf á því að eiga golfsett til að spila hjá okkur því við erum með lánskylfur ásamt boltum í aðstöðunni sem nota má endurgjaldslaust. Þrjár stærðir eru af kylfum, barna, kvenna og karla.

Aðstaðan hjá okkur býður upp á algert næði og er tilvalin fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfinu eða fyrir þá sem langar að prófa að spila golf í fyrsta skipti.

Golfhermirinn er flott afþreying fyrir alla fjölskylduna. Trackman hermirinn býður upp á leiki sem eru hannaðir fyrir alla aldurshópa. Leikirnir eru mjög skemmtilegir og hægt að stilla þá eftir getustigi hvers og eins. Við hvetjum alla til að koma og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman. Hér má sjá smá kynningu um leikina https://www.youtube.com/watch?v=4Y76qcNs19A

Fyrir þá sem vilja þá bjóðum við upp á að mæta á staðinn í upphafi bókaðs tíma og vera með stutta kennslu á herminn. Eftir að tími hefur verið bókaður þarf að senda tölvupóst á [email protected] eða nota "Hafa Samband" takkann á síðunni til að óska eftir því að fá aðstoð á staðnum.

Myndavélar tengdar við herminn eru í aðstöðunni og er hægt að sjá sveifluferil á myndbandi eftir hvert högg. Hermirinn býður upp á sveiflugreiningar og lengdarmælingar fyrir hverja kylfu fyrir sig. Aðstaðan er því kjörin fyrir þá sem vilja vinna í sveiflunni og fá nákvæmar upplýsingar í ró on næði.

03/04/2026

Tilvalið að æfa sveifluna yfir páskana ⛳️

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Þorlákshöfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Vesturbakki 1, Bil 105. Bílastæði Og Inngangur Að Aftan
Þorlákshöfn
815