Berta Þórhalladóttir

Berta Þórhalladóttir

Share

Þjálfari

Photos from Berta Þórhalladóttir's post 22/08/2026

Þetta er alltaf jafn gaman! 🏃‍♀️💛

Og vá hvað ég fæ smá gæsahúð yfir því að hafa fengið unglinginn með mér í þetta verkefni 🥹❤️

Ég náði ekki markmiðinu mínu í hlaupinu — en so what! 😅 Ég hljóp, hafði gaman og kláraði þetta. Það er líka sigur. 💪

Og það sem skiptir okkur enn meira máli: við náðum söfnunarmarkmiðinu okkar fyrir Gleym mér ei styrktarfélag 🙌💛
Takk innilega öll sem styrktu, deildu og hvöttu okkur áfram.

Nói okkar hefði orðið 10 ára í ár og það yljar svo sannarlega um hjartarætur að geta haldið minningu hans á lofti og látið gott af okkur leiða í leiðinni. 💙

Þórhalli náði svo sínu aðalmarkmiði — að vinna mömmu sína 😂🏃‍♂️💨
Rannveig þrumaði í PB! 🔥
og Hannes var að sjálfsögðu á kantinum, klár með hvatninguna og tók á móti okkur fagnandi! 📣❤️

Fullt af mismunandi markmiðum, fullt af mismunandi ástæðum fyrir því að hlaupa — en allir að gera sitt besta. ❤️

Takk fyrir okkur og áfram Team Nói! 💙

30/07/2026

💛 Útifjör fyrir konur hefst aftur 11. ágúst! 💛

Langar þig að komast aftur í góða rútínu eftir sumarið, styrkjast, fá ferskt loft og hreyfa þig í góðum félagsskap? 🙌

Þá er Útifjör fyrir þig! Í 8 vikur ætlum við að hreyfa okkur, hlæja, styrkja líkama og huga og njóta útiverunnar saman. 💚

💛 Þriðjudaga kl. 17:15
💛 Fimmtudaga kl. 17:15

Þú þarft ekki að vera komin í form til að byrja — þú byrjar til að komast í form. 🙌

Verð frá 3.500 kr. á viku
✨ Sérverð fyrir allt námskeiðið ef skráð er fyrir 5. ágúst. Nánari upplýsingar eru í skráningarforminu.

Skráning er hafin — tryggðu þér sæti hér:
https://forms.gle/y2aDoQmMf6ofdLBq6

Komdu út að leika með okkur! 💛
Berta & Halla Karen

27/06/2026

Sá þetta hjá og varð auðvitað að prófa! 😅💪
Erfiðara en það lítur út fyrir!
Hver ætlar að taka áskoruninni? 👇

02/06/2026

Taktu þátt í júní áskoruninni! ☀️💪

Mig langaði að setja mér nokkrar einfaldar venjur fyrir júní. Ekki til að vera fullkomin, heldur til að hafa meiri orku, líða betur og halda áfram að byggja upp góðar venjur.

💪 120+ g prótein á dag
🚶‍♀️ Hreyfing á hverjum degi
☀️ Ferskt loft daglega
🥤 2–3 L vatn
😴 7+ klst svefn þegar mögulegt er
📱 Enginn sími við matarborðið
❤️ Tími með góðu fólki
🙏 3 sigrar á dag
🎯 Gera mitt besta

Engin refsing ef dagur fer úr skorðum. Bara halda áfram daginn eftir.

Þú þarft ekki að gera allt í einu.

Veldu eitt atriði sem þú vilt bæta í þessari viku og byrjaðu þar. 🙌

Engin fullkomnun. Bara að mæta og gera sitt besta. 💛

Ert þú með í júní áskoruninni? 🙌 Skrifaðu í athugasemd hvaða eina venju þú ætlar að leggja áherslu á í júní og merktu vin sem gæti viljað taka þátt með þér – mig langar að heyra frá þér! ☀️💪

18/04/2026

Hreyfing heldur mér gangandi – fyrir líkama og sál 💛

Hreyfing þarf ekki að vera fullkomin 💪

Photos from Berta Þórhalladóttir's post 20/03/2026

Hamingjan er hér 💛

Í dag er alþjóðlegi hamingjudagurinn ✨

En hamingjan þýðir ekki að allt sé fullkomið…
heldur að við veljum hana 💛

Mætum fyrir okkur sjálf
fyrir hvort annað
og njótum augnabliksins ✨

Ég er ótrúlega þakklát að fá að gera það sem mér finnst skemmtilegt –
með svona frábæru fólki ❤️

Veldu hamingjuna í dag 💛

15/03/2026

Allir verða að byrja einhvers staðar 💪

Armbeygjur eru einfaldar — en ekki alltaf auðveldar.

Ef þú getur ekki gert þær ennþá eru margar leiðir til að byrja:
✔️ við vegg
✔️ á bekk
✔️ á hnjám

Það mikilvægasta er að byrja þar sem þú ert og halda áfram 💪

Gerðu bara eins og þú best getur 😊

Komdu og vertu með okkur restina af mars 👏

09/03/2026

ÚTIFJÖR – skráning hafin 🌿

Langar þig að hreyfa þig úti, hitta frábæran hóp kvenna og finna gleðina í hreyfingu?

Útifjör með Höllu & Bertu byrjar 17. mars.

Æfingar:
🌿 Þriðjudaga & fimmtudaga
⏰ 17:15

Hreyfing úti, styrkur, þol og góð stemning 💛

Pláss eru takmörkuð.

👉 Skráning hér:https://forms.gle/kc4LPkBeT3ho8XcE8

Berta & Halla Karen

04/03/2026

Bekkpressu challenge 💪

✅ 16 kg – létt
✅ 18 kg – allt í lagi
✅ 20 kg – orðið krefjandi
❌ 22 kg – ekki í dag

…en maður veit ekki nema reyna.

22 kg – ég er á leiðinni 🔥

Hvað er þitt max í bekkpressu?

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address

Mosfellsbær