Líkami Sálar

Líkami Sálar

Share

Harpa Dowan Howee er fædd og uppalin á Akureyri. Hún býður einnig upp á hóptíma í hljóðheilun.

Hún hefur verið næm frá barnsaldri og mikið náttúrubarn alla tíð. Það var þó ekki fyrr en hún fór að njóta stuðnings og leiðsagnar hjá heilurum í Sálarrannsóknarfélaginu á Akureyri að hún fór að nýta þessa andlegu hæfileika sína fyrir alvöru og starfaði í framhaldinu tímabundið sem heilari hjá félaginu. Einnig hefur hún lokið námskeiði í þróun miðilshæfileikans hjá Ásthildi Sumarliða miðli hjá Sál

31/08/2026

🌺 Tímatafla fyrir hljóðheilun í september 🌺

Ef þið hafið áhuga á að skoða tímana eða skrá ykkur að þá þarf að klikka á linkinn hér fyrir neðan og þannig opnast taflan.

Ég hvet ykkur til að skoða tímana og skrá ykkur tímanlega 🌺

https://canva.link/td5gm2refk4fwia

29/08/2026

Ég er orðin svo ótrúlega spennt að hitta ykkur og byrja aftur 🙏

Það er fullbókað í hljóðheilun hjá mér 1.september og ég á þrjú laus pláss í tímann 3.september 🌺

Sjá hér: https://fb.me/e/9DG5fMS80

ATH - Muna að ef þið setjið "mæta" að senda mér skilaboð til að staðfesta frátekið pláss 🌺

28/08/2026

Kæra kona 🌺

Það hafa losnað fjögur pláss á námskeiðið „Jafnvægi og endurnærandi orka“ sem hefst 7. september!

Þetta námskeið er sérstaklega hannað fyrir konur sem viljið gefa sér tíma til að hugsa betur um sjálfa sig og rækta heilsuna og auka orkuna yfir daginn.

Upplýsingar um námskeiðið:

Lengd: 4 vikur (hefst 7. september)

Tímar: Þrisvar í viku, kl. 15:00 – 16:10

Fyrir hverja: Lokaður hópur, aðeins fyrir konur

ATH- Það er ekki nauðsynlegt að vera búin með byrjendanámskeið. Munurinn á byrjenda- og framhaldsnámskeiði er einungis sá að hér gefst tækifæri á að iðka æfingar oftar í viku til að auka enn fremur undir jafnvægi í líkama og sál.
Einnig gefst tækifæri á að bæta við æfingum til að auka liðleika sem getur minnkað verkjaástand í brjóstbaki.

Tímarnir fara fram í öruggu og nærandi umhverfi 🌺

✨ Skráning og nánari upplýsingar:

Ef þú ert áhugasöm eða vilt nánari upplýsingar endilega sendu mér línu á [email protected] til að tryggja þér pláss!

23/08/2026

Kæru konur! 💖

🌺 ATH 🌺

Það hafa losnað 4 pláss á framhaldsnámskeiðið Jafnvægi og endurnærandi orka sem hefst 7. september.

Sérstaða framhaldsnámskeiðsins:

Lengra námskeið og fleiri skipti til að dýpka iðkunina.

Viðbótaræfingar þar sem sérstök áhersla er lögð á að liðka og styrkja brjóstbak, axlir og hendur.

Þú þarft ekki að hafa sótt byrjendanámskeið hjá mér áður til að taka þátt – Námskeiðið hentar öllum sem tilbúnar eru að mæta þrisvar sinnum í viku og gefa sér þennan dásamlega tíma.

Ef þig langar að tryggja þér eitt af þessum síðustu plássum, endilega sendu mér þá skilaboð sem fyrst! ✨

[email protected]

Hlakka til að heyra frá ykkur 💖

Harpa Dowan Howee

16/08/2026

Kæru vinir 💖

Nú fer ég aftur af stað með hljóðheilunina og við förum rólega af stað.

Tímatafla fyrir september lítur svona út: https://canva.link/td5gm2refk4fwia

Til að geta opnað viðburði í dagatalinu verður að klikka á linkinn.
Og til að komast í september verður að fletta dagatalinu og það er gert neðst í vinstra horni dagatalsins.

Ég hef opnað fyrir skráningu í alla tíma í september og hlakka ótrúlega mikið til að hitta ykkur aftur eftir gott sumarfrí 🥰

Harpa Dowan Howee 🌺

28/05/2026

Kæru konur 💖

Í haust fer ég aftur af stað með þetta vinsæla námskeið 🌺

Frekari upplýsingar um dagsetningar og tíma má fá með því að senda mér tölvupóst á netfangið [email protected]

Ég ætla einnig að bjóða ykkur konum sem hafið áhuga á þessu námskeiði að vera á skráningarlista án skuldbindingar 🌺

Ég mun bæði vera með byrjenda- og framhaldsnámskeið og aðeins 8 konur komast að á hvort námskeið 🌺

Ég er nú þegar farin að hlakka til haustsins með ykkur 💖

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address

Akureyri
600