30/08/2026
Lyftingaskólinn á Hjalteyri er opinn í dag frá kl. 11:00–17:00.
Hulda hefur sett upp þrautabraut og tekur spennt á móti gestum í Síldarkastalanum. Allir krakkar eru velkomnir til að spreyta sig á þrautabrautinni, leysa klifurþrautir og leika sér.
Í dag er jafnframt síðasti dagurinn á sýningunni SÝNI í Verksmiðjunni.
Við mælum eindregið með því að kíkja við á Hjalteyri í dag.
23/08/2026
Sunnudagur á Hjalteyri
🧒👧 11:00–16:00 – Lyftingaskóli
Leikur, jafnvægi og hreyfifærni með foreldrum
🔓 11:00–17:00 – Open Gym
Þrautabrautir, drop-in og fjölskylduvænt andrúmsloft.
Aðgangur 1000kr fyrir barn, frítt fyrir foreldra.
22/08/2026
Um helgina fór tónlistar- og menningarhátíðin Kveldúlfur fram í annað sinn á Hjalteyri.
Dagskráin stóð yfir allan daginn með opnum vinnustofum, lyftingamóti og sýningum, áður en tónlistin tók við frá klukkan 15.30 til 03.30.
Kveldúlfur er sú árlega stund þegar Hjalteyri tekur hamskiptum. Verksmiðjan vaknar, ljósin verða taugakerfi hennar, tónlistin röddin og þátttakendur blóðrásin.
Með sameiginlegu átaki listafólks, starfsfólks, sjálfboðaliða, styrktaraðila og heimamanna tókst að vekja þessa veru til lífs. Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg og tóku þátt í úlfaveislunni með okkur.
Nú tekur vetrardagskráin við. Við breytum opnunartímanum og setjum námskeið og æfingar af krafti í gang — ásamt karókíi, karate, kraftlyftingum, klifri, kajak, kaupfélagi, kaffi og kakói.
Hér er myndræn frásögn Daníels Starrasonar frá Kveldúlfi. 🐺
18/08/2026
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður enginn opnunartími eða þjálfun í dag, þriðjudaginn 18. Ágúst, hjá okkur. Iðkendur komast inn með aðgangskorti.
16/08/2026
Takk fyrir komuna, og takk fyrir samveruna.
Lengi lifi Kveldúlfur!
10/08/2026
Við opnum aðeins seinna en venjulega í dag.
Þjónustutími hjá okkur á Hjalteyri er frá kl. 15:30–22:00 í dag.
Komdu, veldu þér áskorun og finndu út hvað býr í þér.
Allir velkomnir.
09/08/2026
☀️ Sunnudagur á Hjalteyri ☀️
👧🧒 11:00–16:00 – Lyftingaskóli
Þrautabraut, klifur og hreyfing — börnin takast á við eigin þrautir, finna styrk sinn og læra og þroskast með fjölskyldum sínum.
🔓 11:00–17:00 – Opið hús
Fólkið sem kemur hingað, velur sér áskorun og tekur þátt. Stundum birtist það í þungri stöng, stundum í klifurvegg og stundum í barni sem þorir að reyna einu sinni enn.
Grelli á afmæli í dag og býður gestum upp á köku og kaffi í tilefni dagsins. Verður gaman að sjá hvort hann hafi stækkað í nótt 🤭
Allir velkomnir í Kastalann á Hjalteyri
07/08/2026
Í sumar kom Sara Jóna Emily Caird við hjá okkur á Hjalteyri. Heimsóknin endaði á tali um verkefni sem hefur beðið í næstum þúsund ár.
Sara er listakona, sjósundskona og Húnvetningur með skoskar rætur og fyrsta konan sem synti Grettissundið. Hún hefur síðan endurtekið afrekið og þekkir leiðina því betur en flestir.
Hún er nú búsett í Skagafirði og var á æfingaferð um Norðurland þegar hún kom við hjá okkur. Það leið ekki á löngu þar til talið barst að Gretti sterka.
Grettissundið liggur frá Drangey að Reykjanesi á Reykjaströnd og dregur nafn sitt af Gretti Ásmundarsyni, sem samkvæmt Grettis sögu synti þessa leið fyrir nær þúsund árum.
Þegar Sara synti leiðina tók sundið rúmar þrjár klukkustundir, án blautbúnaðar.
Sagan af Gretti hefur fylgt Grella frá barnsaldri. Amma hans sagði honum sögurnar af Gretti við hvert tækifæri. Drangey var reglulega heimsótt og frá austanverðum Skagafirði var horft út til hennar.
Ein sterkasta æskuminningin tengist þó Grettistakinu í Grafarósá, sunnan við Hofsós, á slóðum afa hans við Grafargerði. Þar urðu sögurnar af Gretti einhvern veginn áþreifanlegar fyrir litlum dreng.
Grettir fylgdi svo með norður.
Árið 2021 teiknaði Grelli mynd af honum á vegginn í æfingasalnum. Þar hefur Grettir síðan setið á bak við stangirnar og fylgst með því sem fram fer.
Í sumar hefur Grelli sjálfur svo eytt góðum hluta tímans í löng leynileg sund hér fyrir utan Hjalteyjuna.
Það vakti því nokkra kátínu þegar Sara heyrði af þeirri hálfkæringslegu kenningu sem hefur lengi fylgt Grella: að ætli hann sér að gera tilkall til arfleifðar Grettis sterka og titilsins „sterkasti Skagfirðingur sögunnar“, þá sé eitt próf enn eftir.
Grettissundið.
Eftir fjögur ár verða liðin þúsund ár frá sundi Grettis samkvæmt sögunni.
Þá væri gaman að safna saman hópi undir leiðsögn Söru, halda út í Drangey og synda heim að Reykjanesi.
Þúsund árum eftir Gretti sterka.
31/07/2026
Á morgun er fjölskylduhátíðin á Hjalteyri! 🎉
Það verður nóg um að vera:
🏋️ Kraftlyftingar
🥋 Karate
🛶 Kayak
🧗 Klifur
🔥 Kyndilganga
🎨 Opin stúdíó, verkstæði og verbúðir
🛍️ Kaupfélagið
☕ Kaffi og meðlæti
🍬 Karamellukast
🪨 Kúlusteinar
🎆 Flugeldasýning
Við verðum með opið frá kl. 11:00 til 17:00.
Komið, eigið skemmtilegan dag og njótið alls þess sem Hjalteyri hefur upp á að bjóða! 💛
26/07/2026
☀️ Sunnudagur á Hjalteyri ☀️
🧒👧 11:00–16:00 – Lyftingaskóli
Leikur, jafnvægi og hreyfifærni með Huldu
🔓 11:00–17:00 – Open Gym
Þrautabrautir, drop-in og fjölskylduvænt andrúmsloft.