18/08/2026
Víðir 28 – 29 Haukar í æfingaleik.
Margir nýir leikmenn í sínum fyrsta leik með Víði og allir stóðu sig prýðilega 💙
Áfram Víðir!
Víðir Handbolti is the pioneering handball team located in Garður in the picturesque peninsula of Reykjanes, South Iceland.
Our commitment is to deliver top-notch sports instruction, igniting passion for handball within our community.
18/08/2026
Víðir 28 – 29 Haukar í æfingaleik.
Margir nýir leikmenn í sínum fyrsta leik með Víði og allir stóðu sig prýðilega 💙
Áfram Víðir!
17/08/2026
Handboltaæfingar í vetur — Allir yngri flokkar, strákar og stelpur 🤾
Skráðu áhuga fyrir barnið þitt og fáðu æfingatíma senda beint til þín þegar nær dregur.
Ein skráning á hvert barn — ef þau eru fleiri, þá bara fylla út aftur 💙
https://vidirhandbolti.is/yngri-flokkar
17/08/2026
Æfingaleikur í dag ⚡
Víðir – Haukar
Leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum, en við segjum ykkur frá honum hér á eftir 💙
12/08/2026
🔥 Markavélin okkar heldur áfram!
Szymon Bykowski hefur skrifað undir til 2027. 🔵✍️
76 mörk í aðeins 14 leikjum á síðasta tímabili... maðurinn er ekki að grínast. 😳
Lestu allt um framlenginguna hér 👇
🔗 https://vidirhandbolti.is/frettir/szymon-bykowski-framlengir-til-2027
Saman erum við sterkari! 💙
08/08/2026
🎉 Frábærar fréttir! Tymon framlengir og verður áfram hjá okkur næsta tímabil! 🤾♂️
Við erum ótrúlega ánægð að hafa hann áfram í hópnum og hlökkum til að sjá hann halda áfram að láta til sín taka. Velkominn áfram, Tymon! 💪
👉 Lesa nánar: https://vidirhandbolti.is/frettir/tymon-framlengir-tekur-eitt-ar-i-vidbot-med-okkur
24/07/2026
🧤 Jan ver mark Víðis áfram!
Jan hefur skrifað undir og heldur áfram á milli stanganna hjá okkur — nú í Grill66 deild karla. 🔵
30 leikir í bláu treyjunni... og ein tölfræði sem er ekki á hverju strái hjá markverði. 👀
Lestu allt um það hér 👇
🔗 https://vidirhandbolti.is/frettir/jan-skrifar-undir-ver-mark-vidis-afram-i-grill66-deild-karla
Saman erum við sterkari! 💙
13/07/2026
🔵 VERTU MEÐ Í UPPBYGGINGU VÍÐIS 🔵
Handboltinn hjá Víði hefur aldrei staðið sterkari — en stórir draumar verða ekki að veruleika af sjálfu sér. Á bak við hvern sigur, hvert mót og hvern iðkanda stendur fólk sem lætur verkin tala. Núna vantar okkur þig.
Við erum stærsta handknattleiksfélag Suðurnesja, og saman ætlum við að gera það enn stærra. Hvort sem þú átt barn í yngri flokkunum, brennur fyrir meistaraflokknum eða vilt bara leggja þitt af mörkum fyrir samfélagið okkar — þá er pláss fyrir þig.
💪 Foreldraráð – vertu rödd foreldranna og hjálpaðu til við að byggja upp umgjörð sem yngri iðkendur eiga skilið.
🏆 Meistaraflokksráð – stattu þétt við bakið á okkar besta fólki og hjálpaðu meistaraflokknum að ná lengra.
Það þarf ekki reynslu — bara metnað, hjartað á réttum stað og viljann til að vera með. Þetta er tækifærið til að setja mark þitt á framtíð félagsins og verða hluti af einhverju sem skiptir raunverulega máli.
Áfram Víðir! 🔵⚪
👉 Skráðu þig hér: https://vidirhandbolti.is/rad
13/07/2026
Við erum virkilega stolt að tilkynna að Szymon Kowal hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til ársins 2028! 🖊️🔥
https://vidirhandbolti.is/frettir/framtidin-er-bjort-hja-vidi-szymon-kowal-skrifar-undir
12/07/2026
🥇🇵🇱 GULL! Okkar maður er meistari! 🇵🇱🥇
Tymon Ponto, leikmaður Víðis, er kominn heim með GULLIÐ af EHF Beach Handball Championship 2026 í Zagreb! 🏖️🤾♂️🔥
Pólverjar sigldu í gegnum mótið af fullum krafti og tóku toppsætið — og tryggðu sér um leið sæti á sjálfu Evrópumótinu, EHF Beach Handball EURO 2027! 💪
Þvílíkur árangur og þvílíkur heiður fyrir okkur í Víði. Til hamingju Tymon, þú átt þetta svo innilega skilið! 👏💙
🥇
11/07/2026
💥 Okkar maður með pólska landsliðinu! 💥
Tymon Ponto, leikmaður Víðis, er í eldlínunni með karlalandsliði Póllands á EHF Beach Handball Championship 2026 — undankeppni fyrir EM 2027 í strandhandbolta! 🏖️🤾♂️
Pólverjar eru á blússandi siglingu með fullt hús stiga og leiða sinn riðil. 🔥
📅 Í DAG spila þeir gegn Úkraínu
🕚 Kl. 09:00 að íslenskum tíma (11:00 í Póllandi)
📺 Beint á EHF TV
Fylgjumst með og styðjum Tymon! 💙