26/08/2026
🌙 Hefst 2. september @ æfingastöð GoMove
🔋 Gefðu þér markvisst eina kvöldstund í viku í 6 vikur til að kúpla þig út, lenda á dýnunni og hlaða batteríin.
✌🏻 Tveir hópar í boði:
- Hópur 1. kl. 18:45-20:00 (7 lausar dýnur þegar birt)
- Hópur 2. kl. 20:15-21:30 (9 lausar dýnur þegar birt)
✅ Tryggðu þér þitt dýnupláss á www.gomove.is/yoga
16/08/2026
💪🏼 NÝTT 6 vikna námskeið fyrir 17-19 ára stráka í æfingastöð GoMove.
🗓️ Hefst sunnudaginn 30. ágúst.
Um er að ræða 6 vikna námskeið fyrir stráka á aldrinum 17-19 ára (menntaskóli) sem vilja æfa í hvetjandi hóp undir góðri leiðsögn og verða sterkari – bæði líkamlega og andlega.
⏰ Æfingarnar verða 45-60 mínútur á miðvikudögum kl. 15.30 og föstudögum kl. 14:00.
Finnur og Arnór eiga báðir að baki sér langan feril í knattspyrnu bæði hérlendis og erlendis. Í dag starfar Finnur við þjálfun hjá GoMove og Arnór við kennslu í menntaskólanum í Kópavogi og hafa þeir brennandi áhuga á að leiðbeina ungum strákum og sýna þeim að persónulegur vöxtur sé ekki síður mikilvægur en líkamlegur árangur.
Markmið þeirra er að kenna strákunum á námskeiðinu að:
1. Byggja upp sjálfsaga: Að mæta á æfingar og vinna markvisst að bætingu skapar grunn sem nýtist í námi, vinnu, íþróttum og daglegu lífi.
2. Auka líkamlegan styrk og sjálfstraust: Með því að æfa markvisst og sjá framfarir í æfingum í öruggu umhverfi styrkjum við trúna á eigin getu.
3. Efla félagsfærni: Við sköpum hvetjandi andrúmsloft þar sem strákarnir styðja hver annan, læra að bera ábyrgð og vinna saman að sameiginlegum markmiðum.
4. Tileinka sér heildræna nálgun: Við munum ræða um mikilvægi jafnvægis, góðra venja og jákvæðs hugarfars, þar sem áherslan verður á að gera hlutina vel frekar en að flýta sér.
🔗 Kynntu þér námskeiðið betur á www.gomove.is/strakar
✅ Skráðu þig núna í FRÍAN kynningartíma föstudaginn 21. ágúst kl. 14:00 hér: https://www.abler.io/shop/gomove/askriftir/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NjM1MjE=?
07/08/2026
Nýtt tímabil í Mömmuþjálfun hefst 7. og 8. september 👶🏻
Við erum með fjóra hópa, þar af einn grunnhóp:
- 09:30 mán og mið
- 10:30 mán og mið
- 11:30 mán og mið
- 13:10 þrið og fimmt (GRUNNHÓPUR)
Indíana, stofnandi og yfirþjálfari GoMove, hefur byggt upp Mömmuþjálfunina okkar frá því hún byrjaði með fyrsta hópinn í febrúar 2019 þegar eldri strákurinn hennar var 5 mánaða og hún var sjálf að byggja sig upp eftir meðgöngu 🤰🏻🛠️
Spólum 8 ár fram í tímann og við elskum ennþá jafn mikið að leiðbeina mömmunum sem koma til okkar á þessu krefjandi en magnaða tímabili til þess að byggja sig upp 🤝
Við leggjum áherslu á að viðhalda eða byggja upp alhliða grunnstyrk, auka hreyfigetu og þol með vel samsettum full-body og úthalds æfingum. Gæði umfram hraða, alltaf.
Við vinnum með öndun, góða virkni og vandaða líkamsbeitingu. Með aðstoð þjálfara okkar finnum við hvaða útfærslur henta þér og þínum líkama best hverju sinni. Við hvetjum þig til að æfa bæði í takt við getustig og dagsform.
Við hlökkum til að sjá mömmurnar á nýju tímabili 💕
🔗 Tryggðu þér pláss á www.gomove.is/mommur
31/07/2026
🎉 Við bætum loksins við seinnipartshóp í Karlaþjálfun.
💪🏼 Mánudaga og miðvikudaga kl 17:25.
🗓️ Fyrsta æfing er mánudaginn 10. ágúst.
🚀 Innifalið í Karlaþjálfun:
- Fast pláss í lokuðum hóp 2x í viku seinnipartinn með þjálfara þar sem er fylgt markvissu styrktar- og úthaldsprógrammi sem er aðlagað að þér eftir getustigi og dagsformi.
- Opinn laugardagstími með þjálfara kl. 9, 10 eða 11
- Open Gym (aðgangur að stöðinni) alla daga til að æfa sjálfur.
- Aðgangur að appinu okkar með styrktar- og hlaupaprógrömmum.
- Prógrömmuð aukaæfing send út alla fimmtudaga á iðkendur.
✅ Skráðu þig í frían kynningartíma miðvikudaginn 5. ágúst kl. 17:25 til að fá fílinginn fyrir þjálfuninni og stöðinni okkar: https://www.abler.io/shop/gomove/askriftir/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NjA3NDU=?
🔗👉🏼 Annars er það www.gomove.is/karlar fyrir frekari upplýsingar um þjálfunina.
19/07/2026
NÝTT í haust með Finni og Arnóri 🚀
6 vikna námskeið fyrir menntaskólastráka sem vilja styrkja sig líkamlega og andlega í góðum hóp undir hvetjandi leiðsögn Finns Orra og Arnórs sem hafa mikla reynslu af þjálfun og kennslu 💪🏼
Til að fá allra fyrstu upplýsingar um námskeið + sérstakt forskráningarverð þegar skráning hefst gerðu eitt af þessu:
1. Kommentaðu “LENGRA” hér undir póstinn
2. Sendu okkur “LENGRA” í DM
3. Sendu okkur tölvupóst á [email protected]
Finnur og Arnór eru spenntir að taka á móti og leiðbeina flottum hópi af ungum mönnum í haust 🎉
Ef þú veist um einhvern sem hefði áhuga á námskeiðinu sendu þennan póst áfram á viðkomandi 📲
03/07/2026
✅ Skráning er nú hafin í alla hópa fyrir ágúst!
🙋🏻♀️ Hópþjálfun fyrir konur
🔗 www.gomove.is/konur
🙋🏻♂️ Hópþjálfun fyrir karla (bætum við hóp 🎉)
🔗 www.gomove.is/karlar
👩🏻🍼 Mömmuþjálfun (þar af einn grunnhópur)
🔗 www.gomove.is/mommur
📲 Og auðvitað er Netþjálfunin okkar á sínum stað með fjölbreytt ketilbjölluprógrömm
🔗 www.gomove.is/online
26/06/2026
Ketilbjöllur + Sól = 🔋😄🔋😄🔋😄🔋
24/06/2026
Ný hásæti fyrir minnstu iðkendurna okkar 👶🏻
Öryggi er framar öllu hjá okkur í Mömmuþjálfun og við gerum allt sem við getum til að passa að öllum líði vel í rýminu. Þá skiptir æfingaval miklu máli og ákveðnar umgengnisreglur sem við hjálpumst allar að við að virða 💕
3 vikna tímabil með frjálsri mætingu hefst í Mömmuþjálfun þriðjudaginn 30. júní 💪🏼
Upplýsingar og skráning á www.gomove.is/mommur ✅
16/06/2026
Okkar nálgun í Mömmuþjálfun 👇🏼
Fyrst og fremst viljum við að þér og barninu þínu líði vel í hlýlegu og hvetjandi umhverfi í stöðinni hjá okkur. Börnin eru hjartanlega velkomin með á æfingar og er hægt að hafa vagna úti á svölum við stöðina eða leyfa barninu að vera hjá þér á dýnu.
Engin meðganga eða fæðing eða er eins og það er mikilvægt að aðlaga æfingarnar að hverri og einni. Sumar eru til í meiri ákefð á meðan aðrar vilja rólegri og mýkri nálgun, enda er dagsformið svo upp og niður á þessum tíma.
Við leggjum áherslu á að viðhalda eða byggja upp alhliða grunnstyrk, auka hreyfigetu og þol með vel samsettum full-body og úthalds æfingum.
Við vinnum með öndun, góða virkni og vandaða líkamsbeitingu. Með aðstoð þjálfara okkar finnum við hvaða útfærslur henta þér og þínum líkama best hverju sinni. Við hvetjum þig til að æfa bæði í takt við getustig og dagsform.
💬.. “Persónuleg nálgun og notalegt andrúmsloft, fannst sérstaklega þægilegt að mæta með strákinn og aldrei neitt stress í kringum það sem var rosalega dýrmætt.”
💬.. “Gæti ekki mælt meira með mömmutímunum. Hlakkaði til að mæta á hverja einustu æfingu! Bæði skemmtilegar og krefjandi og auðvelt að skala í takt við dagsformið. Fann strax mikinn mun á styrk og úthaldi eftir fyrstu vikurnar.”
💬.. “Þjálfararnir æði og útskýra mjög vel og eru til staðar ef maður þarf hjálp. Tala líka fallega til manns og minna á að hlusta á líkamann og hvetja mann á sama.”
💬.. “ELSKA æfingarnar og nálgunina í æfingum. Virkilega góðar alhliða styrktaræfingar og fíla hvernig áherslan er frekar á gæði en hraða.”
✅ 3 vikna sumartímabil 30.6-16.7
🔗 Skráðu þig núna á www.gomove.is/mommur
07/06/2026
Flottur hópur af þjálfurum og iðkendum frá GoMove skelltu sér í Hengilshlaupið um helgina 🏃🏻♀️ Yndislegt að hlaupa í góðum félagsskap!
Næsta sameiginlega hlaup verður á sunnudaginn. Við sendum upplýsingar um stað og stund í vikunni. Hlökkum til að sjá ykkur og njóta 🏃🏻♀️🏃🏻♂️✨