15/07/2021
Jæja dömur mínar, herrar, og allt þar á milli...
Þá er komið að því sem mörg okkar hafa beðið eftir í allt sumar! Nú á að opna lyftuna okkar, Fjarkann, í dag klukkan 1700 og verður hún keyrð fjóra daga í viku til og með 5. september! Komið og njótið alls þess sem Hlíðarfjall Akureyri hefur upp á að bjóða yfir sumartímann. Hvort sem það eru hjólabrautir, gönguleiðir, útsýnið, toppurinn, nálægðin við fjöllinn eða bara útivera, þá hefur Hlíðarfjall það allt og lyftan gerir það auðveldara og aðgengilegra fyrir alla, unga sem aldna.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Fjallinu í sumar!
15/08/2020
Loksins loksins! 😁
Góðan dag í dag er Laugardag 15 Ágúst er opið frá 10:00-18:00 hér er 10°c og nánast logn, það hefur ringt í nótt þannig brautir eru smá blautar.
Velkomin í Hlíðarfjall.
30/08/2019
Nýjasta nýtt í Fjallinu okkar!
Hlíðarfjall Bike Park - Ævintýraleiðin
Ævintýraför um Ævintýraleiðina í Hjólagarðinum í Hlíðarfjalli 2019. One run down the "adventure-trail" in Hlíðarfjall Bike Park in Akureyri, Iceland 2019.
24/08/2019
Takið eftir! Takið eftir!
🚴 🚴♀️ ⛰️ 🏃♀️ 🏃♂️
Þá er það NÆST síðasti laugardagurinn í Hlíðarfjall Bike Park í sumar!
Lyftan farin að snúast... 🚠
Glampandi sól og 15°c... 🌞
Brautirnar betri í dag en í gær... 🚧
Það eru einfaldlega engar afsakanir fyrir því að láta ekki sjá sig á hjólinu eða bara tveimur jafn fljótum.
Opið til klukkan 18:00.
Sjáumst hress í fjallinu!