Knattspyrnudeild UMF. Sindra

Knattspyrnudeild UMF. Sindra

Share

Knattspyrnudeild UMF. Sindra - Höfn í Hornafirði. www.umfsindri.is

11/07/2026

Næsti leikur er á morgun! 💪🔥
Strákarnir taka á móti KH á Jökulfellsvellinum og markmiðið er skýrt – þrjú stig. ❤️🤍

📅 12/07
🏆 3. deild karla
🆚 KH
🕓 16:00
📍 Jökulfellsvöllurinn

04/07/2026

Augnablik mætir á Jökulfellsvöllinn í dag. Mikilvæg þrjú stig eru undir og strákarnir eru staðráðnir í að halda þeim heima.

📅 04/07
🏆 3. deild karla
🆚 Augnablik
🕓 16:00
📍 Jökulfellsvöllurinn

Sjáumst á vellinum! ❤️🤍

24/06/2026

Næsta stopp: Sauðárkrókur. Strákarnir lagðir af stað og klárir í verkefnið gegn Tindastóli á morgun. 💪

📅 25/06
🏆 3. deild karla
🆚 Tindastóll
⏰ 17:00
📍 Sauðárkróksvöllur

20/06/2026

Knattspyrnudeild Sindra kynnir Færibandið á Humarhátíð. 🎶

Laugardagskvöldið 27. júní sér Færibandið um Humarhátíðarballið í Ice Lagoon höllinni. 🦞

🎟️ Miðasala hefst á hádegi miðvikudaginn 24. júní í Sundlauginni á Höfn.

Tryggðu þér miða í forsölu og sjáumst á ballinu! 🍻🎶

18/06/2026

KV kemur í heimsókn á Jökulfellsvöllinn á Laugardaginn. Mikilvæg stig í boði og strákarnir eru klárir í verkefnið.

📅 20/06
🏆 3. deild karla
🆚 KV
⏰ 14:00
📍 Jökulfellsvöllurinn

15/06/2026

Sjáumst á miðsvæðinu 17. júní! Fjölskylduskemmtun, hoppukastalar, sápubolti og margt fleira. 🎉

13/06/2026

Næsti leikur á morgun!

Eftir 2-2 jafntefli í síðasta leik halda strákarnir suður þar sem Reynir Sandgerði tekur á móti okkur á Brons vellinum. Það eru mikilvæg stig í boði og liðið klárt í slaginn. 💪🔴⚪

📅 14/06
🏆 3. deild karla
🆚 Reynir Sandgerði
⏰ 14:00
📍 Brons völlurinn

Photos from Knattspyrnudeild UMF. Sindra's post 10/06/2026

Eins og Sindrafólk tók eflaust eftir í leiknum gegn Árbæ hafa tveir nýir leikmenn bæst í hópinn. Það eru þeir Fuseini Issah og Fredrick Delali sem koma til félagsins á lánssamningi frá KR út tímabilið.

Issah er fljótur og teknískur kantmaður sem getur skapað usla á síðasta þriðjungi vallarins, á meðan Fredrick er öflugur miðjumaður sem les leikinn vel og lætur finna fyrir sér.

Frumraun þeirra lofar góðu og við hlökkum til að sjá þá halda áfram að leggja sitt af mörkum fyrir Sindra á tímabilinu.

Velkomnir í Sindra, Issah og Fredrick!

09/06/2026

⚔️ Austurlandsslagur annað kvöld!

Höttur kemur í heimsókn á Jökulfellsvöllinn þar sem mikilvæg stig eru undir. Strákarnir eru klárir í slaginn og Stjáni verður á grillinu 🍔. Við vonumst til að sjá sem flesta í stúkunni! 🔴⚪️

📅 10/06
🏆 3. deild karla
🆚 Höttur
🕖 19:15
📍 Jökulfellsvöllurinn

07/06/2026

Sterkur 4-1 sigur á útivelli gegn Árbæ í gær! 🔴💪

Ibra kom okkur yfir strax á 3. mínútu og Jóhann Frans tvöfaldaði forystuna tólf mínútum síðar. Heimamenn náðu að minnka muninn fyrir hálfleik en eftir góða byrjun á þeim seinni slapp JayJay inn fyrir vörnina og lagði boltann snyrtilega í netið. Ibra innsiglaði svo sigurinn þegar hann þrumaði boltanum í inn fyrir utan teig.

Lokatölur 1-4 og án efa okkar besti leikur hingað til á tímabilinu. 👏

Næsti leikur er á miðvikudaginn þegar við tökum á móti Hetti í sannkölluðum Austurlandsslag á Jökulfellsvellinum. Flautað verður til leiks kl. 19:15 og við vonumst eftir góðri mætingu!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Höfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address

Hafnarbraut 15
Höfn
780