16/07/2026
NÆSTI LEIKUR!
Stutt ferðalag í Fífuna á morgun að sækja 3 punkta. Stigasöfnun hefur verið dræm upp á síðkastið en tími til að fara snúa því við!
📅 Föstudagur 17. júli
🕖 19:15
📍 Fífan
Ýmismenn, það er ekki langt að fara - mætum og styðjum við bakið á strákunum❤️🤍
12/07/2026
1-2 svekkjandi tap í dag, jafnræði með liðunum en þeir tóku sín færi sem að lokum skildu að.
Steini með markið okkar!
Næsti leikur er gegn Augnablik í Fífunni á föstudaginn
11/07/2026
Næsti leikur!
Stólarnir koma í heimsókn í Kórinn á morgun. Eftir flottan bikarleik í vikunni viljum byggja ofan á það. Fyrsti leikur í seinni umferð og því mótið hálfnað.
📅Sunnudagur 12. júlí
🕓16:00
🏟️Kórinn
09/07/2026
SIGUR!!
Frábær 0-2 sigur í gær gegn Hvíta Riddaranum í 16-liða úrslitum Gatorade bikarsins.
Bad Mickey maður leiksins var auðvitað tveggja marka maður⚽️⚽️
Dregið var í hádeginu í 8-liða úrslit þar sem við mætum gegn Selfossi á útivelli, spilað verður þriðjudaginn 4. ágúst🙏
07/07/2026
GATORADE BIKARINN á morgun!
Það er að komið að 16 liða úrslitum í bikarnum gegn Hvíta Riddaranum - spilað verður til þrautar.
📅 Miðvikudagur 8. júlí
🕖 19:00
🏟️ Malbikstöðin að Varmá
Hvetjum Ýmismenn til að fjölmenna á völlinn og styðja strákana áfram!!
01/07/2026
Heimaleikur!
KV mætir í Kórinn á morgun, seinasti leikur í fyrri umferð.
📅Fimmtudagur 2 júlí
🕖19:15
🏟️Kórinn
Hvetjum Ýmismenn til að mæta og styðja við liðið❤️🤍
29/06/2026
Skandall í Sandgerði!
2-2 jafntefli niðurstaðan á Sandgerði. Það er alveg með hreinum ólíkindum hvað gerist þegar við mætum á þennan völl. Myndbandið hér að ofan talar sínu máli þar sem dæmd var vítaspyrna á okkur…þegar staðan var 2-1 okkur í vil. Boltinn rúllandi og við að taka markspyrnu…
En mörkin skoruðu Breki og Bjössi⚽️⚽️
Bad Mickey Maður leiksins var Dagur Eiríks!
Gaman að segja frá því að “bræðurnir” Ólafur Örn Eyjólfsson og Ásgeir Marteinsson léku sinn fyrsta leik saman í treyju Ýmis sem hefur verið langþráður draumur þeirra❤️
Næsti leikur er gegn KV á fimmtudaginn í Kórnum
27/06/2026
Siglingafélagið heldur í Sandgerði á morgun þar sem við mætum Reyni
Eftir svekkjandi úrslit í síðasta leik er ekkert í boði nema sækja og ná í 3 helvítis punkta
📅 Sunnudagur 29. júní
🕑 14:00
🏟️ Brons völlurinn
Hvetjum Ýmismenn til að taka sunnudagsrúnt í Sandgerði og styðja við bakið á strákunum!
20/06/2026
Hattarmenn mæta í Kórinn á morgun!
3 heimaleikurinn í röð og stefnan sett jafnframt á 3 sigurleikinn í röð💯
📅Sunnudagur 21. júní
🕑13:30
🏟️Kórinn
Hvetjum alla til að mæta í Kórinn á morgun og styðja við bakið á strákunum!
14/06/2026
Stutt milli leikja!
Leikur gegn FC Árbæ heima á morgun. Frábær síðasti leikur og stefnan sett að byggja ofan á það og sækja 3 punkta💯
📅 Mánudagur 15. júní
🕖 19:00
🏟️ Kórinn
Hvetjum Ýmismenn til að mæta og styðja við liðið❤️🤍