Fjölnir Karfa

Fjölnir Karfa

Share

Körfuknattleiksdeild Fjölnis #FélagiðOkkar https://www.instagram.com/fjolnirkarfa/

02/09/2026

🏀 KRÍLABOLTINN HJÁ FJÖLNI ER AÐ HEFJAST! 🏀

Nú er komið að yngstu körfuboltastjörnunum! ⭐

Krílaboltinn hjá Fjölni körfubolta er að fara af stað fyrir krakka fædda 2021–2023. 💛💙

Krílaboltinn er frábær leið fyrir krakkana að kynnast körfubolta í gegnum leik, hreyfingu og skemmtilegar æfingar. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman, eignast nýja vini og kynnast boltanum! 🏀🙌

👶 Fyrir krakka fædda 2021–2023
💛💙 Fjölnir körfubolti

Við hlökkum til að taka á móti nýjum körfuboltakrökkum í Fjölnisfjölskylduna!

Skráning og nánari upplýsingar á Abler.

Photos from Fjölnir Karfa's post 02/09/2026

Guðlaugur Heiðar framlengir við Fjölni!

Guðlaugur Heiðar Davíðsson, eða Laugi, verður áfram í Grafarvoginum á komandi tímabili. Laugi átti frábært tímabil í fyrra og var meðal annars valinn besti varnarmaður liðsins. 👏

Við hlökkum til að sjá Lauga áfram í Fjölnisbúningnum!

👉 Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/09/02/gudlaugur-heidar-framlengir-vid-fjolni/

31/08/2026

Æfingar fyrir 9 ára og yngri hefjast á morgun 😍

Æfingar hjá 9 ára og yngri hefjast 1.september 😍

Hlökkum til að taka á mót gömlum og nýjum iðkendum í vetur 🏀

25/08/2026

Sigrún María heldur til Bandaríkjanna!

Sigrún María Birgisdóttir mun ekki leika með Fjölni á komandi tímabili þar sem hún hefur tekið næsta stóra skref á sínum körfuboltaferli og haldið til Bandaríkjanna í háskólaboltann.

Við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt af Sigrúnu Maríu og óskum henni innilega til hamingju með þennan flotta áfanga. Það verður spennandi að fylgjast með henni takast á við nýja áskorun og halda áfram að þróast sem leikmaður.

Til hamingju Sigrún María og gangi þér ótrúlega vel í Bandaríkjunum!

25/08/2026

🏀 ÆFINGATAFLAN ER TILBÚIN! 🏀

Æfingatafla Fjölnis körfubolta fyrir tímabilið 2026–2027 er klár! 💛💙

Við hvetjum alla iðkendur og foreldra til að kynna sér töfluna vel og athuga æfingatíma síns flokks.

Muna að skrá sig inná Abler svo þið fáið allar upplýsingar frá þjálfurum

Við hlökkum til frábærs körfuboltatímabils! 🔥🏀

Áfram Fjölnir! 💛💙

Photos from Fjölnir Karfa's post 19/08/2026

Fjölnisstelpur stóðu sig frábærlega á EuroBasket!

U18 ára landslið kvenna lauk þátttöku sinni á B-deild EuroBasket (EM) sem fram fór í Tulcea í Rúmeníu á dögunum. Liðið fylgdi eftir frábærum árangri og bronsverðlaunum á Norðurlandamótinu með því að gefa allt í leikina ytra gegn sterkum andstæðingum.

Fjölnir átti tvo glæsilega fulltrúa í hópnum sem stóðu sig frábærlega:

Harpa Karítas Kjartansdóttir og
Katla Guðjónsdóttir

Við óskum þeim Hörpu og Kötlu, sem og öllu íslenska liðinu, til hamingju með flottan árangur og góða frammistöðu á mótinu!

Hægt er að skoða lokatölur, ljósmyndir og tölfræði frá öllum leikjum mótsins á heimasíðu FIBA:
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-womens-eurobasket-2026-division-b

💛💙

18/08/2026

Æfingar hjá 9 ára og yngri hefjast 1.september 😍

Hlökkum til að taka á mót gömlum og nýjum iðkendum í vetur 🏀

18/08/2026

🥉🏀Fjölnir með fulltrúa á Nordic Open
U15 ára drengja vann til bronsverðlauna á Nordic Open æfingamóti sem fór fram í Kisakallio í Finnlandi dagana 3.–6. ágúst! 🇮🇸✨
Strákarnir léku þrjá hörkuleiki á mótinu og enduðu á að tryggja bronsið! 🥉
Fulltrúi Fjölnis í þessum hópi var Óttar Ingimar Davíðsson 💛💙
Við óskum Óttari og strákunum innilega til hamingju með árangurinn 🙌🎉

Photos from Fjölnir Karfa's post 07/08/2026

🏀 KÖRFUBOLTINN FER AF STAÐ HJÁ FJÖLNI! 🏀

Nú er komið að því! 💪🔥

Æfingar hjá Fjölni körfubolta hefjast mánudaginn 10. ágúst.

Við hlökkum til að sjá bæði nýja og gamla iðkendur aftur á parketinu! 🏀💛

📅 Æfingar hefjast: Mánudaginn 10. ágúst
📍 Fjölnir – Grafarvogi

Nánari upplýsingar um æfingatíma og hópa koma á fjolnir.is. Æfingataflan er hér fyrir neðan og er birt með fyrirvara um breytingar

👉 Minnum á að skrá sig á Abler – öll upplýsingagjöf fer fram þar.

💛🖤 Áfram Fjölnir!

Photos from Fjölnir Karfa's post 05/08/2026

Kjartan Karl Gunnarsson hefur framlengt samning sinn við Fjölni til ársins 2028!

Kjartan er uppalinn Fjölnismaður sem tók stór skref með meistaraflokki á síðasta tímabili. Við erum afar ánægð með að hann verði áfram hluti af framtíð liðsins. 👏🏀

Við óskum Kjartani innilega til hamingju með nýja samninginn!

👉 Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/08/05/kjartan-karl-gunnarsson-framlengir-vid-fjolni/

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address

Reykjavík