FH Handbolti

FH Handbolti

Share

FH Handbolti

31/08/2026

Tvíhöfði á föstudaginn!

Kl. 18:00 | FH - Grótta2 - Grill 66 deild kvenna
Kl. 20:15 | FH - Stjarnan - Olísdeild karla

Miðakaup á Stubb - miðinn gildir á báða leiki.
https://stubb.is/events/n54glb

Mætum snemma í mat og drykk.
Við hlökkum til að sjá ykkur á pöllunum!

Við erum FH 🖤🤍

28/08/2026

FH stelpurnar unnu Fjölni í gær í síðasta æfingaleiknum fyrir mót 29-22. Mjög góð frammistaða og öruggur sigur!

Mörk FH skoruðu:
Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 9, Sylvía Blöndal 6, Telma Medos 4, Elísa Björt Ágústsdóttir 4, Ólafía Þóra Klein 3, Eva Aðalsteinsdóttir 2, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 1.

Varin skot:
Szonja Szöke 11
Sigrún Ásta Möller 4

26/08/2026

Mfl. kvk | FH vann Víking

Stelpurnar okkar sigruðu Olísdeildarlið Víkings 28-34 í æfingaleik í gærkvöldi en staðan í hálfleik var 14-23 stelpunum okkar í hag. Virkilega flottur leikur sem gefur góð fyrirheit um framhaldið.

Mörk FH skoruðu:
Sylvía Blöndal 11, Elísa Björt Ágústsdóttir 6, Eva Aðalsteinsdóttir 6, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 3, Dagný Þorgilsdóttir 2, Ólafía Þóra Klein 2, Telma Medos 2, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 1 og Hafdís Hera Arnþórsdóttir 1.

Szonja Szöke og Sigrún Ásta Möller vörðu samtals 10 skot.

Við erum FH 🖤🤍

Photos from FH Handbolti's post 19/08/2026

Meistari Jói Long mætti með myndavélina á leik FH og Afturelding.

Síðasti leikur Hafnarfjarðarmótsins er á laugardaginn kl. 13:00 gegn Haukum.

19/08/2026

Sigur á Aftureldingu 💪

FH vann Aftureldingu í kvöld 40-35 í öðrum leik liðisins á Hafnarfjarðarmótinu sem fram fer á Ásvöllum. Staðan í hálfleik var 25-18. Mikill hraði var í leiknum og skoraði FH m.a. 11 mörk úr hraðaupphlaupum (fyrstu eða annarri bylgju) í fyrri hálfleik. Rúllað var vel á liðinu og skoruðu allir útileikmennirnir í leiknum.

Mörk FH skoruðu:
Jón Bjarni Ólafsson 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Brynjar Narfi Arndal 5, Leonharð Þorgeir Harðarson 4, Ágúst Guðmundsson 3, Eiður Rafn Valsson 3, Ingvar Dagur Gunnarsson 3, Símon Michael Guðjónsson 3, Antoine Óskar Pantano 2, Einar Rafn Eiðsson 2, Gunnar Kári Bragason 1, Jakob Martin Ásgeirsson 1 og Guðmundur Levy Hreiðarsson 1.

Varin skot:
Jón Þórarinn Þorsteinsson 11
Jóhannes Andri Hannesson 2

Við erum FH 🖤🤍

18/08/2026

LEIKDAGUR 🤾
FH-Afturelding í Hafnarfjarðarmótinu kl. 20:00

Leikið á Ásvöllum.

Við erum FH 🖤🤍

15/08/2026

FH vann HK 33-30 í fyrsta leik Hafnarfjarðarmótsins sem hófst á Ásvöllum í morgun.

Mörk FH skoruðu:
Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Eiður Rafn Valsson 4, Ágúst Guðmundsson 4/2, Símon Michael Guðjónsson 4, Jón Bjarni Ólafsson 3, Leonharð Þorgeir Harðarson 3, Brynjar Narfi Arndal 3, Antoine Óskar Pantano 2, Gunnar Kári Bragason 2, Guðmundur Levy Hreiðarsson 1 og Einar Rafn Eiðsson 1/1.

Varin skot:
Jón Þórarinn Þorsteinsson 8
Jóhannes Andri Hannesson 5

Næsti leikur FH á mótinu er nk. þriðjudag gegn Aftureldingu.

Við erum FH 🖤🤍

14/08/2026

Meistaraflokkur kvenna kom heim í gær frá Tenerife þar sem stelpurnar okkar voru í æfingaferð. Æft var af krafti við toppaðstæður á Tene og eru stelpurnar nú klárar í lokaundirbúning hér heima fram að fyrsta leik í deild.

Við erum FH 🖤🤍

Photos from FH Handbolti's post 13/08/2026

U18 í 5. sæti á EM

Ómar Darri og Brynjar Narfi enduðu í 5. sæti með íslenska U18 landsliðinu á EM í Serbíu sem lauk um síðustu helgi. Liðið vann sjö af átta leikjum sínum á mótinu en eina tapið var gegn Þjóðverjum í 8 liða úrslitum 33-31. Þjóðverjar enduðu á því að vinna mótið.

Okkar drengir spiluðu mjög vel á mótinu og voru frábærir fulltrúar Fimleikafélagsins. Ómar var tvívegis valinn maður leiksins (gegn Þjóðverjum í 8 liða úrslitum og gegn Ungverjum í leiknum um 5. sætið) og Narfi var einu sinni valinn maður leiksins (gegn Króatíu í milliriðli).

07/08/2026

Geir Hallsteinsson 80 ára

Geir Hallsteinsson er 80 ára í dag, 7. ágúst. Geiri Hall er ein allra stærsta stjarna FH frá upphafi - sannkallaður FH-Risi. Geir varð margfaldur meistari með FH sem leikmaður og þjálfari, fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í handbolta, íþróttamaður ársins árið 1968 og fánaberi Íslands á Ólympíuleikunum í München 1972. Geir lék 118 landsleiki fyrir Íslands hönd.

Innilega til hamingju með daginn Geiri 🤍🖤

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address

Kaplakriki
Hafnarfjörður
220