05/09/2026
Frábært stig hjá okkar mönnum!!
Fyrri hálfleikur fer ekki í sögubækurnar fyrir fagur fræði hjá okkar mönnum. Vorum við því að tapa 2-0 í hálfleik.
Paul Warne tók tvöfalda skiptingu og það var þvílíka vítamín sprautan fyrir okkar menn.
Við skorum þrjú mörk á átta mínútum.
Fyrsta markið skoraði Aaron Collins, stórkostlegt mark! Þrumaði honum í slánna inn fyrir utan teig. Búin að vera sjóðandi að undanförnu.
Silfurrefurinn okkar Callum Paterson jafnaði og svo kom Curtis Nelson okkur yfir með góðum skalla.
Áður en yfir lauk þá jöfnuðu Wycombe, lokatölur 3-3.
Geggjað stig úr því sem komið var og það þarf að byggja á því sem við gerðum í seinni hálfleik.
Við erum lang flottastir!!
Paul Warne er okkar maður!!!
MK all day!!!
Eins og ávallt, come on you Dons!!!!
29/08/2026
Sýndum mikinn karakter og samstöðu er við fengum stig gegn stórliði Leicester City á heimavelli, við þurftum sannarlega að hafa fyrir því!
Macca var frábær í markinu en svo verðum við að minnast á varnarlínuna okkar sem átti geggjaðan leik!
Gethin Jones var líklega að spila sinn besta leik fyrir Dons í hægri væng bakverðinum. Turnarnir í vörninni Big Marve, Curtis Nelson og Charlie Goode algjörlega framúrskarandi!!
Virkilega jákvætt að sjá að captain fantastic Alex Gilbey er farinn að snerta grasið á ný eftir meiðsli.
Þrjú stig í þrem leikjum er mjög flott er við horfum á andstæðingana.
- Leicester City og Oxford United voru í Championship deildinni í fyrra.
- Hudderfield með eitt stærasta ,,budget” í deildinni og keypt leikmenn í samræmi við það.
Við erum ósigraðir og munum halda því áfram, því MK Dons eru lang flottastir!!!
Paul Warne er okkar maður!!!
MK all day!!!
Eins og ávallt, come on you Dons!!
Milton Keynes Dons Supporters Association - MKDSA
Milton Keynes Dons
24/08/2026
MK Dons mun taka höndum saman með MK Food Bank laugardaginn 29. ágúst í fyrsta góðgerðarviðburði tímabilsins á leikdegi, þegar við fáum Leicester City í heimsókn á Stadium MK.
Stuðningsmenn eru hvattir til að leggja sitt af mörkum með framlögum í formi matar eða peninga til að aðstoða fjölskyldur á svæðinu sem búa við erfiðar aðstæður, en markmiðið er að safna 2.500 matvörum í tengslum við leikinn.
Hægt er að lesa meira um viðburðinn hér:
https://www.mkdons.com/news/2026/august/24/community---mk-food-bank-charity-matchday-this-saturday/
Svo eru frjáls framlög hér:
https://mkfoodbank.org.uk/food-donations/
Milton Keynes er orðinn hluti af Holtaskóla, því er við hæfi að hjálpa ef við getum.
Því margt smátt gerir eitt stórt!
Milton Keynes Dons Supporters Association - MKDSA
Milton Keynes Dons
22/08/2026
Sterkt stig gegn Huddersfield
Það verður bara að segjast að við vorum í krummafót í fyrri hálfleiknum. Þar vorum við heppnir að vera einungis að tapa 0-1.
Aftur á móti þá vorum við býsna flottir í seinni hálfleiknum. Þar voru allir sem betur fer komnir á sömu blaðsíðu og vélin að vinna á öllum sílendrum.
Aaron ,,the hammer” Collins skoraði geggjað mark, með frábæru skoti efst í markvinkilinn.
Við vorum sárlega nálægt því að taka stigin þrjú. En líklegast var jafnteflið sanngjarnt.
Nokkrir mjög spennandi búnir að bætast við annars flottan hóp.
Ryan Wintle var virkilega flottur á miðjunni, frábær leikmaður með gott auga fyrir spili.
Dan Barlaser var geggjaður í hlutverki djúpa miðjumannsins, þar sem hann ryksugaði vel upp eftir liðsfélagana.
Sam ,,the beast” Nombe leiddi sóknarlínuna vel, nautsterkur og mjög áræðinn. Ekki viss um að hann tapi gegn mörgum í öxl í öxl.
Svo var gott að sjá skoska silfurrefinn okkar Callum Paterson skeiða um völlinn.
Aaron ,,the hammer” Collins er komin með tvö mörk í tveimur leikjum. Vonum að hann haldi áfram að finna netmöskvana.
MK Dons er með virkilega spennandi lið og það verður einstaklega gaman að fylgjast með þessum vaxandi risa á komandi tímabili.
Paul Warne er okkar maður!!
MK all day!!!
Eins og ávallt, come on you Dons!!!
Milton Keynes Dons Supporters Association - MKDSA
Milton Keynes Dons
16/08/2026
Vinningshafar fyrsta MK Dons -Collabs-leiksins!!
Þátttökuverðlaunin hlýtur Baltasar Karlson, ungur Króksari en gallharður stuðningsmaður MK Dons. Til gamans má geta að Karl Ágúst Hannibalsson faðir Baltasar er aðstoðarþjálfari m.fl.kk hjá Tindastól í körfunni.
Knattspyrnumaðurinn þjóðþekkti Jökull Már Jónharðsson var sá eini sem giskaði á rétt úrslit. Jökull fær sín verðlaun þegar hann kemur til baka á klakan. En hann er staddur á Ítalíu þessa dagana að boða boðskap okkar MK Dons manna.
Við óskum þeim báðum innilega til hamingju með verðlaunin!!
Áfram MK Dons!!!
15/08/2026
Fyrsta stigið komið í hús eftir 2-2 jafntefli við Oxford United. Okkar mörk skoruðu Charlie Goode og Aaron Collins.
Byggjum á þessu og förum hærra!!
MK all day!!
Paul Warne er okkar maður!!
Eins og ávallt, come on you Dons!!!
Milton Keynes Dons
Milton Keynes Dons Supporters Association - MKDSA
13/08/2026
Liam Kelly - seldur til Peterborough sem leika í League One eins og við.
Liam ,,party “Kelly var gjörsamlega framúrskarandi á síðasta tímabili, enda valinn bestur af leikmönnum og stuðningsmönnum.
Hans verður saknað bæði sem leikmanns og persónu.
09/08/2026
Þá er Carabao Cup bikarnum lokið á þessu tímabili.
Fyrir leik var vitað að verkefnið væri ærið en við göngum með höfuðið hátt eftir þessa flottu frammistöðu.
Einn af nýju leikmönnunum Ryan Wintle skoraði mark okkar með góðu skoti eftir horn.
Við misnotuðum víti í leiknum en klárlega mikið af jákvæðum góðum hlutum sem við getum byggt á.
Eitt er á hreinu að litum ótrúlega vel út í nýja geggjað varabúningnum okkar.
MK all day!!!
Paul Warne er okkar maður!!!
Eins og ávallt, come on you Dons!!
Milton Keynes Dons
Milton Keynes Dons Supporters Association - MKDSA
07/08/2026
Vertu með í stuðinu!!!!
Stuðningsmannasíða MK Dons á Íslandi (@mkdonsiceland) • Instagram photos and videos
0 Followers, 80 Following, 4 Posts - See Instagram photos and videos from Stuðningsmannasíða MK Dons á Íslandi ()
06/08/2026
Sjáðu alla leikina!!!
Það er hægt að kaupa svokallað ifollow og þá fær maður aðgang að öllum MK Dons leikjunum. Einnig er hægt að kaupa staka leiki í gegnum ifollow en þá er það eðlilegra dýrara.
Aðgangur að öllum heima- og útileikjum kostar lítil 180 pund sem gerir tæp 4 pund á leik.
Hægt er að kaupa áskriftina hér: https://www.mkdons.com/videos/subscriptions
Með áskriftinni er hægt að horfa á leikina á netinu, þar sem kemur alltaf linkur á heimasíðu klúbbsins eða í símanum í gegnum app MK Dons.