28/08/2026
Við verðum með geggjaða breakdanstíma á stundaskránni í vetur ásamt stútfullri töflu af metnaðarfullum danstímum fyrir allan aldur. Skráning á Abler abler.io/shop/oskandi
Í haust kemur Nicholas Fishleigh aftur til okkur og við munum bjóða upp á tvö 6 vikna breakdansnámskeið fyrir stráka. Breakdans 1 fyrir nemendur sem eru í 2. - 4. bekk og Breakdans 2 fyrir nemendur sem eru í 5. - 7. bekk. Námskeiðin byrja 7. september og er skráning hafin á Abler.
21/08/2026
Dansaðu með okkur í vetur
Dansgarðurinn Óskandi býður upp á fjölbreytt dansnám þar sem markmið skólans er að bjóða upp á jákvætt, faglegt og uppbyggilegt skólaumhverfi þar sem nemendur fái tækifæri til að blómstra á sínum tíma og forsendum.
Námsleiðir:
✨Kríladans 0 - 3 ára
✨Forskóli ballett 3 - 8 ára
✨Forskóli skapandi dans 4 - 7 ára
✨Breakdans fyrir stráka 7 - 12 ára
✨Grunnnám í listdani 8 - 15 ára
✨Framhaldsbraut í listdansi
✨Ballett fyrir fullorðna
Skráning á Abler, https://www.abler.io/shop/oskandi/
Hlökkum til að dansa með þér í vetur!
07/08/2026
Seinna inntökuprófið fyrir framhaldsbraut í listdansi verður 25. ágúst. Inntökuprófið er opinn tíminn sem er ókeypis og frábært tækifæri til að kynnast framhaldsbrautinni okkar og skólanum.
Hvetjum alla áhugasama til að skrá sig í inntökuprófið. Skráning er í gegnum netfangið [email protected].
07/08/2026
Í haust kemur Nicholas Fishleigh aftur til okkur og við munum bjóða upp á tvö 6 vikna breakdansnámskeið fyrir stráka. Breakdans 1 fyrir nemendur sem eru í 2. - 4. bekk og Breakdans 2 fyrir nemendur sem eru í 5. - 7. bekk. Námskeiðin byrja 7. september og er skráning hafin á Abler.
18/07/2026
Dance World Cup 2026
Ásdís, Áshildur og Emilía Ósk kepptu í Junior Duet/Trio Contemporary í dag með tríóið sitt The Northern Lights á Dance World Cup í Dublin. Þetta var risa flokkur með 96 atriðum og ótrúlega gaman að sjá alla þessu hæfileikaríku dansara.
Þetta frábæra tríó var með svo fallega sviðsframkomu og dansaði af miklu öryggi. Yndislegt var að fylgjast með samstarfinu, metnaðinum og þrautseigjunni í hópnum. Innilega til hamingju með frábæra frammistöðu 👏
18/07/2026
Dance World Cup 2026 í Dublin!
Keppnislið Dansgarðsins Óskanda sýnir verkið The Northern Lights í flokknum Junior Duet/Trio Contemporary í dag, 18. júlí kl. 9:14 á íslenskum tíma.
Dansarar: Ásdís Valsdóttir, Áshildur Bærings Snæbjörnsdóttir og Emilía Ósk Arnórsdóttir,
Áfram Dansgarðurinn Óskandi ❤️
Áfram Ísland 🇮🇸
18/07/2026
Dance World Cup 2026
Halldóra Ósk og Jara Lív kepptu í Junior Duet/Trio Contemporary í dag með dúettinn sinn Ravens á Dance World Cup í Dublin. Þetta var risa flokkur með 96 atriðum og ótrúlega gaman að sjá alla þessu hæfileikaríku dansara.
Það er búið að vera yndislegt að sjá dansverkið vaxa með góðri samvinnu, jákvæðni og metnaði. Halldóra Ósk og Jara Liv, þið voruð geggjað töff á sviðinu! Innilega til hamingju með frábæran árangur 👏