Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar

Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar Íþróttahús Snæfellsbæjar er staðsett við Engihlíð 1 í Ólafsvík. Sundlaug Snæfellsbæj

30/09/2026

Kæru íbúar og gestir okkar

Lokað verður í sundlauginni
kl. 14:00 laugardaginn
3. október vegna árshátíðar starfsmanna Snæfellsbæjar

Hvetjum alla til að mæta :)
30/09/2026

Hvetjum alla til að mæta :)

Barnamenningarhátíð Vesturlands – Barnó 2026 verður formlega sett í Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október kl. 18:00.

Þar verður hátíðinni hleypt af stokkunum með skemmtilegri dagskrá, tónlist, gleði og að sjálfsögðu biluðu stuði! Barnó fer fram víðs vegar um Vesturland og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði, ætluð börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og upp í 18 ára.

Opnunarhátíðin er öllum opin og fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta – og að sjálfsögðu að taka börnin með!

🔗 Upplýsingar um opnunarhátíðina og dagskrá Barnó - Best Mest Vest í fyrstu athugasemd.

Lifi barnamenningin – því við erum BEST, MEST, VEST!

Við viljum minna á þennan frábæra fyrirlestur sem verður í dag. Hvetjum alla til að gefa sér klst til að mæta og hlusta ...
28/09/2026

Við viljum minna á þennan frábæra fyrirlestur sem verður í dag. Hvetjum alla til að gefa sér klst til að mæta og hlusta á hann Kristján vera með fyrirlestur um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu.
Fyrirlestur fyrir ungmennu frá kl. 17-18
Fyrirlestur fyrir íbúa frá kl. 20-21
Í sal grunnskólans í Ólafsvík

Hlökkum til að sjá þig og þína ;)

Heilsuvikan enn í gangi og allir að skella sér á flottan fyrirlestur í kvöld 👏🥰
27/09/2026

Heilsuvikan enn í gangi og allir að skella sér á flottan fyrirlestur í kvöld 👏🥰

Heilsuvikan byrjuð og við hvetjum alla til að taka þátt, hreyfa sig, borða hollt, hafa gaman og ekki gleyma að brosa 🩷 H...
23/09/2026

Heilsuvikan byrjuð og við hvetjum alla til að taka þátt, hreyfa sig, borða hollt, hafa gaman og ekki gleyma að brosa 🩷

Hlaupahópurinn verður með hlaup og labb í dag frá íþróttahúsinu kl. 17

Skemmtikvöld með Jóni Pétri dansara kl. 20 í íþróttahúsinu

Sundleikfimi hjá Dívunum

Ávextir í boði fyrir iðkenndur eftir æfingu

Viðburður hjá Heilsumiðstöðinni Lind

Frítt í sund 🎉

Frábær til hjá fyrirtækjum

Áfram við öll 💪👏🩷🫶

Snæfellsbær gerir heilsu hátt undir höfði dagana 23.-30. september og heldur heilsuviku Snæfellsbæjar í níunda skipti. Vikan er haldin á sama tíma og íþróttavika Evrópu.

Í heilsuvikunni er lögð áhersla á að kynna íþróttir, hreyfingu og heilsutengda viðburði sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og standa vonir til að allir geti fundið viðburð við hæfi eða sem vekur áhuga.

Jafnframt býður Snæfellsbæjar frítt í sund alla vikuna og þá verða áhugaverðir fyrirlestrar og sérfræðingar á svæðinu sem vert er að kynna sér.

🤝 Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar
👏 UMF Víkingur
💪 CF SNB
🏋 Sólarsport líkamsrækt
🐕 Hundahornið
💯 Bowen Anna
+ Hlaupahópur Snæfellsbæjar, Jón Pétur, eldriborgarar og allir hinir sem taka þátt í vikunni fyrir íbúa.

Hér að neðan má sjá glæsilega dagskrá íþróttaviku Evrópu og Snæfellsbæjar árið 2026.

Íbúar eru hvattir til að nýta vikuna vel og skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu og anda að sér fersku lofti í okkar fallega sveitarfélagi.

💯🤸👇

20/09/2026
20/09/2026

Heilsuvika Snæfellsbæjar
Viðburður í Heilsumiðstöðinni Lind

Flott tafla hjá CF Snb og frábær tilboð sem þau eru að bjóða upp á í heilsuvikunni :)
20/09/2026

Flott tafla hjá CF Snb og frábær tilboð sem þau eru að bjóða upp á í heilsuvikunni :)

HEILSUVIKA SNÆFELLSBÆJAR HJÁ CF SNB

Við hjá CF SNB erum að sjálfsögðu með í Heilsuviku Snæfellsbæjar í ár, líkt og undanfarin ár! 🎉

Dagana 23.–30. september verður áherslan á hreyfingu, heilsu, samveru og það að gefa sér tíma til að hugsa vel um sjálfan sig.
Við viljum því nota tækifærið og bjóða öllum í Snæfellsbæ og nágrenni að koma til okkar og prófa það sem við höfum upp á að bjóða í stöðinni okkar 🏋🏼‍♀️

ALLIR ERU VELKOMNIR! 💙

Það skiptir engu máli hvort þú hefur verið að æfa lengi, hefur aldrei æft hjá okkur, ert að koma aftur eftir langt hlé eða ert einfaldlega að leita að skemmtilegri leið til að hreyfa þig.

Allar æfingar eru aðlagaðar að einstaklingnum og við finnum leið fyrir þig til að taka þátt, sama hvert þitt getustig er.
Markmiðið er ekki að allir geri það sama eða lyfti sömu þyngd, markmiðið okkar er að allir geti hreyft sig, haft gaman og upplifað sig velkomna.

Í tilefni Heilsuvikunnar verur frítt í CF SNB dagana 23.–30. september.

Þetta er því fullkomið til að koma sér aftur af stað eða taka skrefið að hreyfingu!

Sjáumst á Heilsuviku Snæfellsbæjar 23.-30. september 💙

20/09/2026

🌿 HEILSUVIKA Í SNÆFELLSBÆ 🌿
Frábær tilboð hjá fyrirtækjum í Snæfellsbæ!

Fyrirtæki í Snæfellsbæ ætla að taka þátt í Heilsuvikunni með fjölbreyttum og skemmtilegum tilboðum. Endilega verið dugleg að nýta ykkur þessi frábæru tilboð! 💚

N1 Hellissandi
20% afsláttur af próteinsúkkulaði
30% afsláttur af Homie orkudrykkjum

Sjoppan Ólafsvík
Nýtt á matseðli – grænmetisvefja!
Grænmetisvefja + Bon Aqua á aðeins 2.195 kr.

Apótek Vesturlands
20% afsláttur af vítamínum

Kassinn Ólafsvík
Tilboð á ávöxtum

Hárgreiðslustofan Gunnhildar
25% afsláttur af gjafapakkningum

Pastel hárgreiðslustofa
15% afsláttur af öllum vörum

CF SNB
Frítt í stöðina
30% afsláttur af 10 skipta kortum
15% afsláttur af vörum

Sólarsport
Frí kennsla í líkamsræktarsal og kynning á líkamsrækt
Vikupassi á aðeins 5.000 kr.

Heilsuvikan snýst um meira en bara hreyfingu.
Við hvetjum alla til að hreyfa sig, brosa, hafa gaman og taka þátt í þeim fjölbreyttu viðburðum sem boðið verður upp á.

💚 Það er eitthvað í boði fyrir alla!

Nýtum vikuna til að gera eitthvað gott fyrir líkama og sál – og styðjum um leið við fyrirtækin okkar hér í Snæfellsbæ. 🌿😊

Address

Engihlíð 1
Ólafsvík
355

Opening Hours

Monday 07:30 - 21:00
Tuesday 07:30 - 21:00
Wednesday 07:30 - 21:00
Thursday 07:30 - 21:00
Friday 07:30 - 21:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 10:00 - 17:00

Telephone

+3544339910

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Íþróttahús og sundlaug Snæfellsbæjar:

Shortcuts

Share