25/09/2026
Utanvegahlaupanámskeið fyrir krakka 🌿🏃
Langar þig að hlaupa, kanna nýjar leiðir og læra að fóta þig í náttúrunni?
Þorbergur Ingi Jónsson utanvegahlaupari heldur fjögurra vikna hlaupanámskeið fyrir krakka á aldrinum 9–15 ára. Við æfum hlaupastíl og hraðastjórnun, hlaupum og göngum til skiptis og lærum að njóta þess að hreyfa okkur úti. Allar æfingar fara fram utanvega og að stórum hluta utan stíga. Passleg blanda af hlaupa/labba og svo bara læra að leika sér í náttúrunni.
Námskeiðið hentar krökkum sem eru tilbúnir að hreyfa sig með hléum í allt að klukkutíma.
Miðvikudagar
16:00–17:00
Naustaborgir
Föstudagar
15:00–16:00
Kjarnaskógur
Námskeiðið er frítt!
Mætið með þunnan jakka, húfu og vettlinga. Skór með góðu gripi eru æskilegir en ekki nauðsynlegir.
Hlökkum til að sjá ykkur! 🌲