Við viljum hveta forráðamenn iðkenda í yngri flokkum knattspyrnudeildarinnar til að kíkja á skilaboð frá deildinni inn á Abler vegna fjáröflunarverkefnis sem er í gangi.
Bur Knattspyrnudeild
Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar Fylkis
10/06/2026
Knattspyrnu og Tækniskóli Fylkis
Knattspyrnuskólinn er fyrir 6. - 7.fl á virkum dögum kl 9 - 12. Þar er lögð áhersla á tækni og skemmtilegar æfingar.
Tækniskólinn er fyrir 4. - 5.fl á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Leggjum áherslu á tækniþróun, leikstöðubundnar og faglegar æfingar.
Þjálfarar á námskeiðunum eru Sigurður Þór Reynisson þjálfari mfl kvk, Signý Lára fyrirliði mfl kvk og Theodór Ingi leikmaður mfl kk
Skráning fer fram á abler
https://www.abler.io/shop/fylkir/fotbolti
10/12/2025
🎅 Jólanámskeið knattspyrnudeildar Fylkis – þar sem börnin fá loksins að hreyfa sig eftir allan piparkökubaksturinn!
Áttu barn í 4.–7. flokki hjá Fylki sem hefur þegar gefist upp á að vakna fyrir hádegi í jólafríinu?
Ekki hafa áhyggjur – við tökum á því!
Sendu barnið á Jólanámskeið Fylkis, þar sem við höldum uppi frábærri hefð:
👉 vekja krakkana óþægilega snemma (að þeirra mati)
👉 koma þeim á Fylkisvöll fyrir kl. 9:30
👉 skila þeim aftur heim upp úr 12:30, sælum, sveittum og líklega svolítið sveitt-jólalegum
Dagana 21.–23. desember mun Fylkisvöllurinn verða vettvangur fyrir knattspyrnu, fjör og mögulega veður sem við myndum helst vilja panta öðruvísi – en það verður bara jólagaman á íslenskan hátt.
Stjórn og skipulag verður í höndum Alexandre Massot, sem kann bæði að þjálfa fótbolta og halda utan um hóp barna sem eru mögulega á orkustigi sem jafnast á við jólaseríur í stuttbuxum. Með honum verður úrval þjálfara úr fjölmörgum flokkum Fylkis.
Skráðu barnið og gefðu þér rólegan morgun kaffisopa án þess að heyra:
“Mamma/pabbi, hvað á ég að gera í dag?”
Skráning á Abler: https://www.abler.io/shop/fylkir/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTA0MjY=/
Hlökkum til að sjá okkar iðkendur
Áfram Fylkir 🧡🖤
05/12/2025
Frábær ráðning þó við segjum sjálf frá!
Barna- og unglingaráð Fylkis hefur ráðið Steinar Leó Gunnarsson sem nýjan yfirþjálfara yngri flokka félagsins
Hann tekur við af Sigurði Þór Reynissyni sem sinnt hefur stöðunni síðastliðin 6 ár, en síðasta árið hafa þeir skipt yfirþjálfarastöðunni sín á milli. Steinar Leó mun áfram leiða þróun og uppbyggingu þjálfunar deildarinnar af miklum metnaði, og tryggir þannig framúrskarandi tækifæri fyrir unga knattspyrnumenn Fylkis.
Steinar Leó er með UEFA A þjálfaragráðu og býr yfir áralangri og dýrmætri reynslu af þjálfun, bæði innan Fylkis og hjá öðrum félögum á Íslandi.
Barna- og unglingaráð Fylkis segir ráðninguna styrkja sýn félagsins um að vera í fremstu röð í uppbyggingarstarfi, veita bestu mögulegu þjálfunina og vera mikilvægt skref í áframhaldandi og kraftmikilli þróun deildarinnar.
Við hlökkum til spennandi framtíðar. Þessi nýi kafli lofar afar góðu fyrir allt Fylkisfólk.
Pink Lady Mót Fylkis
5. fl kvk
Úrslit leikja og stöðu í riðlum dagsins má finns hér
Pink Lady Mót Fylkis
Nálgast má úrslit í leikjum og riðlum dagsins inná torneopal
Pink Lady Mót Fylkis
Liðin og riðlarnir um helgina
5. fl kk
https://bikarmot.torneopal.com/taso/sarja.php?turnaus=455_0005&sarja=u11
5. fl kvk
https://bikarmot.torneopal.com/taso/sarja.php?turnaus=455_0005&sarja=U10
14/10/2025
Pink Lady Mót Fylkis
5. flokkur kk og kvk
18. október - 5 fl kk
19. október - 5 fl kvk
Hlökkum til að sjá ykkur!!!
04/10/2025
Capri-Sun mót Fylkis hófst í dag. Mörg hundruð krakkar og enn fleiri foreldrar skemmtu sér hrikalega vel, skoruðu helling af mörkum, vörðust enn fleiri skotum og allir sáttir heim eftir daginn.
Við byrjum aftur á morgun kl 10 og hlakkar okkur mjög mikið til
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Reykjavík
110