06/08/2026
Ertu 60 ára eða eldri og langar að hreyfa þig í góðum félagsskap?
Frísk í Fjölni hefst 17. ágúst. Við bjóðum upp á skipulagðar styrktaræfingar tvisvar - þrisvar í viku undir leiðsögn þjálfara þar sem áhersla er lögð á betri heilsu, aukinn styrk í skemmtilegum félagsskap.
Skráðu þig í dag – slóð á skráningu er hér fyrir neðan.
https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?returnTo=%2F%3Fcountry%3DIS%26mode%3Dprograms...
08/06/2026
Skráning fyrir haustönn 2026 er hafin! 😀
Frísk í Fjölni er hreyfingarúrræði fyrir einstaklinga 60 ára og eldri og er þjónustan byggð í kringum hópþjálfun undir handleiðslu menntaðra þjálfara. Þjálfarar og stjórnendur verkefnisins eru öll menntaðir íþróttafræðingar frá Háskólanum í Reykjavík. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol, liðleika- og jafnvægisæfingar og er þjálfunin sniðin að þörfum og getu hvers þátttakanda.
Markmið Frísk í Fjölni er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu þátttakenda og skapa tækifæri fyrir eldra fólk til að stunda reglulega hreyfingu í góðum félagsskap 💙💛
Við hvetjum áhugasama til að skrá sig sem fyrst, þar sem hóparnir fyllast jafnan fljótt.
Æfingar fara fram á mánudögum og miðvikudögum í Egilshöll.
Hópur 1 08:45
Hópur 2 09:30
Hópur 3 10:15
Hópur 4 11:00
Ef óskað er eftir aðstoð við skráningu eða ef spurningar vakna er hægt að hafa samband á netfangið [email protected]
Forskráning fer fram á Abler: https://www.abler.io/shop/fjolnir?search=fr%C3%ADsk+%C3%AD+fj%C3%B6lni
Hlökkum til að sjá ykkur í haust! 🥰🥰
Fjölnir
Finndu námskeið í vefverslun Fjölnir. Keyrt áfram af Abler
09/03/2026
🏆 Frísk í Fjölni – frábær árangur í Lífshlaupinu! 🏃♀️
Við viljum enn og aftur óska öllum þátttakendum í Frísk í Fjölni innilega til hamingju með frábæran árangur í Lífshlaupinu í ár. Lífshlaupið er árlegt hreyfiátak sem hvetur fólk til að hreyfa sig reglulega og efla heilsu og vellíðan. Verkefnið er skipulagt af Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og fer fram á hverju ári, yfirleitt í febrúar.
Frísk í Fjölni tók nú þátt í þriðja sinn og var þátttakan frábær. Það er virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að hreyfa sig og safna dögum og mínútum í virknibankann :)
Frísk í Fjölni náði frábærum árangri í sínum flokki:
🥈 2. sæti yfir fjölda daga
🥉 3. sæti yfir fjölda mínútna
Til að hvetja til þátttöku voru dregnir út þrír heppnir þátttakendur úr hópnum sem skráðu sig í Lífshlaupið. Þau sem komu upp úr pottinum í ár eru:
• Guðlaugur Þór Böðvarsson
• Hrönn Bjarnþórsdóttir
• Þuríður Jana Ágústsdóttir
Við óskum þeim innilega til hamingju með vinninginn! 🎉
Vinningarnir voru einstaklega glæsilegir og viljum við senda kærar þakkir til fyrirtækjanna sem studdu verkefnið:
Nathan, Mjólkursamsalan og Vogabær. Stuðningur þeirra hjálpar okkur að hvetja enn fleiri til að taka þátt í hreyfingu og samfélagi Frísk verkefnanna. 🙏
Hér fyrir neðan má sjá myndir af hópunum í Frísk í Fjölni með verðlaunagripina úr Lífshlaupinu, ásamt myndum af vinningunum sem voru í gjafapokunum.
Takk fyrir frábæra þátttöku – við hlökkum til næsta Lífshlaups! 💙
11/01/2026
🏃♀️ Hreyfing, heilsa og félagsskapur fyrir 60+.
Við eigum nokkur laus pláss í hópa 1 og 4 á vorönn 2026.
📩 Hafðu samband og fáðu að kíkja á prufuæfingu eða skráðu þig hér: https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?country=IS
08/01/2026
Við eigum nokkur laus pláss í hópa 1 og 4. Velkomið að koma og prófa æfingu og sjá hvernig ykkur líkar 😀
Hópur 1 - 08:45
Hópur 2 - 09:30 - FULLT
Hópur 3 - 10:15 - FULLT
Hópur 4 - 11:00
Aukaæfing fer fram á föstudögum kl 10:00
Skráning fer fram í gegnum Abler hér :
https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?country=IS
Hægt er að hafa samband hér á facebook eða í gegnum netfangið [email protected] fyrir frekari upplýsingar 😀
Við hlökkum til að taka á móti ykkur 😀
Fjölnir | Almenningsíþróttir
Finndu námskeið í vefverslun Fjölnir. Keyrt áfram af Abler
02/01/2026
💙💛 Skráning er hafin í Frísk í Fjölni!
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingahópi fyrir 60 ára og eldri í Grafarvogi?
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu Fjölni. Starfsemin byggir á hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri til að stunda fjölbreytta líkamsrækt í góðum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara.
Á æfingum er lögð áhersla á styrk, þol, liðleika og jafnvægi, ásamt því að hlúa að andlegri og félagslegri heilsu. Unnið er út frá heildrænni nálgun með vellíðan þátttakenda að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2x í viku fyrir hádegi í Egilshöll, mánudaga og miðvikudaga, og fyrir þá sem vilja er boðið upp á aukaæfingu á föstudögum.
Hópur 1 - 08:45
Hópur 2 - 09:30 - Fá pláss eftir
Hópur 3 - 10:15 - FULLT
Hópur 4 - 11:00
Aukaæfing fer fram á föstudögum kl 10:00
Skráning fer fram í gegnum Abler hér :
https://www.abler.io/shop/fjolnir?search=fr%C3%ADsk+%C3%AD+fj%C3%B6lni+
Æfingar hefjast aftur á ný eftir frí á mánudaginn þann 5.janúar 2026.
Hægt er að hafa samband hér á facebook eða í gegnum netfangið [email protected] fyrir frekari upplýsingar 😀
Við hlökkum til að sjá ykkur og hefja nýtt æfingaár af krafti 💪😀
Abler | Shop
11/11/2025
🌿 Frábær mæting og ánægja með fræðsluna um næringu🌿
Við viljum þakka kærlega öllum þeim sem mættu á fræðslufyrirlesturinn um næringu sem haldinn var í síðustu viku í Félags- og tómstundamiðstöðinni Borgum.
Fyrirlesturinn var í umsjón Agnesar Þóru Árnadóttur, næringar- og íþróttafræðings, sem fór yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan.
Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hve margir mættu og tóku virkan þátt í spurningum og umræðum — og var mikil ánægja með þau hagnýtu ráð sem Agnes deildi með hópnum.
Við þökkum Agnesi Þóru kærlega fyrir fræðandi og hvetjandi fyrirlestur – og öllum þátttakendum fyrir góða stemningu og áhuga.
📸 Sjá mynd frá viðburðinum hér að neðan.
27/10/2025
🌿 Fræðslufyrirlestur um næringu 🌿
Við bjóðum íbúa í Grafarvogi, 60 ára og eldri, hjartanlega velkomna á fræðslufyrirlestur um næringu með Agnesi Þóru Árnadóttur, næringar- og íþróttafræðingi
(BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
📍Félags - og tómstundamiðstöð Borgum
(Spöngin 43, 112 Reykjavík)
📆 Þriðjudaginn 4.nóvember
🕐 Kl. 13:30
Á fyrirlestrinum verður farið yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan. Þátttakendur fá hagnýtar ráðleggingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi.
Markmið okkar er að stuðla að auknu heilsulæsi meðal þátttakenda og íbúa Grafarvogs — því þekking á eigin heilsu og næringu er lykillinn að betri lífsgæðum.
Þessi fræðslufyrirlestur er samstarfsverkefni Frísk í Fjölni, Félags eldri borgara í Grafarvogi, Korpúlfa og Austurmiðstöð.
Við hvetjum alla til að mæta, hlusta, spyrja spurninga og taka þátt í fræðandi og skemmtilegri samveru! 😀
25/07/2025
Skráning er hafin fyrir haustönn 2025.
Villt þú vera hluti af skemmtilegum hóp og æfa undir handleiðslu fagmenntaðs þjálfara? Þá gæti Frísk í Fjölni verið eitthvað fyrir þig.
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri. Starfsemi Frísk í Fjölni er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2-3x í viku, fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum en fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku þá eru einnig æfingar á föstudögum.
Haustönn stendur yfir frá 18. ágúst- 19. des 2025.
Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/fjolnir/almennings?country=IS
Ef þig vantar aðstoð við skráningu ekki hika við að hafa samband hér eða í gegnum netfangið [email protected]
28/12/2024
Villt þú vera hluti af skemmtilegum æfingarhóp fyrir einstaklinga 60 ára og eldri á nýju ári?
Frísk í Fjölni er heilsueflandi þjónusta fyrir einstaklinga 60 ára og eldri hjá íþróttafélaginu Fjölnir.
Starfsemi Frísk í Fjölni er byggð í kringum hópþjálfun þar sem þátttakendur fá tækifæri á því að stunda líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap undir handleiðslu fagmenntaðra þjálfara. Á æfingum er lögð áhersla á styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar. Ekki síður er lögð áhersla á andlega og félagslega heilsu og er starfsemin unnin með það að leiðarljósi.
Æfingar fara fram 2-3x í viku, fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum en fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku þá eru einnig æfingar á föstudögum.
Vorönn stendur yfir frá 6.janúar - 6.júní 2025 og fyrir þá sem vilja tryggja sér pláss þá höfum við opnað fyrir forskráningu. Hægt er að skrá sig hér https://forms.gle/i3ymKY7ThmMneND28
Hægt verður að koma og prófa æfingar fyrstu vikuna í janúar en gott væri að fá að vita af því með því að senda okkur póst á [email protected] eða hér á facebooksíðu verkefnisins.
Annars viljum við óska öllum gleðilegrar hátíðar og hlökkum til að hefja næstu önn af krafti á nýju ári.
Hlökkum til að sjá ykkur 😀