02/09/2026
Dagskrá Allir með!
Markmið:
🔶Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna
🔶Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun.
🔶Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap
Hvet alla til að kynna sér verkefnið á https://allirmed.com/verkefnid/
ATH: viðmiðunaraldur er 6-10 ára en ef þú átt barn sem þú telur að gæti nýtt sér þessar æfingar, ekki hika við að hafa samband.
Þjálfarar:
Fótbolti: Bergsteinn Ingólfsson
Sund: Inga Sif Sigfúsdóttir
Padel: Helga Rún Jóhannsdóttir
Körfubolti: Kristinn Magnússon
Glíma: Hjörtur Elí Steindórsson
Utanumhald: Anna Steinunn Árnadóttir, þroskaþjálfi
Tímarnir verða frá k. 11-12, nema padelið verður frá kl. 13-14
01/09/2026
Minnum á að glíman byrjar í dag k. 16.30 fyrir 5.-10. bekk. Öll velkomin að koma að prófa 🤼♀️
30/08/2026
Minnum á að körfuboltaæfingar byrja á morgun og glímuæfingar á þriðjudaginn.
Allir velkomnir að koma að prófa í vikunni.
27/08/2026
🏃♀️ Íþróttaskólinn Allir með 🏃♂️
Í haust verður boðið upp á Íþróttaskólann Allir með sem tilraunaverkefni. Markmiðið er að skapa aðgengilegt og öruggt umhverfi þar sem allir geta tekið þátt á sínum forsendum.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.allirmed.com.
Æfingarnar byrja þann 6. september, skráning á abler.
Nánari upplýsingar í skilaboðum.
25/08/2026
Æfingartafla fyrir haustið, skráningar á abler!
ATH. Tímarnir byrja í næstu viku.
24/08/2026
Opnað hefur verið fyrir skráningur í glímu á Abler.
Ætlum að prófa að hafa einungis eina æfingu á viku þessa önnina.
Þjálfari: Hjörtur Elí
Æfingartafla fyrir körfuboltann og glímuna verður birt í fyrramálið.
12/08/2026
Nýtt körfuboltatímabil er handan við hornið🏀
Veturinn framundan verður stærri en nokkru sinni fyrr hjá okkur í körfunni og við erum spennt 🔥
Við viljum endilega fá fleiri krakka með okkur á völlin í vetur! Það þarf enga fyrri reynslu, bara mæta og prófa og allir velkomnir 😀
📅 Byrjum 31. ágúst
📲Skráning er hafin á Abler
29/06/2026
Í dag mættu 25 krakkar og fengu að prófa frjálsíþróttaæfingar i boði Frjálsíþróttasambands Íslands. Kennarinn var Björg Gunnarsdóttir frjálsíþróttakona en hún er á ferð um landið að kynna íþróttina.
Félagið fékk síðan að gjöf boðhlaupskefli frá Frjálsíþróttasambandinu.
Takk fyrir frábæra mætingu 🤸♀️
29/06/2026
Minnum á þetta í dag 👇
Frjálsíþróttasamband Íslands býður á æfingu í frjálsum í íþróttahúsinu á mánudaginn.
Björg Gunnarsdóttir sér um æfinguna.
Hvetjum krakka fra 5-14 ára að mæta og prófa 🤸♀️
02/05/2026
Duglegir körfuboltakrakkar í Fjarðabyggð 🏀👏