28/06/2026
Karatedeild Breiðabliks
Karatedeild Breiðabliks er ein fjölmennasta karatedeild landsins með hátt í 200 virka iðkendur. Æfingar fara fram í Smáranum.
Skoðaðu heimasíðuna okkar www.breidablik.is/karate. Iðkendur eru nú um 150 af báðum kynjum og á ýmsum aldri. Yngstu iðkendur okkar eru 6 ára en þeir elstu eru rúmlega fimmtugir. Í karate gerum við ekki greinarmun á kynjunum. Allir æfa saman en skipt er í flokka eftir aldri og hversu langt iðkendurnir eru komnir í íþróttinni. Í shotokan karate eru beltin 10, frá hvítum lit (byrjenda) í svart.
28/06/2026
28/06/2026
Uppskeruhátíð deildarinnar fór fram í Guðmundarlundi fyrir nokkru. Að venju fórum við í leiki, grilluðum pylsur og höfðum gaman af.
Þrjú lið voru skipuð í ratleik, Besta Liðið með Svövu, Freyju og Ými, Tóm Hönd með Viktori, Arnari, Krumma, öðrum Arnari og Tóta og loks The Dream Team sem í voru Aron Páll, Eva, Ketill, Nic og Óðinn.
Ratleikurinn gekk út á það að krakkarnir fóru á ákveðnar stöðvar á frisbe-golfvellinum og áttu að taka mynd af hópnum með ákveðið þema í huga en þau voru vinátta, sumar, Breiðablik og Villi. Einnig áttu krakkarnir að gera kihon kata og taka upp myndband af því.
Deildin þakkar kærlega fyrir afskaplega skemmtilegann karatevetur og óskar öllum gleðilegs sumars. Hittumst heil í haust.
11/06/2026
Þessi varð eftir, er ekki viss hvort hann tilheyri okkur.
10/06/2026
Minnum á uppskeruhátíðina á morgun í Guðmundarlundi kl 16:30. Vinsamlega skrá sig svo við áttum okkur á fjöldanum.
Uppskeruhátíð karatedeildarinnar 2026 Þá er komið að lokapunktinum á starfinu í vetur, búið að vera afskaplega ánægjulegur vetur hjá okkur og við erum að fara inn í gott sumarfrí og safna kröftum fyrir næsta vetur. Uppskeruhátíð deildarinnar verður eins og svo oft áður í Guðmundarlundi fimmtudaginn 11. júní f...
07/06/2026
Þá er komið að lokapunktinum á starfinu í vetur, búið að vera afskaplega ánægjulegur vetur hjá okkur og við erum að fara inn í gott sumarfrí og safna kröftum fyrir næsta vetur. Uppskeruhátíð deildarinnar verður eins og svo oft áður í Guðmundarlundi fimmtudaginn 11. júní frá 16:30. Byrjum á ratleik og sprelliu og endum á grillinu.
Allir velkomnir en við óskum eftir skráningu svo við getum áttað okkur á fjöldanum.
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfaYnJdYq30sa5sQWwkJsxU9a4TiVR3OuB2kjjG4ydkcve5ug/viewform
Æfingin UMFL á þriðjudag 26/5 verður 90 mín og mun Þórður Jökull Henrysson sjá um hana. Þórður er margfaldur Íslandsmeistari í kata og hefur verið fastamaður í landsliðinu í mörg ár.
13/05/2026
Minni á að við stefnum á að fara í hópferð á Scandinavia Open 2026 sem verður haldið 19. til 20. september í Malmö. Keppt er í kata og kumite 14 ára á aldrei miðað við dagssetningu.
ATH, skrá hvern og einn sem er áhugasamur um að fara hvort sem um er að ræða iðkanda sem ætlar að keppa eða aðstandanda. Ath að þetta er ekki bindandi.
Skráningar form:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfNeNKLHQDtVVMkVVi389BRgwpP5RNfEv27c-TyftFvSMTq_w/viewform?pli=1
Nánari upplýsingar um mótið:
https://www.sportdata.org/karate/set-online/veranstaltung_info_main.php?active_menu=calendar&vernr=9942&fbclid=IwY2xjawRxGkBleHRuA2FlbQIxMABicmlkETBIc1pjWFN4R1ZHSzdxZ1NVc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHnM-wxZSe-3Umwtru7CM5DRh8z_-dmUq_QA6BQVLsHSGpoQYSwansd67nnZ__aem_wBHah-tzMNvNt8blLRdWkQ
Scandinavia Open 2026 Stefnum á að fara í hópferð á Scandinavia Open 2026 sem verður haldið 19. til 20. september í Malmö. Keppt er í kata og kumite 14 ára á aldrei miðað við dagssetningu. ATH, skrá hvern og einn sem er áhugasamur um að fara hvort sem um er að ræða iðkanda sem ætlar að keppa eða...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Contact the business
Address
Kópavogur
200