Komið þið sæl
Æfing fellur niður á miðvikudaginn 17. júní, sjáumst hress aftur 24. júní.
Allir með - Akureyri
Allir með er samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar. Verkefnið gengur út á að fjölga tækifærum fyrir börn með sérþarfir innan íþróttahreyfingarinnar
29/05/2026
Komið þið sæl
Minni á að æfingin næsta sunnudag fellur niður vegna blakmóts í salnum. Minni á æfingu á Ólafsfirði laugardaginn 21. feb, allir velkomnir að mæta. Sjáumst svo hress í Naustaskóla sunnudaginn 1.mars.
02/02/2026
Hvet alla til að fylgjast líka með þessum Facebook hóp
https://www.facebook.com/share/p/177SGdC7hw/?mibextid=wwXIfr
Gleðilegan febrúar🎉
Það var heldur betur fjör á Dalvík og næsta Allir með æfing fer fram í Fjallabyggð laugardaginn 21. febrúar 💪⚽
Við hvetjum öll til að mæta – bæði þau sem búa á svæðinu og líka þau sem eru í nágrenninu.
Alltaf gaman að hittast, hreyfa sig saman og eiga góða stund 🤍
👉 Endilega deilið áfram!
Komið þið sæl,
Fyrsta æfing ársins fór fram síðasta sunnudag og tókst mjög vel. Það var virkilega gaman að hitta krakkana aftur og frábært að sjá nokkra nýja mæta til leiks.
Við höfum ákveðið að seinka æfingunni og hefja hana kl. 11:30. Markmiðið er að koma í veg fyrir árekstra við hópinn sem er með æfingu á undan okkur. Þar er mikill fjöldi iðkenda og hefur því skapast talsverð örtröð á svæðinu.
Með þessari breytingu tryggjum við að þjálfararnir okkar hafi betri tíma til að undirbúa æfinguna og að krakkarnir mæti í rólegra og öruggara umhverfi. Við viljum að upplifunin þeirra sé góð og að þau finni fyrir bæði öryggi og ánægju þegar þau mæta á æfingu.
Hlökkum til að sjá ykkur næsta sunnudag.
Kveðja, þjálfarar
28/11/2025
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest
Komið þið sæl
Vegna blakmóts í Naustaskóla um helgina þurfum við að færa körfuboltaæfinguna á sunnudaginn yfir í íþróttahúsið í Síðuskóla kl. 11:30. Biðjumst velvirðingar á þessu raski en vonumst til að sjá sem flesta.
13/10/2025
Komið endilega og prófið körfubolta!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Akureyri